Algeng aukaefni í matvöru geta skaðað meltingarveginn

Efni sem er nokkuð algent að notað sé í máln­ingu tann­krem og nammi geta skaða melt­ing­ar­veg­inn. Með því að snið­ganga unna mat­vöru og sæl­gæti er hægt að tak­marka inn­töku efn­is­ins.

Flest efni sem sett eru í mat­vöru hafa und­ir­geng­ist gríð­ar­lega margar rann­sóknir til að stað­festa að öruggt sé að borða þær. Efni sem talin eru örugg fá sem dæmi svokölluð E-númer sem bera vitni um það að búið er að athuga hvort efnin geti verið skað­leg mann­inum. Við vitum þess vegna að efni sem bætt er útí mat­inn okkar án aug­ljósar ástæðu skaða okkur ekki, en til­gangur efn­anna er í mörgum til­fellum að breyta áferð mat­ar­ins eða auka geymslu­þol hans.

Fram­leið­endum ber svo skylda til að taka fram á umbúðum mat­væl­anna hvaða efni hafa verið sett í mat­vælin. Á þessu er þó und­an­tekn­ing því ef efnið er í nægi­lega litlu magni í mat­væl­unum þarf ekki að telja það upp sem inni­halds­efni. Þetta á við um efni sem hafa verið kölluð nanoparticles eða nanóefni. Þau eru sem sagt svo lít­ill hluti mat­væl­anna að það mælist í nanóein­ingum.

Eitt þess­ara efna er tít­an­íum díoxíð, en nokkuð algengt er að nota það efni í nán­ast allt, þ.m.t. máln­ingu, tann­krem og nammi. Í nýrri rann­sókn sem unnin var við Bing­hamton Uni­versity voru áhrif tít­an­íum díoxíðs skoðuð. Í rann­sókn­inni var not­ast við manna-ristilfrumur. Ætið sem frum­urnar fengu var ann­ars vegar blandað með tít­an­íum díoxíð í stutta stund, þ.e. 4 klst eða til lengri tíma, þ.e. í 5 daga.

Í ljós kom að þegar frum­urnar voru lengi í snert­ingu við efnið hafði það víð­tæk áhrif á frum­urnar. Frum­urnar töp­uðu að hluta virkni sinni til að halda úti óæski­legum efnum og sýklum, þær sýndu nokk­urs konar stressvið­brögð og töp­uðu auk þess getu sinni til að taka upp efni á borð við sink og járn.

Samkvæmt þess­ari rann­sókn ættum við því að reyna að tak­marka eins og við getum inn­töku okkar á tít­an­íum díoxíði. Efnið er nokkuð algengt í mat­vælum en með því að snið­ganga að miklu leyti unna mat­vöru og sæl­gæti þá tak­mörkum við inn­töku okkar á efn­inu til muna.

Þó við­brögð frumn­anna sem hér voru not­aðar hafi verið stór­vægi­leg er ekki hægt að full­yrða um hvort áhrifin væru þau sömu ef um frumur innan lík­ama væri að ræða. Þessar nið­ur­stöður sýna okkur þó mik­il­vægi þess að skoða áhrif allra efna sem notuð eru í mat­væli, alveg sama í hvaða magni þau eru.

Fréttin birt­ist líka á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár