Tannfyllingum skipt út fyrir lyf gegn Alzheimer’s

Tann­læknar gegna marg­vís­legu hlut­verki við við­hald tann­heilsu okkar, eitt þeirra er að gera við tennur sem hafa skemmst. Við­gerðin felur oft í sér að bora burt skemmdum tann­vef og fylla svo uppí tönn­ina með efnum sem eru lík­leg til að tolla í tönn­unum, sama hvað á gengur. Þegar búið er að gera við tönn með þessum hætti er hún vel not­hæf en hún verður þó aldrei heil á ný. En hvað ef við gætum örvað tenn­urnar til að end­ur­nýja sig?

Þegar litlar skemmdir verða á tönnum okkar, eins og þegar flís­ast örlítið úr þeim við átök, þá býr tann­vef­ur­inn til þunnt lag af gler­ungi til að verja tann­beinið fyrir innan. Þetta ferli er mjög tak­markað og þess vegna geta tennur ekki lokað stórum skemmdum og nýji gler­ung­ur­inn er því miður bara þunnt lag. Með þessa vit­neskju í fartesk­inu hófst ferða­lag rann­sókn­ar­hóps við King’s College í London þegar þau skoð­uðu áhrif Alzheimer’s lyfs á tann­vöxt.

Lyfið heitir Tideglusib og hefur nú þegar farið í gegnum próf­un­arfasa sem lyf við hrörn­un­ar­sjúk­dómnum Alzheimer’s. Það sem lyfið gerir er að það örvar vefja­sér­hæfðar stofn­frumur til skipt­ingar. Í nýbirtri rann­sókn var lyf­inu komið fyrir í skemmdum tönnum músa með svampi. Einungis sól­ar­hring eftir með­höndlun mús­anna hafði lyfið örvað frumu­skipt­ingu stofn­frumna í tönn­unum sem end­ur­nýj­uðu bæði tann­bein og gler­ung tann­anna svo þær urðu heilar á ný.

Það óneit­an­lega betra fyrir tann­heilsu almenn­ings að vera með allar tennur heilar í stað þess að hafa ein­hverjar við­gerðar. Lyf sem þetta gæti gjör­breytt við­gerðum á tönnum svo með­ferð miðar frekar að því að hjálpa tönn­unum að end­ur­nýja sig, frekar en að plástra sárin ef svo má segja með tann­fyll­ingum.

Enn sem komið er hefur lyfið bara verið prófað í þessum til­gangi á músum en næst mun hóp­ur­inn end­ur­taka rann­sókn­ina í rottum sem eru um margt lík­ari mönnum. Ef þær rann­sóknir gefa góða raun verður næsta skref von­andi rann­sóknir á tönnum úr mönnum.

Það styttir þó bið­tím­ann eftir almennri notkun lyfs­ins, að það hefur verið sam­þykkt sem lyf gegn Alzheimer’s svo fjöldi próf­ana á skað­semi og auka­verk­unum lyfs­ins eru nú þegar að baki. Hver veit nema tann­fyll­ingar verði svo ekk­ert meira en safn­gripir eftir nokkrar kyn­slóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár