Lárus Welding sakfelldur í Aurum málinu en Jón Ásgeir sýknaður

Lár­us Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, hlaut í dag eins árs dóm í Aurum-mál­inu í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Magnús Arn­ar Ásgríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, var dæmd­ur í tveggja ára fang­elsi en Bjarni Jó­hann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri hjá bank­an­um, og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Glitnis, voru sýkn­aðir í mál­inu. Greint er frá þessu á mbl.is.

Málið snýst um sex millj­­­arða króna lán­veit­ingu til félags­­­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­­­­­magna kaup FS38, eign­­­ar­­­laust félag í eigu Pálma Har­alds­­­son­­­ar, á 25,7 pró­­­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited. Hluti láns­ins, einn millj­­­arður króna, var ráð­stafað inn á per­­­són­u­­­legan banka­­­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­­­arð síðan í að borga meðal ann­­­ars 705 millj­­­óna króna yfir­­­­­drátt­­­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Hér­aðs­sak­sókn­ari, áður sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari, vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­­­ar­ins.

Í mál­inu voru Bjarni og Jón Ásgeir ákærðir fyrir hlut­deild í umboðs­svikum Lárusar og Magnúsar Arnars.

Ógilt vegna efa um óhlut­­drægni dóm­­ara

Þetta var í annað sinn sem málið fór fyrir hér­aðs­dóm. Í fyrra skiptið voru allir sak­born­ingar sýkn­aðir. Rík­is­sak­sókn­ari fór hins vegar fram á ómerk­ingu á með­ferð máls­ins á grund­velli þess að einn með­­­­­dóm­­­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Um­ræddur með­­­­­dóm­­­ari er Sverrir Ólafs­­­son, fjár­­­­­mála­verk­fræð­ing­­­ur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­­­son­­­ar, kenndum við Sam­­­skip, sem hlaut þungan fang­els­is­­­dóm vegna aðildar sinnar að Al-T­hani flétt­unni svoköll­uðu. Þetta lá ekki fyrir við með­­­ferð máls­ins í hér­­aði. Hæst­i­­réttur féllst á það.

Fjöl­miðlar komust á snoðir um tengslin eftir dóms­­upp­­kvaðn­­ingu í hér­­aði og spurðu Ólaf Þór Hauks­­­son, sér­­­stakan sak­­­sókn­­­ara, hvort hann hefði vitað af tengsl­un­um, sem hann neit­aði. Í kjöl­far­ið, nánar til­­­­­tekið 9. júní 2014, ræddi frétta­­­stofa RÚV við með­­­dóm­­ar­ann Sverri. Í þeirri frétt sagði hann: „Ég fór til dóm­­­ar­ans, Guð­jóns St. Mart­eins­­­son­­­ar, sagði honum frá tengslum mín­­­um. Hann taldi að það væru ekki vand­­­kvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­­­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengsl­um, þá ber það vott um afskap­­­lega léleg og yfir­­­­­borðs­­­kennd vinn­u­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­­­ar­­­fullar og jafn­­­vel óheið­­­ar­­­legar aðgerð­­­ir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­­­leiki hans stofn­unar er eig­in­­­lega í mol­u­m.“

Í sjón­­­varps­fréttum sama kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: „Ég trúi því fast­­­lega að sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­­­ast að mér sá grunur að sak­­­sókn­­­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Guð­jón þurfti að víkja sæti

Í októ­ber í fyrra varð svo ljóst með úrskurði Hæsta­réttar að Guð­jón St. Mart­eins­­son hér­­aðs­­dóm­­ari þyrfti að víkja sæti í mál­inu, en áður hafði hér­­aðs­­dómur úrskurðað að hann þyrfti ekki að víkja. Sér­­stakur sak­­sókn­­ari hafði gert kröfu um að Guð­jón véki sæti vegna eft­ir­­mála máls­ins í hér­­aðs­­dómi.

Hann taldi Guð­jón ekki geta talist hæfan til að fara með mál­ið. Ástæðan er sú að eftir að Hæst­i­­­réttur ómerkti nið­­­ur­­­stöðu hér­­­aðs­­­dóms í mál­inu í apríl og vís­aði því aftur til hér­­­aðs­­­dóms sendi Guð­jón tölvu­­­póst til rík­­­is­sak­­­sókn­­­ara og verj­enda ákærðu þar sem hann ræddi mál­ið. Með tölvu­­­póst­­­inum sendi hann grein sem hann hafði ætlað að birta í Frétta­­­blað­inu, en gerði ekki. Greinin fjall­aði um málið og umræð­una um van­hæfi Sverris Ólafs­­son­­ar. Þrátt fyrir að hann hafi hætt við birt­ing­u ­­­sögð­u 365 miðlar frá inn­­i­haldi grein­­­ar­inn­­­ar í fréttum og leið­­­ara­­­skrifum.

„Ég varð bæði undr­andi og fannst að mér vegið með ummælum sér­­­staks sak­­­sókn­­­ara í fjöl­miðlum eftir upp­­­­­sögu dóms­ins. Af því til­­­efni sendi ég hinn 10. júní 2014 stutta grein til birt­ingar í dag­­­blaði. Mér þótti sann­­­gjarnt og eðli­­­legt að greina rík­­­is­sak­­­sókn­­­ara frá þessu og ræddi því við hana í síma sama dag auk þess að senda henni grein­ina. Sama dag ræddi ég sím­­­leiðis við sér­­­stakan sak­­­sókn­­­ara sem kann­að­ist ekki við að hafa rætt bræðra­­­tengslin í sím­tali okkar 13. mars 2014 þótt hann kann­að­ist við sím­talið og ýmis­­­­­legt sem þar var rætt. Eftir þetta ákvað ég að birta ekki grein­ina enda ljóst að birt­ingin myndi valda miklu fjaðrafoki sem ekki væri á bæt­and­i.“

Guð­jón segir í tölvu­­­póst­­­inum að á þessum tíma hafi hann hvorki séð fyrir né reiknað með að krafa ákæru­­­valds­ins við áfrýjun yrði krafa um ómerk­ingu máls­ins. „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo ver­ið,“ segir í tölvu­­­póst­­­in­­­um. Þá segir hann að Sverrir hafi látið ummælin falla í fjöl­miðlum „eftir ómak­­­lega aðdróttun sér­­­staks sak­­­sókn­­­ara í hans garð og raunar gegn mér einnig“.

Í dómi Hæsta­réttar er einnig vitnað í óbirtu blaða­­­grein­ina, þar sem Guð­jón segir að Ólafur Þór Hauks­­­son, sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari, hafi hringt í hann og greint honum frá tengslum Sverris Ólafs­­­sonar og Ólafs Ólafs­­­sonar að fyrra bragði þann 13. mars 2014. „Lauk sam­tal­inu með því að sér­­­stakur sak­­­sókn­­­ari kvað ákæru­­­valdið ekki ætla að gera athuga­­­semd við hæfi með­­­­­dóms­­­manns­ins og var það ekki gert.“ Þetta hefur komið fram í mál­inu áður og hefur Ólafur Þór sagt að í umræddu sím­tali milli hans og Guð­jóns hafi hann rætt um það að Sverrir hafi unnið fyrir slita­­­stjórn Glitn­­­is. Þetta kemur einnig fram í dómn­um, þar sem vitnað er til tölvu­­­pósts sem Ólafur Þór sendi til rík­­­is­sak­­­sókn­­­ara þann 18. febr­­­ú­­­ar. „Enn og aftur skyld­­­leika­­­tengsl með­­­­­dóm­­­ar­ans við C [Ólaf Ólafs­­­son, inn­­­­­skot blaða­­­manns] voru ekki rædd í því sím­tali enda hefði ákæru­­­valdið þá klár­­­lega gert athuga­­­semd við þá skipan dóms­ins,“ segir í tölvu­­­póst­­­in­­­um.

Hæst­i­­réttur úrskurð­aði að Guð­jón skyldi víkja sæti vegna þess að orð hans væru fallin til þess að draga mætti með réttu í efa að hugur hans gagn­vart Ólafi Þór Hauks­­syni, sér­­­stökum sak­­sókn­­ara, væri með þeim hætti að tryggt væri að óhlut­­drægni yrði gætt við úrlausn máls­ins.

Ásak­anir um van­hæfni og óheið­ar­leika

Sverrir Ólafs­son, sér­fróði dóm­ar­inn sem varð til þess að fyrri nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms ógilt­ist, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann fór hörðum orðum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Í grein­inni sagði hann að margt bendi til þess að annað hvort van­hæfni eða óheið­­ar­­leiki hafi átti sér stað hjá emb­ætti sér­­staks sak­­sókn­­ara með til­­liti til með­­­ferðar gagna í Aur­um-­­mál­in­u. Sverrir spyr sig hvort að emb­ættið hafi verið að leyna gögnum í öðrum mik­il­vægum málum og segir að það verði að taka nýlegan áburð Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Kaup­­þings sem ákærður hefur verið í fjölda hrun­­mála, um slikt alvar­­lega.

Það sé skoðun sumra að emb­ættið hafi sýnt af sér for­­dæma­­lausan ásetn­ing til að sak­­fella banka­­menn, hvað sem það kostar jafn­­vel þótt það krefj­ist þess að ólög­­legum vinn­u­brögðum sé beitt. Ekki hafi skort á stuðn­­ingi frá reiðri þjóð við þessi verk, sem virð­ist telja fang­elsun mik­il­væg­­ari en rétt­­mæt máls­­með­­­ferð. „Ég hef heyrt þá skoðun setta fram að ef til vill séu sak­­fell­ingar í nokkrum banka- eða hrun­­málum rang­­ar, en að það sem skipti höf­uð­­máli sé að réttir menn voru dæmd­­ir. Maður trúir varla eigin eyrum þegar maður heyrir slíkar athuga­­semd­­ir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár