Gervi-móðurkviður gæti aukið lífslíkur fyrirbura

Gervi-móð­ur­kviður hefur verið hann­aður með það í huga að hann væri sem lík­astur aðstæðum í legi móð­ur­innar. Gæti hjálpað fyr­ir­burum í fram­tíð­inni.

Vís­inda­menn hafa þróað tækni sem heldur lömbum sem fæðst hafa fyrir tím­ann lif­andi í nokkrar vikur í eins­konar "plast­poka­legi" sem líkir eftir aðstæðum í móð­ur­kviði. Vonir standa til að í fram­tíð­inni verði hægt að nýta tækn­ina til að hjálpa fyr­ir­burum að þroskast áfram utan móð­ur­kviðs.

Í dag er fyr­ir­burum komið fyrir í hita­kössum og önd­un­ar­vélum til að auka líkur á því að börnin nái að þroskast eðli­lega utan móðu­kviðs. Þrátt fyrir þá tækni sem er til staðar í dag eru lífslíkur barna sem fæð­ast við 23 viku aðeins um 15%, 55% við 24 viku og 80% við 25 viku. Það var því ætlun rann­sókn­ar­hóps­ins þróa tækni með það í huga að auka lífslíkur barna sem fæð­ast langt fyrir tím­ann og hjálpa þeim að halda áfram að þroskast og vaxa á sem eðli­leg­astan hátt.

Gervi-móð­ur­kvið­ur­inn var hann­aður með það í huga að hann væri sem lík­astur aðstæðum í legi móð­ur­innar. Í honum er að finna blöndu af volgu vatni og söltum sem svipar til legvatns og gegnir því hlut­verki að vernda fóstrið. Vatns­blandan er end­ur­nýjuð reglu­lega til að halda blönd­unni hreinni.

Til að fá nægi­legt súr­efni í gegnum nafla­streng­inn var tæki sem tók að sér hlut­verk leg­kök­unnar tengt var við nafla­streng­inn. Hjarta lambs­ins pump­aði því blóði úr lík­ama sínum í tækið sem end­ur­nýj­aði það og sendir það aftur í gegnum nafla­streng­inn til lambs­ins.

Lömbin sem notuð voru í rann­sókn­inni voru tekin úr móð­ur­kvið við svipað þroska­stig og manns­barn á 23 viku. Lömbin virt­ust þroskast eðli­lega í pok­anum og voru fjar­lægð úr honum eftir 28 daga, þegar lungu þeirra höfðu þroskast nægi­lega vel.

Til að kanna áhrif tæk­is­ins voru lömbin aflífuð eftir að þau voru fjar­lægð úr pok­anum til að hægt væri að skoða heila þeirra og líf­færi og meta þroska þeirra. Síðar í rann­sókn­ar­ferl­inu fengu lömbin að lifa lengur og virt­ust þau þroskast á eðli­legan hátt.

Þessi nýja tækni er ekki galla­laus og fylgir henni til dæmis aukin hætt á sýk­ingu, sam­an­borið við leg móð­ur­innar auk þess sem erfitt er að áætla rétt magn horm­óna og nær­ing­ar­efna til að dæla inn í pok­ann. Þrátt fyrir að áskor­an­irnar séu margar vekja nið­ur­stöð­urnar vonir um að tæknin geti nýst til að auka lífslíkur fyr­ir­bura í fram­tíð­inni. Næstu skref fel­ast í því að prófa tækn­ina áfram á dýrum en enn er langt í að tæknin geti nýst börnum.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru birtar í tíma­rit­inu Nature Communications fyrr í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár