Vill fresta skipun dómara við Landsrétt

Það myndi grafa undan trausti á dóms­kerf­inu ef dóms­mála­ráð­herra sendir ekki Alþingi rök­stuðn­ing fyrir ákvörðun sinni um að víkja frá áliti dóm­nefndar um skipan dóm­ara við Lands­rétt. Því ætti að fresta skip­an­inni, segir Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata.

Jón Þór fyrir miðju.
Jón Þór fyrir miðju. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Farsælla er fyrir dóms­kerfið og réttar­ör­yggi í land­inu að Alþingi sam­þykki til­lögu um að fresta skipan dóm­ara í Lands­rétt um mánuð svo að dóms­mála­ráð­herra geti gert grein fyrir sínum sjón­ar­miðum, segir Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis.

[links]Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hóf fund sinn klukkan 10 í morgun, en nefndin fund­aði meira og minna í allan gær­dag vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt. Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vék frá nið­ur­stöðu sér­stakrar hæfn­is­nefndar, og skipti út fjórum umsækj­endum í til­lögu sinni að dóm­ara­skip­un­inni.

Jón Þór lét bóka á fund­inum að sér­fræð­ingar sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hafi fengið á fundi sína hafi sagt að það myndi grafa undan trausti á dóms­kerf­inu ef dóms­mála­ráð­herra sýnir ekki að ákvörðun hennar sé reist á rann­sókn um málið.

„Þar sem ráð­herra hefur séð efni til að víkja frá áliti dóm­nefndar er óhjá­kvæmi­legt eins og segir í dómi 412/2010 að ákvörðun hennar sé reist á rann­sókn, þar sem meðal ann­ars er tekið til­lit til fyr­ir­mæla ráð­herra í reglum um störf dóm­nefnd­ar­innar um það atriði varð­andi umsækj­endur sem ráða skulu hæfn­is­mati, og tryggja að sér­þekk­ing njóti þar við í sam­bæri­legu mæli og við störf dóm­nefnd­ar­innar. Sér­fræð­ingar sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fékk á fund sögðu að ann­ars myndi það grafa undan trausti á dóms­kerf­inu. Farsælla er fyrir dóms­kerfið og réttar­ör­yggi í land­inu að Alþingi sam­þykki til­lögu sem liggur fyrir nefnd­inni um að fresta skipun dóm­ara í Lands­rétt frá 1. júní til 1. júlí, til að gefa dóms­mála­ráð­herra ráð­rúm til að senda Alþingi rök­stuðn­ing sem full­nægir áður­nefndum dómi Hæsta­réttar," segir í bókun Jóns Þórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár