Vodafone braut lög um vernd persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs

Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur lokið rann­sókn sinni á inn­broti inn á vef­svæði Vodafone í nóv­em­ber 2013. Eftir inn­brotið var gögnum úr því lekið á inter­netið. Á meðal gagn­anna voru 79 þús­und smá­skila­boð, meðal ann­ars frá þing­mönnum.

Fjar­skipti ehf., móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, braut gegn meg­in­á­kvæðum fjar­skipta­laga um vernd per­sónu­upp­lýs­inga og frið­helgi einka­lífs­ins þegar brot­ist var inn á vef­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber 2013 og gögnum sem vistuð voru á gagna­grunnum Vodafone stolið og birt opin­ber­lega á inter­net­inu. Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar Póst- og fjar­skipta­stofn­unar á atvik­inu, sem birt var fyrir helgi.

Þar segir að Vodafone hafi ekki við­haft virkt örygg­is­skipu­lag fyrir vef­svæði félags­ins, ekki við­haft við­eig­andi ráð­staf­anir til að tryggja vernd þess og þeirra upp­lýs­inga sem þar voru vistaðar, ekki við­haft að minnsta kosti árlegt innra eft­ir­lit fyrir vef­svæðið, ekki upp­fyllt kröfu um upp­ýst sam­þykki áskrif­enda fyrir vistun gagna á því og ekki eytt eða gert nafn­laus gögn um fjar­skipta­um­ferð áskrif­enda sem nýttu sér almenna fjar­skipta­þjón­ustu félags­ins eftir sex mán­uði, líkt og lög gera ráð fyrir.

Póst- og fjar­skipta­stofnun hrósar hins vegar við­brögðum Vodafone á Íslandi eftir að upp komst um inn­brot og birt­ingu gagna. Þau hafi verið góð og leitað hafi verið allra leiða til að tak­marka það tjón sem hlaust af gagna­stuld­inum.

Mjög persónuleg skilaboð

Að morgni laug­ar­dags­ins 30. nóv­em­ber 2013 var brot­ist inn á heima­síðu Vodafone á Íslandi. Slóð þess sem það gerði hefur verið rakin til Istanbúl í Tyrk­landi. Honum, eða þeim, tókst að kom­ast í gegnum glufur á örygg­is­kerfi Vodafone, stela gögnum sem sam­tals eru um 300 mega­bæt að stærð. Hann, eða þeir, birtu síðan öll gögnin á net­inu.

Um er að ræða 79 þús­und smá­skila­boð sem send höfðu verið af heima­síðu Vodafone á síð­ustu þremur árum fyrir inn­brotið, mik­ill fjöldi lyk­il­orða við­skipta­vina Vodafone að not­enda­síðum þeirra hjá fyr­ir­tæk­inu, fjórum kredit­korta­núm­erum og gríð­ar­legu magni upp­lýs­inga um nöfn og kenni­tölur til­tek­ina við­skipta­vina. Stuld­ur­inn, og birt­ing gagn­anna, er stór­tæk­asta inn­rás í einka­líf Íslend­inga sem nokkru sinni hefur átt sér stað.

Smá­skila­boðin sem birt­ust voru mörg hver mjög per­sónu­leg. Þau snér­ust mörg um kyn­líf eða aðra inni­lega hluti. Þau gátu því bæði verið við­kvæm og auð­mýkj­andi fyrir þá sem þau sendi eða þá sem tóku á móti þeim. Auk þess var meðal ann­ars í þeim að finna sam­skipti milli þing­manna. Þeir þurftu að útskýra skila­boð sín og sam­hengi þeirra í fjöl­miðlum í fram­hald­inu.

Settar voru upp síður á net­inu þar sem svæsn­ustu skila­boðin voru end­ur­birt. Þær nutu mik­illa vin­sælda. Auk þess gerðu valdir íslenskir fjöl­miðlar mörgum gagn­anna skil.

Þriggja ára tímabil

Skila­boðin voru send á tíma­bil­inu 1. des­em­ber 2010 og fram að inn­brots­degi. Þjóf­ur­inn náði, líkt og áður sagði, 79 þús­und skila­boðum og birti. Alls voru sendendur þeirra um 5.100 tals­ins og um helm­ingur þeirra sendi ein­ungis ein skila­boð. Dæmi voru þó um ein­staka sendendur sem sendu þús­undir skila­boða.

Því var ein­ungis hlut­falls­lega lít­ill hluti við­skipta­vina sem Vodafone var með á tíma­bil­inu, en þeir voru um 100 þús­und, fyrir beinum skaða.

Samkvæmt fjar­skipta­lögum má ein­ungis geyma gögn fjar­skipta­fyr­ir­tækja í sex mán­uði. Ljóst er að Vodafone braut gegn þeim lögum, enda hluti þeirra skila­boða sem stolið var mun eldri en það. Rannsókn Póst- og fjar­skipta­stofn­unar stað­festir það. Fyr­ir­tækið skýrði mis­tökin með þeim hætti að við­skipta­vinum hefði verið boðið að geyma send sms-skila­boð á heima­síðu Vodafone. Til að skila­boðin yrðu ekki geymd þurfti að taka til­tekið hak, sem sagði „Vista í sam­skipta­sögu“, af. Með því þurftu við­skipta­vin­irnir sjálfir að sýna frum­kvæði að því að koma mál­unum þannig fyrir að skila­boð­unum yrði eytt í sam­ræmi við lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár