Andleg heilsa og líkamlegir kvillar – sitthvor hliðin á sama pening

Andleg veik­indi hafa lengi verið lækna­vís­ind­unum mikil ráð­gáta, raunar svo mikil að ekki er ýkja langt síðan þau fóru að flokk­ast til veik­inda. Þrátt fyrir miklar fram­farir stöndum við enn frammi fyrir því að þekkja lítið um orsakir and­legra veik­inda en rann­sóknir á við­fangs­efn­inu skila okkur þó alltaf áfram um ein­hver skref þó mörgum gæti þótt þau lítil eða fá.

Nýlega birti rann­sókn­ar­hópur frá Uni­versity of Basel í Sviss, grein þar sem tengls lík­am­legra og and­legra kvilla eru skoðuð. Rann­sóknin var birt í PLOS ONE í lok síð­asta mán­aðar.

Í rann­sókn­inni voru tæp­lega 6500 banda­rísk ung­menni á aldr­inum 13-18 ára skoðuð með til­liti til and­legra og lík­am­legra veik­inda. Í ljós kom að mark­tæk tengsl eru til staðar milli þung­lyndis og sjúk­dóma í melt­ing­ar­færum, kvíða­rösk­unar og húð­sjúk­dóma eða hjarta­sjúk­dóma auk þess að tengsl fund­ust milli átrösk­unar og floga­veiki. Við þetta er svo að bæta að hjarta­sjúk­dómar sýndu tengsl við nán­ast alla and­lega kvilla sem voru skoð­aðir í rann­sókn­inni.

Þessar nið­ur­stöður sýna enn og aftur að and­lega heilsa er bein­tengd við lík­am­lega heilsu. Ekki skal tekin afstaða til þess hér hvort and­legu veik­indi eru orsök eða afleið­ing þeirra lík­am­legu. Þó er ljóst að til að með upp­lýs­ingum sem þessum opn­ast mögu­leik­inn á að skil­greina betur þá líf­fræði­legu þætti sem liggja að baki and­legum kvillum.

Þó ekki sé hægt að spá full­kom­lega fyrir um and­lega kvilla með því að horfa á lík­am­lega heilsu ber að hafa í huga að margs konar mis­brestir í lík­am­anum geta haft sömu birt­inga­mynd, eins og t.d. þung­lyndi eða kvíða. Það er því mik­il­vægt að setja ekki öll and­leg veik­indi undir sama hatt heldur skoða hvert til­felli útfrá eigin for­sendum.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár