Tvö hrunmál á dagskrá Hæstaréttar á næstu vikum

Guðmundur Örn Hauksson er einn þeirra sem ákærður er í SPRON-málinu.
Guð­mundur Örn Hauksson er einn þeirra sem ákærður er í SPRON-mál­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mál­flutn­ingur í Hæsta­rétti í SPRON-mál­inu svo­kall­aða fer fram í næsta mið­viku­dag, 11. jan­úar. Næstum eitt og hálft ár er síðan að hér­aðs­dómur sýkn­aði fjóra fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn í sjóðnum og fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans af ákæru um umboðs­svik.

Annað hrun­mál, hið svo­kall­aða Marple-mál, er einnig komið á dag­skrá Hæsta­réttar. Mál­flutn­ingur fer fram í því 3. mars næst­kom­andi. Tveir fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings og einn hlut­hafi bank­ans voru sak­felldir í mál­inu í októ­ber 2015 en fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri hans var sýkn­aður.

Þá liggur fyrir að nið­ur­stöðu í tveimur hrun­málum sem fékkst síðla árs 2016, hinum svoköll­uðu SpKef- og Aurum-málum, verður að mestu áfrýjað til Hæsta­réttar.

Allir sýknaðir fyrir héraðsdómi

Í SPRON-mál­inu eru fjórir fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn og fyrrum for­stjóri SPRON ákærðir fyrir umboðs­svik vegna tveggja millj­arða króna láns sem ­SPRON veitti Exista þann 30. sept­em­ber 2008, deg­inum eftir að Glitnir var þjóð­nýttur og íslenska banka­kerfið allt var á helj­ar­þröm.

Hinir ákærðu eru Guð­mundur Örn Hauks­son, fyrrum spari­sjóðs­stjóri og síðar for­stjóri SPRON, og stjórn­ar­menn­irnir Rann­veig Rist, sem er for­stjóri Rio Tinto Alcan, Mar­grét Guð­munds­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður N1, auk Ara Berg­manns Ein­ars­sonar og Jóhanns Ásgeirs Bald­urs. Þeim er gefið að sök að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum og stefnt fé hans í veru­lega hættu með því að fara út fyrir heim­ildir til lán­veit­inga þegar þau sam­þykktu lán­ið.

Þau voru öll sýknuð þann 25. júní 2015 en nið­ur­stöð­unni var áfrýjað til Hæsta­réttar.

Fjárdráttur og umboðssvik

Í Marple-mál­inu eru Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg, Skúli Þor­valds­son fjár­festir og Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, ákærð. Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ing­u og pen­inga­þvætti af gáleysi. ­Mál­ið, eins og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lagði það upp, snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki.

Þann 9. októ­ber 2015 voru Hreiðar Már, Magnús og Skúli sak­felldir í ­mál­inu. Skúli var sýkn­aður af ákæru um hylm­ingu en sak­felldur fyrir pen­inga­þvætti af gáleysi. Hreiðar Már og Skúli hlutu sex mán­aða dóma en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu.

Sýknaður í héraði

Í SpKef-mál­inu er Geir­mundur Krist­ins­son, fyrr­ver­andi spari­­­sjóðs­stjóri Spari­­­sjóðs­ins í Kefla­vík, ákærður fyrir umboðs­svik.Annars vegar var hann ákærður fyrir að hafa mis­­notað aðstöðu sína til að lána félagi tengdu Suð­­ur­­nesja­­mönnum 100 millj­­ónir króna í formi yfir­­­drátt­­ar­láns, sem tap­að­ist að fullu. Hins vegar á Geir­­mundur að hafa fram­­selt stofn­bréf í Spari­­­sjóði Kefla­víkur að verð­­mæti 683 millj­­ónir króna til einka­hluta­­fé­lags­ins Foss­vogs­hyls ehf., sem varð síðar í eigu sonar Geir­­mund­­ar. Ekk­ert end­­ur­­gjald var tekið vegna þessa en skuld á Foss­vogs­hyl skráð í bækur dótt­­ur­­fé­lags spari­­­sjóðs­ins. Ekk­ert fékkst greitt upp í skuld­ina utan tæp­­lega 50 milljón króna arð­greiðslu á árinu 2008.

Ákæru­­valdið krafð­ist þess fyrir hér­aðs­dómi að Geir­­mund­ur yrði dæmd­ur til að sæta óskil­orðs­bund­inni fang­els­is­refs­ingu í fjögur ár hið minnsta. Hann var hins vegar sýkn­aður 4. nóv­em­ber 2016. Þeirri nið­ur­stöðu hefur nú verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Einum sýknudómi áfrýjað en öðrum ekki

Aurum-málið snýst um sex millj­­­­arða króna lán­veit­ingu til félags­­­­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­­­­­­­magna kaup FS38, eign­­­­ar­­­­laust félag í eigu Pálma Har­alds­­­­son­­­­ar, á 25,7 pró­­­­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Holding Limited. Hluti láns­ins, einn millj­­­­arður króna, var ráð­stafað inn á per­­­­són­u­­­­legan banka­­­­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­­­­arð síðan í að borga meðal ann­­­­ars 705 millj­­­­óna króna yfir­­­­­­­drátt­­­­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Hér­­aðs­sak­­sókn­­ari, áður sér­­­­stakur sak­­­­sókn­­­­ari, vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­­­­ar­ins.

Málið hefur farið tví­vegis fyrir hér­aðs­dóm. Í fyrra skiptið voru allir sak­born­ingar sýkn­að­ir. Rík­is­sak­sókn­ari fór hins vegar fram á ómerk­ingu á með­ferð máls­ins á grund­velli þess að einn með­­­­­­­dóm­­­­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Um­ræddur með­­­­­­­dóm­­­­ari er Sverrir Ólafs­­­­son, fjár­­­­­­­mála­verk­fræð­ing­­­­ur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­­­­son­­­­ar, kenndum við Sam­­­­skip, sem hlaut þungan fang­els­is­­­­dóm vegna aðildar sinnar að Al-Thani flétt­unni svoköll­uðu. Þetta lá ekki fyrir við með­­­­­ferð máls­ins í hér­­­aði. Hæst­i­­­réttur féllst á það.

Málið var aftur tekið fyrir í hér­aðs­dómi síð­ast­liðið haust og dómur féll 24. nóv­em­ber. Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, og Magnús Agnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, voru dæmdir sekir. Lárus fékk eins árs fang­els­is­dóm en Magnús Agnar tveggja ára dóm. Bjarni Jó­hann­es­­son, fyrr­ver­andi við­skipta­­stjóri hjá bank­an­um, og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Glitn­is, voru hins vegar sýkn­aðir í mál­inu.

Bæði Lárus og Magnús Arnar áfrýj­uðu nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar. Rík­is­sak­sókn­ari ákvað að áfrýja sýknu Jóns Ásgeirs þangað en ekki sýknu Bjarna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár