Fyrsta þrívíddarlíkanið af erfðamengi einstakra frumna

Með þrí­vídd­ar­tækni má sjá hvernig litn­ingar raða sér upp í kjarna frumu og hvernig þeir stilla sér upp til að virkja og óvirkja ákveðnar frumur.


Vís­inda­mönnum hefur tek­ist í fyrsta sinn í sög­unni að útbúa þrí­vídd­ar­líkan af upp­bygg­ingu erfða­mengis músa í ein­stökum frumum. Með tækn­inni má sjá hvernig litn­ingar raða sér upp í þrí­vídd í kjarna frumunnar og hvernig þeir stilla sér upp til að virkja og óvirkja ákveðnar frumur.

Í rann­sókn­inni, sem birt var í tíma­rit­inu Nature, skoð­uðu vís­inda­menn myndir af erfða­mengi stofn­frumna músa á myndum í afar hárri upp­lausn. Tækni sem nefn­ist Hi-C var síðan notuð til að reikna út upp­bygg­ingu erfða­mengis frumunnar út frá stað­setn­ingu erfða­efn­is­ins (DNA). Vís­inda­menn­irnir gátu síðan raðað saman þrí­víðum lík­önum og sann­reynt hvaða gen voru virk hverju sinni.

Enn sem komið er hefur tæknin ekki verið prófuð á manna­frumum en vonir standa til að með því að þróa tækn­ina frekar verði komið tól sem gæti nýst til að skilja hvernig dýr vaxa og hvernig gallar í virkni frumna leiðir til sjúk­dóma, til dæmis krabba­mein.

[adspot]

Hér að neðan má sjá tvö mynd­bönd sem sýna hvernig þrí­vídd­ar­lík­önin líta út. Í því fyrra má sjá hvar 20 mis­mun­andi litn­ingum hefur verið gef­inn sinn litur og hvernig þeir raða sér upp í frumunni. Seinna mynd­bandið sýnir síðan svæði á litn­ing­unum þar sem gen eru virk í bláum lit og svæði þar sem þau eru minna virk í gulu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár