Límmiðar víkja fyrir umhverfisvænni merkingum

Versl­anir í þremur löndum prófa nú nýja aðferð til að merkja græn­meti og ávexti. Merk­ing­arnar eru gerðar með laser og gætu komið í stað hefð­bund­inna lím­miða­merk­inga. Ástæðan eru umhverf­is­á­hrif hefð­bund­inna merk­inga en aðferðin spara bæði orku og plast auk þess sem hún minnkar losun koltví­sýr­ings.

Tæknin var þróuð að fyr­ir­tæk­inu Laser Food og var upp­haf­lega hugsuð sem mark­að­setn­ing­ar­tól fremur en umhverf­is­væn lausn. Tæknin byggir á því að laser er not­aður til að fjar­lægja lit­ar­efni á yfir­borði mat­væl­anna og hefur hann aðeins áhrif á ysta lag þeirra. Áhrif á gæði mat­væl­anna og geymslu­þol eru engin. 

Versl­an­irnar sem prófa nú tækn­ina eru Nature & More í Hollandi og ICA í Svíþjóð sem merkja líf­rænar lárperur og sætar kart­öflur með þessum hætti. Versl­un­ar­keðjan Marks & Spencer á Bret­landi notar sömu tækni til að merkja kókos­hnetur. Merk­ing­arnar eru aðeins not­aðar á vörur sem seldar eru í lausa­sölu en sam­kvæmt reglum Evr­ópu­sam­bands­ins er skylt að merkja ávexti og græn­meti sem seld eru í lausa­sölu. 

Í sam­tali viðThe Guardian sagði Peter Hagg hjá ICA að um 200 km af 30 cm breiðu plasti komi til með að spar­ast á ári í merk­ingar á lárperum með tækn­inni. Auk þess er losun koltví­sýr­ings aðeins um 1% af því sem gengur og ger­ist fyrir fram­leiðslu hefð­bund­inna ávaxta­lím­miða.

Verk­efnið er enn á til­rauna­stigi og eru næstu skref að prófa þær á mat­vælum með ætri húð. Taki neyt­endur vel í það er von­ast til þess að tæknin nái frek­ari útbreiðslu.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár