Ný getnaðarvörn hægir á sæðisfrumum

Mik­il­vægt er að kynin deili ábyrgð á getn­að­ar­vörnum, sem er að mestu á herðum kvenna í dag. Vís­inda­hópar vinna að því að finna leiðir til að hafa áhrif á frjó­semi karla, án þess þó að fara í óaft­ur­kræfar aðgerðir.

Getn­að­ar­varnir hafa lengi vel legið að mestu á herðum kvenna að miklu leyti vegna þess að æxl­un­ar­færi þeirra eru mun með­færi­legri þegar hafa á áhrif á æxl­un­ar­takt­inn. En það getur skipt bæði kynin miklu máli að geta dreift ábyrgð­inni og því hafa vís­inda­hópar lagt mikið kapp á að finna áhrifa­ríka leið til að hafa áhrif á frjó­semi karla, án þess þó að fara í óaft­ur­kræfar aðgerðir.

Rann­sókn­ar­hópur við Boston Children’s Hospital hefur unnið að rann­sókn sem gæti skilað nýrri teg­und getn­að­ar­varna fyrir karla á mark­að­inn. Getn­að­ar­vörnin snýr að því að stjórna sund­hraða sæð­is­frumn­anna.

Halinn á sæð­is­fru­munum not­ast við jóna­göng sem kall­ast CatSper til að auka kraft sinn til að ýta hausnum inni í egg­frumuna. Þegar sæð­is­frumur eru í návígi við kven­horm­ónið pró­gesterón binst horm­ónið við þessi jóna­göng og virkjar þau þannig að sæð­is­frum­urnar fá auk­inn hreyfi­kraft. Það eru þó nokkrir þættir sem hafa hamlandi áhrif á þessu göng, t.d. testó­sterón og stress­hormón.

Rann­sókn­ar­hópnum þótti ekki fýsi­legt að nota slík hormón vegna þeirra auka­verk­anna sem þau gætu haft. Því var farið í að leita að sam­eindum í plöntum sem gætu unnið svip­aða vinnu.

Lupeol er efni sem finnst meðal ann­ars í jarð­ar­berjum og ólífum. Þetta efni sýnir sömu bindi­eig­in­leika við CatSper og hamlandi hormón lík­am­ans gera. Það þýðir að sé lupeol látið bind­ast við jóna­göngin CatSper þá virka þau ekki sem skyldi og sæð­is­fruman fær ekki auk­inn kraft til að synda.

Enn sem komið er hafa þessar til­raunir bara farið fram á sam­einda­stigi. Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig rann­sóknir á frumum, dýrum og mönnum munu fara. Ef lupeol gefur jafn góða raun í klínískum prófum gætum við ekki ein­ungis verið að horfa á nýja getn­að­ar­vörn fyrir karl­menn heldur einnig nýja neyð­ar­getn­að­ar­vörn, sem hefur ekki áhrif á egg sem þegar hefur verið frjóvgað.

Fréttin birt­ist líka á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár