Ríkisstofnanir fá þriðjung úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Í síð­ustu úthlutun úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða fengu ríkið og stofn­anir þess tæp­lega þriðj­ung úthlut­un­ar­fjár. Stjórn­völd ætla að breyta þessu svo að rík­is­að­ilar séu ekki að sækja pen­inga úr sam­keppn­is­sjóðum á vegum rík­is­ins.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, hefur kynnt frumvarp að breytingum á framkvæmdasjóðnum.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, hefur kynnt frum­varp að breyt­ingum á fram­kvæmda­sjóðnum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ríkið og stofn­anir þess fengu þriðj­ung þess fjár sem úthlutað var úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða í vik­unni. Sveit­ar­fé­lög fengu lang­mest, um 66 pró­sent og einka­að­ilar fengu aðeins þrjú pró­sent, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarnans.

Ríkið og stofn­anir rík­is­ins fengu úthlutað rúm­lega 183 millj­ónum króna úr sjóðnum, sem er á fjár­lögum. Sveit­ar­fé­lög fengu ríf­lega 400 millj­ónir króna og einka­að­ilar tæp­lega 20 millj­ónir.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur kynnt drög að frum­varpi um breyt­ingar á sjóðnum, sem myndi koma í veg fyrir að ríkið sjálft væri að sækja um styrki í sjóði sem það eru á fjár­lögum. „Telja verður að óheppi­legt sé að rík­is­að­ilar þurfi eða geti sótt fjár­mögnun slíkra fram­kvæmda í sam­keppn­is­sjóð eins og Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða,“ eins og segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Þannig mun hlut­verk Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða breyt­ast til að koma í veg fyrir þessa skörun, og gert ráð fyrir að sjóð­ur­inn sinni aðeins verk­efnum á ferða­manna­stöðum í eigu eða umsjón sveit­ar­fé­laga og einka­að­ila.

Til þess að standa að upp­bygg­ingu á ferða­manna­stöðum í eigu og umsjá rík­is­ins verður ný lands­á­ætlun umhverf­is­ráð­herra notuð, en lands­á­ætl­unin er um upp­bygg­ingu inn­viða til verndar nátt­úru og menn­ing­ar­sögu­legum minjum vegna álags af völdum ferða­mennsku og úti­vistar. Lands­á­ætl­unin verður lang­tíma­á­ætlun en hins vegar verður lögð fram skamm­tíma­á­ætlun fyrir þetta ár. Þessi áætlun verður fjár­mögnuð beint úr rík­is­sjóði á fjár­lögum.

Þá verður kveðið á um það í lögum, sam­kvæmt frum­varp­inu, að ferða­manna­staðir sem hljóta úthlutun úr Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða skulu vera opnir gjald­frjálsri umferð almenn­ings, sem er í sam­ræmi við önnur lög. Þó verður land­eig­endum áfram heim­ilt að taka gjald fyrir veitta þjón­ustu á staðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár