Vonast til að kaupsamningur vegna 365 verði kláraður fyrir marslok

Rekstr­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags Vodafone dróst saman á síð­asta ári. Félagið ætlar að kaupa ljós­vaka- og fjar­skipta­hluta 365 til að styrkja sam­keppn­is­stöðu sína. Gangi kaupin eftir verður Ingi­björg S. Pálma­dóttir stærsti einka­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópnum.

Vonir eru bundnar við að vinna við gerð kaup­samn­ings vegna kaupa Fjar­skipta hf., eig­anda Vodafone á Íslandi, á ljós­vaka- og fjar­skipta­hluta 365 miðla ljúki fyrir lok mars­mán­aðar. Gangi það eftir verður leitað sam­þykkis eft­ir­lits­að­ila, meðal ann­ars Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í kjöl­farið. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fjar­skipta sem birtur var í gær.

Þar kom einnig fram að tekjur Fjar­skipta á Íslandi lækk­uðu lít­il­lega á milli áranna 2015 og 2016 og rekstr­ar­hagn­aður dróst saman um 15 pró­sent. Hagnaður Fjar­skipta í fyrra var rúmur millj­arður króna og minnk­aði um 22 pró­sent á milli ára.

Tilkynnt var um kaupin 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Þá sendu Fjar­skipti til­kynn­ingu til Kaup­hallar um að til stæði að kaupa ljós­vaka- og fjar­skipta­hluta 365 miðla á sam­tals átta millj­arða króna. Til stóð að greiða 1,7 millj­arða króna í reiðufé, sömu upp­hæð með útgáfu hluta­bréfa í Fjar­skiptum. Auk þess átti félagið yfir­taka 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum 365 miðla.

Þann 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn var svo send ný til­kynn­ing um að end­ur­samið hefði verið um kaup­verðið. Það var gert eftir að full­trúar Fjar­skipta höfðu fengið aðgang að gögnum um rekstr­ar­stöðu 365 miðla. Nýja kaup­verðið var 1,2 millj­arði krónum lægra og dróst sú upp­hæð frá þeirri sem núver­andi hlut­hafar 365 miðla áttu að fá greidda í reiðufé. Eftir stendur því 500 millj­óna króna pen­inga­greiðsla. Í til­kynn­ing­unni kom fram að til stæði að ljúka kaup­unum á fyrstu vikum árs­ins 2017. Það hefur dreg­ist og nú er stefnt að því að ljúka gerð kaup­samn­ings fyrir mars­lok.

Verði af þeim munu núver­andi hlut­hafar 365 miðla eign­ast allt að 12,2 pró­sent hlut í Fjar­skiptum, ef greitt verður með þegar útistand­andi hlutum. Það þýðir að stærsti eig­andi 365 miðla, aflands­fé­lög í eigu Ingi­bjargar S. Pálma­dóttur, munu eign­ast allt að 8,9 pró­sent í Fjar­skiptum. Það myndi þýða að hún yrði stærsti ein­staki einka­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópi félags­ins. Í dag er það Ursus, félag Heiðars Guð­jóns­sonar, sem á 6,4 pró­sent hlut. Í krafti þess eign­ar­hlutar er Heiðar stjórn­ar­for­maður Fjar­skipta. Stærstu eig­endur Fjar­skipta eru þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður. Sam­an­lagt eiga þeir 32,13 pró­sent eign­ar­hlut í félag­inu.

Ekki komið á hreint hvort frétta­stofa 365 fari með

Það sem Fjar­skipti vill kaupa er sjón­­varps- og útvarps­­­rekstur 365 miðla ásamt fjar­­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins. Það þýðir að sjón­­varps­­stöðvar á borð við Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­ina eru undir ásam­t út­­varps­­stöðv­­um á borð við Bylgj­una, FM957 og X-ið. Eignir sem eru und­an­­skildar eru Frétta­­blaðið og vef­­ur­inn Vísir.is.

Í dag eru frétta­­stofa 365 miðla, sem fram­­leiðir efni í alla miðla fyr­ir­tæk­is, ein ein­ing. Þ.e. hún vinnur efni inn í dag­­blaðið Frétta­­blað­ið, á vef­inn Vísi.is, í sjón­­varps­fréttir Stöðvar 2 og á útvarps­­­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. Hún til­­heyrir því bæði ljós­vaka­hlut­an­um, sem Fjar­skipti vill kaupa, og prent- og vef­hlut­an­um, sem skilin verður eftir í 365 mið­l­­um.

Sam­kvæmt nýj­ustu upp­lýs­ingum frá Fjar­skiptum liggur enn ekki fyrir hvort eða hvaða hluti frétta­stofu 365 fylgi með yfir til Fjar­skipta í kaup­un­um. Það verður hins vegar útfært áður en gengið verður frá kaup­samn­ingi.

Vodafone mun styrkj­ast við kaupin á 365

Íslenskum far­síma­mark­aði er bróð­ur­lega skipt upp í þrennt. Nova er með mesta mark­aðs­hlut­deild (34,4 pró­sent) og Sím­inn með næsta mesta (33,7 pró­sent). Þriðji ris­inn á fjar­­skipta­­mark­aði er síð­an Vodafone. Því hefur tek­ist að halda vel á áskrift­­ar­­fjölda sínum á far­síma­­mark­aði og raunar bætt við sig rúm­lega sex þús­und við­skipta­vinum frá miðju ári í fyrra. Alls ­nemur mark­aðs­hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins 27,5 pró­­sent­­um.

365 sam­ein­að­ist Tali í des­em­ber 2014 og tók þar með yfir far­síma­við­­skipti síð­­­ar­­nefnda ­fyr­ir­tæk­is­ins. Alls eru við­­skipta­vinir 365 í far­síma­­þjón­­ustu nú um 16.335 tals­ins. Það er umtals­vert færri við­­skipta­vinir en Tal var með í árs­­lok 2012, þegar þeir voru um 20 þús­und.

Verði af kaupum Fjar­skipta á 365 miðlum mun Vodafone auka veltu sína um hátt í tíu millj­­arða króna og vera mun betur í stakk búið til að keppa við sinn að­al­keppi­­naut, Sím­ann sem þegar rek­ur víð­­feðm­a ­sjón­varps­­þjón­ustu, á sjón­­varps­­mark­að­i. Sam­an­lagt verða við­skipta­vinir hins sam­ein­aða fyr­ir­tæki á far­síma­mark­aði 136.023 og sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild 31,2 pró­sent. Vodafone verður því ekki langt frá Sím­an­um, sem er með 33,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði, og Nova, sem er með 34,4 pró­sent hlut­deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár