Sakar dómsmálaráðherra um „tilraun til ólögmætrar embættisfærslu“

Ástráður Har­alds­son hrl. telur ráð­herra þurfa að skipa dóm­ara úr hópi þeirra hæf­ustu, og að til­raun ráð­herra til ann­ars stand­ist ekki lög.

Til­raun Sig­ríðar H. And­ers­sen dóms­mála­ráð­herra til að afla sér heim­ild­ar Alþing­is með til­lögu sinni til skip­un­ar í emb­ætti 15 dóm­ara í Lands­rétt er „til­raun til ólög­mætrar emb­ætt­is­færslu“, að mati Ástráðs Har­alds­sonar hrl. og fyrr­ver­andi for­manns lands­kjör­stjórn­ar.

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram til­lögu sína að dóm­urum við Lands­rétt, sem á að taka til starfa í byrjun næsta árs. Sig­ríður leggur til við Alþingi að sjö konur og átta karlar taki sæti sem dóm­ar­ar. Málið fer til umfjöll­unar í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is. „Sú veit­ing emb­ætta sem liggur fyrir fyrir dóms­mála­ráð­herra er án for­dæma. Er aug­ljós­lega ein­stakt að skipa þurfi fimmtán dóm­ara í senn við stofnun nýs dóm­stóls. Umsækj­endur hafa fjöl­breyttan bak­grunn. Að mati dóms­mála­ráð­herra er það jákvætt og gefur til­efni til þess að huga sér­stak­lega að yfir­bragði hins nýja dóm­stóls með til­liti til þeirrar þekk­ingar og reynslu sem þar verð­ur,“ segir í bréfi Sig­ríðar til Unnar Brár Kon­ráðs­dótt­ur, for­seta Alþing­is.

Til­laga Sig­ríðar er tölu­vert frá­brugðin þeirri til­lögu sem dóm­nefnd lagði fram fyrir ráð­herr­ann fyrr í þessum mán­uði. Fjórir ein­stak­ling­ar, sem nefndin lagði til að yrðu dóm­ar­ar, kom­ast ekki á lista Sig­ríð­ar. Það eru fyrr­nefndur Ást­ráður, Eiríkur Jóns­son, Jóhannes Rúnar Jóhanns­son og Jón Hösk­ulds­son. Í þeirra stað koma Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, Ásmundur Helga­son, Jón Finn­björns­son og Ragn­heiður Braga­dótt­ir.

Í bréfi sem Ástráður rit­ar for­seta Aþing­is í dag seg­ir að þau frá­vik sem ráð­herra geri á til­lögu dóm­nefnd­ar­inn­ar upp­fylli á eng­an hátt kröf­ur sem gera verði varð­andi skip­an dóm­ara og sem umboðs­maður Alþing­is og dóm­stól­ar hafi lagt til grund­vall­ar.

Dæmi um þetta sé þegar að finna í dómi Hæsta­rétt­ar í máli Guðmund­ar Krist­jáns­son­ar gegn rík­inu og Árna M. Mat­hiesen frá ár­inu 2011, varð­andi veit­ingu emb­ætt­is hér­aðs­dóm­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár