Er svarið við sýklalyfja-ónæmi í augsýn?

Ógnin sem stafar af sýkla­lyfja­ó­næmum bakt­er­íum hefur aldrei verið jafn mikil. Nýlega bár­ust fréttir af dauðs­falli vegna sýk­ingar af völdum bakt­ería sem undir venju­legum kring­um­stæðum hefði verið hægt að vinna bug á með lyfjum ef ekki væri vegna ónæmis sýklanna. Því miður stefnir þessi ógn í að verða ennþá stærri því sýkla­lyfja­ó­næmi breið­ist hratt út á meðal sýkj­andi bakt­ería og ný sýkla­lyf virð­ast ekki vera rétt handan við hornið.

En í nýrri rann­sókn er nýtt sjón­ar­horn tekið á þessa lang­dregnu bar­áttu. Í rann­sókn­inni er sam­eind sem kall­ast PPMO (pept­ide-conjugated phosphorodi­amidate morp­hol­ino oligomer) notuð, ásamt hefð­bundu sýkla­lyfi, gegn bakt­er­íum sem vitað er að geyma sýkla­lyfja­ó­næmi. Þegar PPMO er notað sam­hliða sýkla­lyf­inu end­ur­heimtir sýkla­lyfið virkni sína.

Það vill þannig til að efnið PPMO hamlar virkni ens­íms sem kall­ast NDM-1 (New Delhi metallo-beta-lactamase). Þetta ensím gegnir lyk­il­hlut­verki fyrir bakt­er­í­urnar við að brjóta niður sýkla­lyfið. Þegar NDM-1 er virkt og seytt út í umhverfið af bakt­er­í­unum hefur sýkla­lyfið enga virkni. Hins vegar þegar PPMO er einnig til staðar þá seyta bakt­er­í­urnar út virku NDM-1 til að brjóta niður sýkla­lyfið en ens­ímið tapar virkni sinni. Þannig nær ens­ímið ekki að brjóta sýkla­lyfið niður áður en það vinnur bug á sýklunum.

Í rann­sókn­inni sem nefnd er hér að ofan var efnið notað í músum sýktum með þekktum bakt­er­íum, þrátt fyrir góðar nið­ur­stöður sem hér eru birtar er ekki þar með sagt að björn­inn sé unn­inn. Enn á eftir að skoða hvaða áhrif PPMO hefur sam­hliða sýkla­lyfja notkun í mönnum. Vonandi er notkun PPMO, eða sam­bæri­legra efna, sam­hliða sýkla­lyfjum gegn sýk­ingum í mönnum, fram­tíðin.

Mik­il­vægi þess að finna ný sýkla­lyf er samt sem áður til staðar sér í lagi í ljósi þess að PPMO hefur ein­göngu verið prófað sam­hliða ákveðnum teg­undum pensi­líns. Þessi rann­sókn er þó svo sann­ar­lega ljós í myrkr­inu og við hlökkum mikið til að sjá frek­ari rann­sóknir í þessum efnum.

Fréttin birt­ist einnig á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár