Sjerpar nýta súrefni á skilvirkari hátt en þeir sem lifa nær sjávarmáli

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir vann þrek­virki og komst á tind Everest nýverið fyrst íslenskra kvenna. Með í för var sjerpi. Sá hópur býr yfir náð­ar­gáfu sem nýt­ist ákaf­lega vel við tinda­klif.

Í vik­unni vann Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir það stór­kost­lega afrek að verða fyrst íslenskra kvenna til að kom­ast á tind Everest. Það er þrek­virki sem fæstir Jarð­ar­búar koma til með að vinna á lífs­leið­inni, ekki síst vegna tak­mark­ana lík­ama okkar til að þríf­ast í svo mik­illi hæð yfir sjáv­ar­máli.

Einn hópur fólks hefur þó þróað með sér eig­in­leika sem gera þeim auð­veld­ara að þríf­ast hátt upp í fjöll­unum þar sem and­rúms­loftið er súr­efn­issnauð­ara en við sem lifum nær sjáv­ar­máli eigum að venj­ast. Þeir kall­ast sjerpar og lifa flestir þeirra í fjall­lendi Nepal.

Í grein sem birt var fyrr í vik­unni er fjallað um nið­ur­stöður rann­sóknar sem varpa ljósi á það hvernig sjerpar ná að forð­ast háfjalla­veiki og súr­efn­is­skort.

Tveir hópar, 10 „lág­lend­ingar“ sem flestir voru Evr­ópskir vís­inda­menn og 15 sjerpar, gengu upp í grunn­búðir Everest sem eru í 5.300 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Áður en ferðin hófst voru tekin blóð og vöðva­sýni úr þátt­tak­endum ýmist í London eða Kathmandu í Nepal til að fá grunn­gildi fyrir efna­skipti þeirra á lág­lendi. Eftir að komið var í grunn­búð­irnar voru sýni tekin á ný og síðan aftur eftir tveggja mán­aða dvöl í búð­unum.

Sjerp­arnir skáru sig nokkuð frá hinum hópnum þegar hvat­berar, orku­ein­ingar frumna okkar, voru bornir saman. Hvat­berar sjerpanna voru skil­virk­ari í fram­leiðslu á ATP, sem er orku­ríkt efna­sam­band í frumum lík­am­ans.

Þar að auki höfðu sjerp­arnir lægri fitu­ox­un­ar­gildi sem bendir til þess að þeir eigi auð­veld­ara með það að mynda orku úr sykrum en við. Fituoxun er ekki eins skil­virk og oxun á sykrum þar sem hún nýtir meira súr­efni og gæti þessi eig­in­leiki þeirra því nýst þegar súr­efni er af skornum skammti.

Þegar leið á rann­sókn­ina breytt­ust gildi sjerpanna lítið. Lág­lend­ing­arnir aðlög­uð­ust aftur á móti aðstæðum og urðu lík­amar þeirra hægt og bít­andi betri í starfa við þessar nýju aðstæður.

Skýr­ing­una á þessum mun á milli hópanna telja vís­inda­menn að megi að hluta til rekja til breyti­leika í geni sem nefn­ist PPARA (per­ox­is­ome proli­fer­ator-activated receptor gene) og velur fyrir glúkósa fremur en fitu til að mynda orku. Þeir benda á að mun­ur­inn liggi ekki aðeins í þessu eina geni en telja að það gefi sjerp­unum for­skot á þessu sviði.

Auk breyti­leika í PPARA gen­inu virt­ust sjerp­arnir hafa betra blóð­flæði í gegnum háræðar lík­am­ans. Háræða­kerfi þeirra virt­ist einnig vera viða­meira en lág­lend­ing­anna sem gæti stuðl­aða að betri súr­efn­is­flutn­ingi til vefja lík­am­ans.

Vonast er til þess að þessi nýja þekk­ing geti í fram­tíð­inni hjálpað vís­inda­mönnum að þróa nýjar leiðir til að með­höndla súr­efn­is­skort í vefjum lík­am­ans (e. hypoxia) sem hrjáir ekki aðeins fjallagarpa heldur einnig fjöl­marga sjúk­linga um allan heim.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sam­an­stóð af vís­inda­mönnum frá Cambridge háskóla, Southampton háskóla, Uni­versity College London og Innsbruck háskóla og birt­ust nið­ur­stöð­urnar í tíma­rit­inu Proceedings of National Academy of Sciences.

Fréttin birt­ist líka á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár