Stjórnun á meinvörpum í krabbameini tengist fituríkri fæðu

Það verður því að telj­ast bylt­inga­kenndar nið­ur­stöður sem rann­sókn­ar­hópur í Barcelona birti í Nature í síð­ustu viku. Í rann­sókn­inni eru mein­varp­andi frumur ýmissa krabba­meina skoðuð og í ljós kemur að ákveðið prótín virð­ist sem gegnir lyk­il­hlut­verki við myndun mein­varpa er sam­eig­in­legt þeim öllum.

Prótínið heitir CD36 og er við­taki fyrir fitu­sýrur. Prótínið var til staðar á yfir­borði mein­varp­andi frumna allra krabba­meina sem voru skoðuð í rann­sókn­inni. Þegar virkni prótíns­ins var hindruð með sér­stökum CD36 hindra misstu frum­urnar mein­varp­andi eig­in­leika sína. Þetta gefur mögu­leik­ann á þróun lyfs sem bein­ist gegn þessu sér­staka pró­tíni. Með lyf­inu væri mögu­lega hægt að hægja á eða koma í veg fyrir mein­vörp krabba­meina.

Þegar krabba­mein er komið á mein­varp­andi stig er það orðið ansi hættu­legt, sér­stak­lega fyrir þær sakir að þá eru krabba­meinin orðin mjög erfið til með­höndl­unar. Gangi fyr­ir­ætl­anir rann­sókn­ar­hóps­ins eftir um þróun lyfs sem felur í sér hindrun á CD36 heyra þeir erf­ið­leikar sög­unni til. Rétt er þó að taka fram að þó hér hafi margar gerðir krabba­meina verið skoðuð er ekki hægt að full­yrða að CD36 stjórni mein­vörpum í öllum týpum.

Prótínið er eins og áður segir við­taki fyrir fitu­sýrur, en þegar pró­tínið binst við ákveðnar fitu­sýrur virkj­ast ferli í frumunni sem hjálpar til við mein­vörp. Því miður eru þessar fitu­sýrur sem bind­ast við við­takan ansi algengar í matar­æði í vest­rænum heimi, eru m.a. stór hluti pálma­olíu sem er mikið notuð í til­búin mat­væli. Þetta þýðir að hugs­an­lega getur neysla pálma­olíu haft áhrif á fram­gang krabba­meins, sé það til staðar hjá neyt­anda.

Næstu skref rann­sókn­ar­hóps­ins eru að þróa lyf sem hægt er að nota til að hindra CD36 og þar með fram­gang krabba­meina. Fyrstu próf­anir hóps­ins, sem fóru fram í frumu­rækt, benda til að hindrun á pró­tín­inu hafi ekki telj­andi auka­á­hrif.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár