Svona verndar kaffi okkur fyrir elliglöpum

Kaffi gæti gagn­ast við að vernda tauga­frumur gegn stressi og til að losa tauga­kerfið við prótin sem eru algeng í kerfum Alzheimer's sjúk­linga.

Fjöl­margar rann­sóknir hafa verið gerðar á koff­íni, örvandi efn­inu sem finnst m.a. í kaffi. Í mörgum til­fellum sýnir koffín jákvæð áhrif á lík­aman meðan í önnur skipti virð­ast áhrifin vera nei­kvæð. Að öllum lík­indum eru áhrifin að með­al­tali ómerkj­an­leg þegar far­alds­fræði­rann­sóknir sýna ekki ein­hljóma fylgni. Það er þó ekki þar með sagt að ekki geti verið áhuga­vert að skoða áhrifin í meiri upp­lausn, eins og rann­sókn­ar­hópur við Indiana Uni­versity hefur nú gert.

Rannsókn hóps­ins var birt í Scientific Reports í þessum mán­uði. Markmið rann­sókn­ar­innar var að skoða áhrif fjöl­margra efna (1280 efna sam­tals) á ensím sem hefur vernd­andi áhrif gegn elli­glöpum. Ensímið heitir NMNAT2 (Nicotinamide mononucleotide adenylyl trans­fer­ase 2) og hlut­verk þess felst bæði í því að vernda tauga­frumur gegn stressi og að losa tauga­kerfið við prótín sem hafa ekki fallið í rétt bygg­inga­form. Slík prótín eru einmitt algeng í tauga­kerfi Alzheimer's sjúk­linga svo dæmi sé tekið.
Það skiptir okkur sem sagt máli að NMNAT2 ens­ímið sé virkt til þess að losa okkur við óæski­leg prótín og við­halda tauga­kerf­inu. Af þeim 1280 efnum sem prófuð voru í rann­sókn­inni sýndu 24 jákvæða virkni á NMNTA2. Eitt þess­ara efna var hið marg­róm­aða efni, koffín.

Til að skoða enn frekar hvort virknin væri raun­veru­leg, en ekki ein­ungis til staðar í frumum í rækt, gerði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn til­raun á músum sem venju­lega hafa lítið magn af NMNTA2 ens­ím­inu. Þegar þessum músum var gefið koffín jókst tján­ingin á NMNTA2 svo magn ens­íms­ins varð á pari við magn þess í venju­legum músum.

Hvort aukin kaffi­drykkja sé þess vegna hentug til að koma í veg fyrir elli­glöp skal hér ósagt látið enda gætu sér­fræð­ingar sem ein­blína á önnur kerfi lík­am­ans verið mjög ósáttir við slíkar ráð­legg­ingar. Hins vegar skiptir það miklu máli að skil­greina hvernig hægt er að hafa áhrif á þetta mik­il­væga ensím. En með því að skilja ferl­ana sem eiga sér stað í lík­am­anum er auð­veld­ara að skilja hvers vegna þeir fara úr skorðum og einnig hvernig er hægt að bregð­ast við því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár