Ríkið og bændur með átta af tólf fulltrúum í hóp um endurskoðun búvörusamninga

Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga hefur verið skip­aður, mán­uði síðar en til stóð. Full­trúum í hópnum hefur verið fjölgað úr sjö í tólf. Laun­þegar, atvinnu­lífið og neyt­endur eiga fjóra full­trúa. Ávísun á engar breyt­ingar, segir Ólafur Steph­en­sen.

Af þeim tólf full­trúum sem skip­aðir hafa verið í sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga eru átta full­trúar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytis eða Bænda­sam­taka Íslands. Laun­þegar, atvinnu­lífið og neyt­endur eiga sam­tals fjóra full­trúa. Tilkynnt var um skipan hóps­ins fyrr í dag. Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir sam­setn­ingu hóps­ins sýna að stefnt sé að því að gera engar breyt­ingar á búvöru­samn­ing­unum.

Ögmundur Jónasson skipaður af Gunnari Braga

Tilkynnt var í dag að Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hafi lokið við skipun á sam­ráðs­hópi um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Upp­haf­lega áttu sjö manns að vera í hópnum og skipan hans átti að liggja fyrir 18. októ­ber. Nú eru full­trú­arnir sem í honum sitja orðnir tólf og skipan hóps­ins lauk mán­uði síðar en lagt var upp með.

Af þeim tólf sem sitja í hópnum eru átta skip­aðir af ráðu­neyti Gunnars Braga eða Bænda­sam­tökum Íslands, þeim hinum sömu og gerðu búvöru­samn­ing­anna í febr­úar sem á að end­ur­skoða. Á meðal þeirra sem skip­aður var í hóp­inn af ráðu­neyt­inu er Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna.

Auk þeirra átta sitja í hópnum einn full­trúi Neyt­enda­sam­taka Íslands, einn full­trúi Samtaka Atvinnu­lífs­ins, einn full­trúi frá Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) og einn frá BSRB. Ríkið á því fimm full­trúa í hópnum, bændur þrjá, laun­þegar tvo, atvinnu­lífið einn og neyt­endur einn.

Í sam­ráðs­hópnum eiga sæti:

  • Guðrún Rósa Þór­steins­dóttir for­maður, skipuð af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti
  • Róbert Farest­veit, til­nefndur af Alþýðu­sam­bandi Íslands
  • Helga Jóns­dóttir, til­nefnd af Banda­lagi starfs­manna ríkis og bæja
  • Sindri Sig­ur­geirs­son, til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands
  • Björgvin Jón Bjarna­son, til­nefndur af Bænda­sam­tökum Íslands
  • Elín Heiða Vals­dóttir, til­nefnd af Bænda­sam­tökum Íslands
  • Ólafur Arnarson, til­nefndur af Neyt­enda­sam­tök­unum
  • Andrés Magn­ús­son, til­nefndur af Samtökum atvinnu­lífs­ins
  • Elín Margrét Stef­áns­dóttir, skipuð af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti
  • Jóna Björg Hlöðvers­dóttir, skipuð af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti
  • Björg Bjarna­dóttir, skipuð af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti
  • Ögmundur Jónasson, skip­aður af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti

Stefnir í engar breytingar

Heim­ildir Kjarnans herma að ein helsta ástæða þess að dreg­ist hafi að skipa hóp­inn sé sú að ASÍ og BSRB, sem upp­haf­lega áttu ein­ungis að fá einn full­trúa saman, hafi kraf­ist þess að fá sitt hvorn full­trú­ann. Látið var undan þeirri kröfu en sam­hliða var þeim full­trúum sem skip­aðir voru af sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu fjölgað úr einum í fjóra.

Félag atvinnu­rek­enda sem hafa verið mjög gagn­rýnin á búvöru­samn­ing­anna mót­mælti því harð­lega að vera haldið utan við sam­ráðs­hóp­inn og sendi Gunnari Braga bréf þar sem óskað var eftir því að sú afstaða hans yrði end­ur­skoðuð. Allir aðrir lög­bundnir umsagn­ar­að­ilar hafi verið skip­aðir í hóp­inn utan þeirra, en Félag atvinnu­rek­enda gætir hags­muna inn­flytj­enda búvara. Bréfið breytti hins vegar ekki afstöðu ráð­herr­ans og Félag atvinnu­rek­enda er ekki með full­trúa í hópnum.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að sú skipan hóps­ins sem nú liggi fyrir sé ekki það þjóð­ar­sam­tal um breyt­ingar sem lagt hafi verið upp með. Til að bregð­ast við kröfum ASÍ og BSRB um að fá sitt hvorn full­trú­ann hafi Gunnar Bragi brugð­ist við með því að fjölga full­trúum ríkis og bænda í hópnum til að tryggja þeim áfram­hald­andi meiri­hluta í honum. „Það er aug­ljóst hvert stefnir. Það stefnir í að gera engar breyt­ingar.“

30 prósent þingmanna samþykktu

Ein­ungis 19 þing­­menn, eða 30 pró­­sent allra þing­­manna, greiddu atkvæði með búvöru­samn­ing­unum þegar þeir voru sam­þykktir á Alþingi á í sept­em­ber. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir atkvæða­greiðsl­una sem mun móta eitt af lyk­il­­kerfum íslensks sam­­fé­lags, hið rík­­is­­styrkta land­­bún­­að­­ar­­kerfi, næsta ára­tug­inn. Eng­inn þing­maður Pírata, Sam­fylk­ingar eða Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn samn­ingn­um. Þeir sjö þing­menn sem það gerðu voru allir þing­menn Bjartrar fram­tíðar og Sig­ríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Auk þess sátu fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks sem voru við­staddir atkvæða­greiðsl­una hjá við hana. Aðrir þing­menn stjórn­ar­flokka sem voru við­staddir sam­þykktu samn­ing­anna.

Nýj­­ustu samn­ing­­arnir voru und­ir­­rit­aðir 19. febr­­úar síð­­ast­lið­inn af full­­trúum bænda ann­­ars vegar og full­­trúum rík­­is­ins. Fyrir hönd rík­­is­ins skrif­uðu Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, þáver­andi land­­bún­­að­­ar­ráð­herra og nú for­­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Lof­uðu end­ur­skoðun eftir þrjú ár

Í lok ágúst lagði meiri­hluti atvinn­u­­vega­­nefndar fram breyt­ing­­ar­til­lögur á samn­ing­un­­um. Þegar þær voru kynntar var látið að því liggja að í til­lög­unum væri skýrt kveðið á um end­­ur­­skoð­un­­ar­á­­kvæði innan þriggja ára. Engar frek­ari breyt­ingar voru gerðar á lögum sem gera samn­ing­anna gild­andi eftir þær breyt­inga­til­lög­ur.

Ákvæðið um end­ur­skoðun samn­ing­anna er þó ekki mjög skýrt. Í áliti meiri­hluta­nefndar atvinnu­vega­nefndar sagði: „Meiri hlut­inn leggur áherslu á að við sam­þykkt frum­varps­ins nú eru fyrstu þrjú ár samn­ing­anna stað­fest og mörkuð fram­tíð­ar­sýn til tíu ára. Meiri hlut­inn leggur til ákveðna aðferða­fræði fyrir end­ur­skoðun samn­ing­anna árið 2019 og skal ráð­herra þegar hefj­ast handa við að end­ur­meta ákveðin atriði og nýtt fyr­ir­komu­lag gæti mögu­lega tekið gildi í árs­byrjun 2020. Meiri hlut­inn leggur til að end­ur­skoð­unin bygg­ist á aðferða­fræði sem feli í sér víð­tæka sam­still­ingu um land­bún­að­inn, atkvæða­greiðslu um end­ur­skoð­aða samn­inga meðal bænda og afgreiðslu Alþingis á laga­breyt­ingum sem sú end­ur­skoðun kann að kalla á.“

Í breyt­ing­ar­til­lög­unni sjálfri sagði: „Eigi síðar en 18. októ­ber 2016 skal sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Tryggja skal aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoð­un­inni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins um hvort að það bæri að skilja lögin þannig að bændur myndu alltaf fá að kjósa um þá end­ur­skoðun sem muni eiga sér stað eigi síður en árið 2019. Svar ráðu­neyt­is­ins var já.

Þegar spurt var hvað myndi ger­ast ef bændur myndu hafna þeirri end­ur­skoðun í atkvæða­greiðslu var svar­ið: „Ef bændur hafna þeim breyt­ingum sem hugs­an­lega verða gerðar við end­ur­skoð­un­ina 2019 verður aftur sest niður og leitað frek­ari samn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

PistillBúvörusamningar

Bændasamtök Íslands

Árétting vegna end­ur­skoð­un­ar­á­kvæðis í búvöru­samn­ingum

Búvöru­samn­ingar voru sam­þykktir á Alþingi Íslend­inga með virku end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði árin 2019 og 2023. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra mun skipa form­legan sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Því hefur rang­lega verið haldið fram að bændur geti með ein­hverjum hætti komið í veg fyrir end­ur­skoðun og þannig sé ekki um virka end­ur­skoðun að ræða. Eins og eðli­legt er verða end­ur­skoð­aðir samn­ingar bornir undir bændur til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár