Hunangsflugur hafsins afhjúpaðar

Hun­angs­fl­ugur gegna lyk­il­hlut­verki í vist­kerfum á landi og hefði brott­hvarf þeirra afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir mann­kynið vegna hlut­verks þeirra í frævun ýmissa nytja­plantna. Frævun gróð­urs er ekki síður mik­il­væg neð­an­sjávar en þar til nýlega var talið það væru straumar hafs­ins sem sæju um hana. Nið­ur­stöður rann­sóknar sem birtar voru í Nature Communications lýsa áður óþekktu ferli fræv­unar í haf­inu og afhjúpa „hun­angs­fl­ugur“ hafs­ins.

Hinar svoköll­uðu „hun­angs­fl­ugur“ hafs­ins eru auð­vitað ekki eig­in­legar hun­angs­fl­ugur heldur er fremur um að ræða hóp líf­vera sem gegna svip­uðu hlut­verki og hun­angs­fl­ugur á landi. Þessar líf­verur eru ýmist örsmá krabba­dýr eða ormar sem gegna mik­il­vægu hlut­verki í frævun sjáv­ar­grass­ins Thalassia testu­dinum.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­hóps­ins er ferlið merki­lega líkt því sem þekk­ist hjá hun­angs­flugum. Sjáv­ar­gras­inu vaxa blóm, líkt blóm­plöntum á þurru landi og gæða líf­ver­urnar sér á frjó­kornum þess. Á meðan á mál­tíð­inni stendur fest­ist hluti frjó­korn­anna á dýrin, þau flytja þau með sér á nýjar slóðir og hjálpa þannig til við að frjóvga sjáv­ar­grösin.

Fram að þessu hefur verið talið að frævun í hafi ætti sér aðeins stað með vatns­frævun, það er að frjó­korn ber­ist með straumum hafs­ins á milli staðar, líkt og í vind­frævun á landi.

Í rann­sókn­inni var aðeins ein teg­und sjáv­ar­grass skoðað við til­rauna­að­stæður því er óvíst hvort það sama eigi við um aðrar teg­undir.

Sjáv­ar­gras er gríð­ar­lega mik­il­vægt í vist­kerfum hafs­ins. Það bætir meðal ann­ars gagn­sæi vatns, stöð­ug­leika strang­lengja og geymir kolefni, auk þess sem það er mik­il­væg fæða fyrir fjöl­margar líf­verur hafs­ins. Þessum mik­il­væga gróðri fer í dag hratt fækk­andi og má rekja ástæð­una til áhrifa manna, sér í lagi meng­unar hafs­ins og afrennsli frá land­bún­aði.

Hér að neðan má sjá „hun­angs­fl­ugur hafs­ins“ að störfum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár