Afar há gildi PCB efna í háhyrningnum Lulu vekja óhug

PCB efni eru svokölluð þrá­virk líf­ræn efni. Þau voru mikið notuð í fram­leiðslu upp úr fjórða ára­tug síð­ustu aldar og voru losuð út í hafið með frá­rennsli frá verk­smiðjum. Í dag hefur notkun efn­anna verið bönnuð en áhrif­anna gætir enn.

Háhyrn­ingar eru sjald­gæf sjón við strendur Bret­lands og telja í raun aðeins átta dýr. Þar til í byrjun jan­úar voru háhyrn­ing­arnir níu en snemma í mán­uð­inum rak kýrin Lulu á land eftir að hafa flækst í veið­ar­færum. Nú hefur ýtar­leg rann­sókn á hræi Lulu leitt í ljós að óhemju há gildi af PCB efnum höfðu safn­ast upp í lík­ama hennar.

Í skýrslu um rann­sókn­ina á Lulu kom í ljós að í spiki hennar var að finna 957 millígrömm af PCB efnum fyrir hvert kíló af spiki. Þetta er marg­falt yfir mörkum eitr­un­ar­á­hrifa auk þess að vera hæstu gildi sem mælst hafa í sjáv­ar­spen­dýri fram að þessu.

PCB efni eru svokölluð þrá­virk líf­ræn efni. Þau voru mikið notuð í fram­leiðslu upp úr fjórða ára­tug síð­ustu aldar og voru losuð út í hafið með frá­rennsli frá verk­smiðjum. Í dag hefur notkun efn­anna verið bönnuð en áhrif­anna gætir enn.

Efnin brotna hægt niður í umhverf­inu og safn­ast því fyrir í fæðu­keðj­unni. Því ofar sem komið er í fæðu­keðj­una því meira magn finnst og hafa eldri dýr almennt meira af upp­söfn­uðum PCB efnum en þau sem yngri eru. Sé mikið af upp­söfn­uðu PCB í lík­ama dýra geta efnin haft nei­kvæð áhrif á heilsu dýrs­ins og geta til dæmis aukið líkur á krabba­meini og haft áhrif á frjó­semi.

Eftir rann­sóknir á Lulu kom í ljós að þrátt fyrir að vera 20 ára og hafa átt að vera á hápunkti frjó­semi sinnar hafði hún aldrei borið kálf. Þetta þykir benda til þess að eitr­un­ar­á­hrif PCB efn­anna hafi valdið ófrjó­semi hjá háhyrn­ingnum.

Ekki hefur fæðst káflur hjá bresku háhyrn­ing­unum á síð­ustu 23 árum og veldur þessi nið­ur­staða vís­inda­mönnum því miklum áhyggjum. Þeir telja að það kunni að vera að allur hóp­ur­inn sé ófrjór sem gæti þýtt enda­lok stofns­ins á svæð­inu.

Fréttin birt­ist líka á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár