Umhverfisráðherra Þýskalands bannar kjöt á opinberum viðburðum

Þýska­land vinnur að því að gera landið umhverf­is­vænna og nú hefur kjöt og fiskur verið bann­aður á opin­berum við­burðum umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Ráðu­neytið von­ast til þess að með þessu sé athygli vakin á sjáf­bærri neyslu mat­væla.

Þýska­land, eitt þeirra landa sem vinnur hvað harð­ast að því að minnka umhverf­is­á­hrif sín, hefur stigið enn eitt skrefið í átt að því að gera landið umhverf­is­vænna. Umhverf­is­ráð­herra lands­ins, Barbara Hendricks, hefur bannað kjöt og fisk á opin­berum við­burðum ráðu­neyt­is­ins og verður því ein­göngu leyfi­legt að bjóða upp á græn­met­is­fæði.

Í yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að ráðu­neytið sé „ekki að segja neinum hvað þeir eigi að borða” fremur vilji það setja gott for­dæmi vegna þess að græn­met­is­fæða er umhverf­is­vænni en kjöt og fiskur. Ráðu­neytið von­ast til þess að með þessu sé athygli vakin á sjáf­bærri neyslu mat­væla.

Kjöt og mjólk­ur­fram­leiðsla hefur mikil umhverf­is­á­hrif og er einn stærsti þátt­ur­inn í kolefn­islosun á heims­vísu. Fram til þessa hafa rann­sóknir sýnt fram á að minni kjöt­neysla dragi úr umhverf­is­á­hrifum en auk þess hefur hún jákvæð áhrif á heilsu­far fólks.

Ekki eru allir sam­mála um ágæti kjöt­banns­ins og hefur það hlotið mikla gagn­rýni frá pólítískum and­stæð­ingum Hendricks. Meðal ann­ars hefur bannið verið kallað hræsni þar sem að það nær aðeins til við­burða en banni ekki kjöt­neyslu alfarið í ráðu­neyt­inu. Einnig telja ein­hverjir að með bann­inu sé verið að hafa óþarf­lega mikið vit fyrir fólki.

Þrátt fyrir gagn­rýn­ina stendur umhverf­is­ráðu­neytið fast á sínu og sagði tals­maður Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins, Michael Schroeren, í sam­tali við The Guardian að bannið væri tákn­rænt skref þar sem að ráðu­neytið vilji stunda það sem það boðar sjálft.

Fréttin birt­ist einnig á hvat­inn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár