Brasilísk ber gætu hjálpað í baráttunni við sýklalyfjaónæmi

Talið er að allt að 11.000 dauðs­falla í Banda­ríkj­unum megi rekja til sýkla­lyfja­ó­næmra MRSA bakt­ería á ári. Mögulegt er talið að berja­seyði geti hjálpað til í bar­átt­unni við þær.

Vegna vax­andi útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería og hætt­unni sem stafar að þeim kepp­ast vís­inda­menn um allan heim við að leita að nýjum með­ferðum. Í grein sem birt var í Scientific Reports í síð­ustu viku greina vís­inda­menn frá nið­ur­stöðum rann­sókna sinna á berjum sem gætu geymt lyk­il­inn að nýrri aðferð til að berj­ast gegn sýkla­lyfja­ó­næmi.

Berin eru af teg­und­inni Schinus terebint­hi­folius og hafa í hund­ruð ára verið not­aðar af græð­urum í Suður Ameríku, meðal ann­ars til að með­höndla húð­sýk­ingar. Rann­sókn­ar­hópur við Emory háskóla í Banda­ríkj­unum komst að því að berin inni­halda efna­sam­band sem getur haft áhrif á sýk­ing­ar­mátt sýkla­lyfja­ó­næmra MRSA bakt­ería (Methillicin-res­istant <em>Staphylococcus aureus</em>).

MRSA bakt­er­íur geta valdið sárum á húð fólks og geta sýk­ing­arnar í sumum til­fellum verið lífs­hættu­legar. Talið er að allt að 11.000 dauðs­falla í Banda­ríkj­unum megi rekja til MRSA á ári.

Í rann­sókn­inni próf­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn að nota seyði úr berj­unum sem með­ferð við MRSA í músum. Seyðið nefn­ist 430D-F5 og er það blanda 27 efna. Þær mýs sem fengu 430D-F5 þró­uðu ekki með sér húðsár, ólíkt sam­an­burð­ar­hópnum sem ekki var með­höndl­aður með seyð­inu.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­hóps­ins var sú að efni í berj­unum geta komið í veg fyrir að sár af völdum MRSA mynd­ist með því að bæla gen í bakt­er­í­unum sem notuð eru til sam­skipta á milli bakt­ería. Þessi sam­skipti hafa lengi verið þekkt og kall­ast þéttniskynjun (e. quorum sens­ing). Skynji bakt­er­í­urnar ekki aðrar bakt­er­íur í nágrenn­inu telja þær sig í vera einar en við þær aðstæður haga þær sé á annan hátt. Þannig virt­ist seyðið koma í veg fyrir að bakt­er­í­urnar gæfu frá sér eit­ur­efni sem skaða vefi og lík­ami mús­anna átt auð­veld­ara með að græða sárið. Mik­il­vægt er að taka fram að seyðið drap í raun ekki bakt­er­í­urnar og voru mýsnar því enn sýktar þó engin sár hafi mynd­ast.

Þrátt fyrir þessar jákvæðu nið­ur­stöður mælir rann­sókn­ar­hóp­ur­inn síður en svo með því að almenn­ingur reyni að nýta sér berin enda er óljóst hversu örugg með­ferðin er í mönnum. Enn sem komið er hefur seyðið aðeins verið prófað á músum en von­ast er til þess að frek­ari rann­sóknir muni leiða til með­ferða geng bakt­er­íum í fram­tíð­inni. Verði það raunin getur verið að hér sé komin með­ferð sem er ólík hefð­bundnum sýkla­lyfjum að því leyti að bakt­er­í­urnar eru ekki drepnar. Fremur verði hægt að „óvirkja“ bakt­er­í­urnar sem gæti gagn­ast sem merð­ferð­ar­úr­ræði, til dæmis sam­hliða notkun sýkla­lyfja.

Fréttin birt­ist líka á vef Hvatans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár