Þó zika veiran hafi nokkurn veginn fallið í gleymskunnar dá hér á norðurhveli jarðar hefur hún enn dramatísk áhrif á líf þeirra sem lifa við og sunnan við miðbaug á ameríkuflekunum. Þar hefur hættan á veirusmiti enn áhrif á það hvort fólk leggi í barneignir.
Zika veiran olli miklum usla árin 2015 og 2016 þegar hún leiddi til vansköpunar fjölda barna í Suður Ameríku. Veiran tók fljótlega að breiða úr sér til norðurs og hefur greinst víða með tilheyrandi fylgikvillum. Í kjölfarið hafa farið af stað fjölmargar rannsóknir sem bæði miða að því að skilgreina virkni veirunnar og að finna lyf eða bóluefni gegn henni.
Nýlega birt rannsókn í þessum efnum sem var framkvæmd við University of Pennsylvania gefur nú nýja von um að bóluefni gegn þessari skæðu veiru sé mögulega á næstu grösum. Í rannsókninni var notast við nokkuð óhefðbundið bóluefni. Í stað þess að nota dauða eða veiklaða veiru er notast við mRNA frá zikaveirunni. mRNA sameindinni er svo breytt í prótín í líkama þess sem er bólusettur svo ónæmiskerfið geti hafist handa við að búa til mótefni. mRNA sameindin skráir nefnilega fyrir prótíni sem einkennir zika veiruna.
Bóluefnið var prófað bæði á músum og öpum. Eftir einungis eina bólusetningu höfðu báðar tegundir myndað ónæmi gegn veirunni. Ekki var þörf á örvunarskammti, eða svokölluðu bústi, með annarri bólusetningu þó að bóluefnið hafi verið í mjög lágum styrk.
Með því að nota mRNA sameind í staðinn fyrir veiruna sjálfa eru líkur á að ónæmissvarið verði sterkara þar sem hægt er að breyta sömu mRNA sameindinni í mörg eintök af prótíninu. Ónæmiskerfið notar svo þetta prótín til að búa til mótefni. Annar kostur við að nota mRNA í bóluefni er að það sparar tíma og fyrirhöfn við framleiðslu.
Næstu skref munu vera að skoða hvernig manneskjur bregðast við þessu bóluefni. Miklar líkur eru á því að ónæmissvarið verið svipað því sem sást í músunum og öpunum en þrátt fyrir það þurfum við að bíða enn um sinn áður en hægt verður að bólusetja fólk gegn veirunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir