Áhrif keisaraskurða á þróun mannkynsins

Samkvæmt nið­ur­stöðum nýbirtrar rann­sóknar sem gerð var við Vín­ar­há­skóla hefur fæð­ingum þar sem keis­ara­skurður er nauð­syn­legur vegna þröngrar mjaðma­grindar móður fjölgað á und­an­förnum ára­tugum. Áætlað er að fjöldi slíkra til­fella hafi verið um 30 af hverjum 1.000 fæð­ingum á sjö­unda ára­tugnum en er um 36 af hverjum 1.000 fæð­ingum í dag. Telja vís­inda­menn að hér sé um að ræða þróun sem ekki hefði átt sér stað nema með til­komu keis­ara­skurða.

Stærð mjaðma­grindar kvenna getur haft áhrif á það hversu vel gengur að koma barni í heim­inn. Sé stærð barns­ins hlut­falls­lega of stórt miðað við mjaðma­grind móður þess skap­ast sú aðstaða að barnið hrein­lega kemst ekki í gegnum fæð­ing­ar­veg­inn. Fæðingar sem þessar voru á árum áður mjög áhættu­samar og fyrir 100 árum síðan lifðu konur sem glímdu við þennan vanda og börn þeirra ekki fæð­ing­una af.

Að sögn Dr. Philipp Mitteroecker, kenni­legs líf­fræð­ings og eins höf­undar grein­ar­innar, hafa vís­inda­menn lengi velt því fyrir sér hverst vegna tíðni slikra fæð­inga er eins há og raun ber vitni.

Ástæðan liggur lík­lega í því að með fram­förum í lækna­vís­indum er í dag hægt fram­kvæma keis­ara­skurð og koma barn­inu þannig í heim­inn með því að snið­gang fæð­ing­ar­veg­inn. Þannig er í raun farið fram hjá hörku nátt­úru­vals­ins sem áður fyrr kom í veg fyrir að konur með þröngar mjaðma­grindur kæmu erfða­efni sínu til næstu kyn­slóðar.

Dr Mitteroecker tekur fram að rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sé með nið­ur­stöðum sínum ekki að gagn­rýna lækn­is­fræði­leg inn­grip. Hann telur að þró­unin komi til með að halda áfram í sömu átt en telur ólík­legt að hún muni ger­ast hratt eða leiða til þess að keis­ara­skurður verði eina fæð­ing­ar­leiðin í fram­tíð­inni.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­hóps­ins voru birtar í tíma­rit­inu Proceedings of the National Academy of Sciences.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár