Smári: „Vá. Þetta skjal átti alls ekki að koma fyrir sjónir almennings“

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, segir að það geti orðið erfitt fyri dóm­ara við Lands­rétt að njóta trausts ef ekki næst sátt um skipan dóm­ara.

„Vá. Þetta skjal átti alls ekki að koma fyrir sjónir almenn­ings. Vandinn nú er sá að ef ein­hver önnur nið­ur­staða verður en þessi röð sem mats­nefndin lagði upp með, og sú nið­ur­staða ekki algjör­lega rök­studd þannig að allur vafi yrði tekin af og afgreidd í fullri sátt, þá mun vera afar erfitt fyrir suma dóm­ara við Lands­rétt að starfa með það traust sem gerð er krafa um til dóm­stóla.“

Þetta segir Smári McCarthy, þing­maður Pírata, á Facebook síðu sinni, og vitnar til fréttar Kjarnans frá því í gær, þar sem gögn hæf­is­nefndar um mat á hæfi umsækj­enda um stöðu dóm­ara við Lands­rétt voru birt. Hann segir jafn­framt að það sé í sjálfu sér ekki slæmt, að gögn séu gerð opin­ber, en úr því ferlið var lokað í upp­hafi þá hafi þetta ekki átt að ger­ast. 

Eins og greint var frá á vef Kjarnans í gær­kvöldi eru Davíð Þór Björg­vins­son, Sig­urður Tómas Magn­ús­son og Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, þrjú hæfust að mati hæf­is­nefndar um mat á umsækj­endum um starf dóm­ara við Lands­rétt. Davíð Þór var með ein­kunn­ina 7,35, Sig­urður Tómas 6,775 og Ragn­heiður 6,65, sam­kvæmt gögnum sem Kjarn­inn hefur undir höndum og birt voru með frétt­inn­i í gær­kvöldi.

Sam­kvæmt lista hæf­is­nefnd­ar­innar var Ást­ráður Har­alds­son númer 14 á list­an­um. Einn þeirra sem Sig­ríður Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, gerir til­lögu um að verði á meðal 15 dóm­urum við Lands­rétt er Jón Finn­björns­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­nefnd­ar­inn­ar. Þá er Eiríkur Jóns­son númer 7 á lista hæf­is­nefnd­ar­inn­ar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara.

Fyrr­nefndir Ást­ráður Har­alds­son og Eiríkur Jóns­son, ásamt Jóhann­esi Rún­ari Jóhanns­syni og Jóni Hösk­ulds­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­son og Jón Finn­björns­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara við Lands­rétt eru Aðal­steinn E. Jón­as­son, Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ás­mundur Helga­son, Dav­íð Þór Björg­vins­son, Her­vör Þor­valds­dótt­ir, Ing­veldur Ein­ars­dótt­ir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finn­björns­son, Krist­björg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir, Sig­urður Tómas Magn­ús­son, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Þor­geir Ingi Njáls­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár