Davíð Þór, Sigurður Tómas og Ragnheiður efst á lista

Samkvæmt mati hæf­is­nefndar um mat á umsækj­endum um starf dóm­ara við Lands­rétt var einn þeirra sem ráð­herra gerir til­lögu um í starfið númer 30 hjá nefnd­inni.

Davíð Þór Björg­vins­son, Sigurður Tómas Magn­ús­son og Ragn­heiður Harð­ar­dóttir, voru þrjú hæfust að mati hæf­is­nefndar um mat á umsækj­endum um starf dóm­ara við Lands­rétt. Davíð Þór var með ein­kunn­ina 7,35, Sigurður Tómas 6,775 og Ragn­heiður 6,65, sam­kvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum og birt erum með frétt­inni.

Fundi stjórn­skip­unar-og eft­ir­lits­nefndar Alþingis þar sem fjallað var um skipan dóm­ara við Lands­rétt lauk í kvöld án nið­ur­stöðu, en einn þeirra sem met­inn var meðal 15 hæf­ustu, Ástráður Har­alds­son hrl., sagði til­lögu ráð­herra um skipan dóm­ara, þar sem fjórar breyt­ingar voru gerðar á mati hæf­is­nefndar, ekki vera í sam­ræmi við lög. Undir þetta tók Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags Íslands.

Samkvæmt lista hæf­is­nefnd­ar­innar var Ástráður Har­alds­son númer 14 á list­anum. Einn þeirra sem Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, gerir til­lögu um að verði á meðal 15 dóm­urum við Lands­rétt er Jón Finn­björns­son en hann er númer 30 á lista hæf­is­nefnd­ar­innar. Þá er Eiríkur Jónsson númer 7 á lista hæf­is­nefnd­ar­innar, en hann er ekki á meðal þeirra 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara.

Fyrr­nefndir Ástráður Har­alds­son og Eiríkur Jónsson, ásamt Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni og Jóni Hösk­ulds­syni hlutu ekki náð fyrir augum ráð­herr­ans heldur þau Arn­fríður Ein­ars­dóttir, Ragn­heiður Braga­dóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finn­björns­son.

Þau 15 sem ráð­herra gerir til­lögu um í stöðu dóm­ara við Lands­rétt eru Aðal­steinn E. Jónas­son, Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Davíð Þór Björgvins­son, Hervör Þor­valdsdóttir, Ing­veldur Einarsdóttir, Jóhannes Sig­urðs­son, Jón Finnbjörns­son, Kristbjörg Steph­en­sen, Oddný Mjöll Arnardóttir, Ragn­heiður Bragadóttir, Ragn­heiður Harðardóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Vilhjálmur H. Vilhjálms­son og Þorgeir Ingi Njálsson.

Sigríður kom bæði á fund nefnd­ar­innar í morgun og eftir hádegið. Minni­hlut­inn í nefnd­inni telur vafa leika á því að til­laga hennar um þá 15 ein­stak­linga sem skipa skulu stöður dóm­ara við Lands­rétt stand­ist lög þar sem ráð­herra leggur til að fjórir ein­stak­lingar verði skip­aðir sem ekki voru á lista hæf­is­nefndar yfir þá hæf­ustu til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Á meðal þeirra sem komu á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar voru for­maður hæfn­is­nefnd­ar­innar, Gunn­laugur Claessen, Björg Thoraren­sen, pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti, Reimar Pét­urs­son, for­maður Lög­manna­fé­lags­ins og Ingi­björg Þor­steins­dóttir, vara­for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands.

Hér með­fylgj­andi má sjá hvernig hæf­is­nefndin horfði til reynslu umsækj­enda, og hvernig hún var metin.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár