Endurskoða samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar

Full­trúar Bænda­sam­taka Íslands og stjórn­valda hafa skrifað undir sam­komu­lag um end­ur­skoðun á samn­ingi um starfs­skil­yrði sauð­fjár­rækt­ar­innar en end­ur­skoðun sauð­fjár­samn­ings fer næst fram árið 2023.

Full­trúar Bænda­sam­taka Íslands og stjórn­valda hafa skrifað undir sam­komu­lag um end­ur­skoðun á samn­ingi um starfs­skil­yrði sauð­fjár­rækt­ar­innar.

Í frétt atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að mark­mið sam­komu­lags­ins sé meðal ann­ars að stuðla að auknu jafn­vægi fram­boðs og eft­ir­spurnar á mark­aði með sauð­fjár­af­urðir, auka frelsi sauð­fjár­bænda og að auð­veld­ara verði að takast á við sveiflur í ytra og innra umhverfi grein­ar­innar.

Enn fremur kemur fram að áhersla sé lögð á að auð­velda aðlögun að breyttum búskap­ar­háttum eða nýrri starf­semi með sér­stökum aðlög­un­ar­samn­ingum. Þær breyt­ingar sem gerðar eru á samn­ingnum kalli ekki á aukin útgjöld fyrir rík­is­sjóð.

Aðlögunarsamningur við þá sem vilja hætta eða draga úr sauðfjárbúskap

Í sam­komu­lag­inu felst að heim­ilt verður að gera aðlög­un­ar­samn­inga við fram­leið­endur sem til­búnir eru að hætta eða draga úr sauð­fjár­bú­skap og reyna fyrir sér í nýrri starf­semi. Fram­leið­endur geta óskað eftir að gera slíka samn­inga til árs­ins 2022. Breyt­ingar verða gerðar á fyr­ir­komu­lagi bein­greiðslna, gripa­greiðslur falla út og hlut­föll til ein­stakra verk­efna breyt­ast. Markmið þeirra breyt­inga er að draga úr vægi greiðslna sem tengdar eru við fram­leitt kjöt­magn eða gripa­fjölda. Heild­ar­fjár­hæð greiðslna hvers árs verður sem áður sam­kvæmt gild­andi samn­ingi en áhersla er frekar lögð á stuðn­ing sem er síður hvetj­andi til offram­leiðslu.

Stofn­settur verður mark­aður fyrir greiðslu­mark sem verður í höndum Bún­að­ar­stofu Mat­væla­stofn­unar. Greiðslu­mark verður inn­leyst og boðið til sölu á inn­lausn­ar­verði ár hvert. Heimilt er að gefa ákveðnum hópum fram­leið­enda for­gang á kaupum á því greiðslu­marki sem boðið verður til sölu hverju sinni. Þessi aðgerð er til þess fallin að halda niðri kostn­aði af kerf­inu og sam­eina hags­muni innan stétt­ar­innar.

Innanlandsvog skilgreinir þarfir og eftirspurn innanlandsmarkaðar eftir kindakjöti

Í sam­komu­lag­inu er ákvæði sem ætlað er að stuðla að fram­leiðslu­jafn­vægi á sauð­fjár­af­urðum. Fjár­hæðum sam­kvæmt þeim lið verður ráð­stafað ef bregð­ast þarf við breyt­ingum á fram­boði og eft­ir­spurn á mark­aði. Það verður meðal ann­ars gert með því að efla mark­aðs­færslu sauð­fjár­af­urða og greiða sér­stakar upp­bætur fyrir slátrun áa til fækk­unar. Þá verður komið á fót svo­kall­aðri inn­an­lands­vog sem skil­greinir þarfir og eft­ir­spurn inn­an­lands­mark­aðar eftir kinda­kjöti.

Árlega skal Mat­væla­stofnun áætla sölu­magn kinda­kjöts á inn­an­lands­mark­aði næsta alm­an­aksár og byggja þá áætlun á sölu síð­ustu 24 mán­aða og lík­legri sölu­þróun. Mismunur á raun­veru­legri fram­leiðslu og inn­an­lands­vog gefur til kynna árlega útflutn­ings­þörf slát­ur­leyf­is­hafa. Álags­greiðslur vegna gæða­stýr­ingar munu skipt­ast á þann hluta heild­ar­fram­leiðsl­unnar sem ætl­aður er til inn­an­lands­mark­aðar.

Ásetn­ings­hlut­fall verður lækkað úr 0,7 í 0,6 frá og með 1. jan­úar 2020. Jafn­framt er gerð sú breyt­ing að ráð­herra verður heim­ilt að end­ur­meta hlut­fallið árlega að feng­inni til­lögu fram­kvæmda­nefndar búvöru­samn­inga, með til­liti til inn­an­lands­vogar og þró­unar á fram­boði og eft­ir­spurn sauð­fjár­af­urða. Í núgild­andi samn­ingi er ásetn­ings­hlut­fallið ákveðið í lögum.

Endurskoðun fer næst fram eftir fjögur ár

End­ur­skoðun sauð­fjár­samn­ings fer fram næst árið 2023. Fyrst og fremst verður horft til þess hvernig fram­leiðsla sauð­fjár­af­urða og afkoma í grein­inni hefur þró­ast og hvernig mark­mið samn­ings­ins og þess sam­komu­lags sem nú er gert hafa gengið eftir. Einnig skal skoða þróun í bústærð, fjölda búa eftir svæðum og fjár­fjölda í land­inu. Þá skal end­ur­skoða býl­is­stuðn­ing, bæði fjár­hæðir og þrep.

Sérstök bókun var gerð í sam­komu­lagið þar sem lögð er áhersla á að mik­il­vægt sé að ná fram auk­inni hag­ræð­ingu í grein­inni og að kannað verði hvort slát­ur­leyf­is­hafar geti átt sam­starf um afmark­aða þætti í starf­semi sinni.

Samkomulagið er liður í endurskoðun samnings frá árinu 2016

Það voru þau Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fyrir hönd rík­is­ins, og Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­taka Íslands, og Oddný Steina Vals­dóttir, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda sem skrif­uðu undir sam­komu­lagið. Það er und­ir­ritað með fyr­ir­vara um sam­þykki Alþingis á nauð­syn­legum laga­breyt­ingum og sam­þykki félags­manna LS og BÍ í atkvæða­greiðslu. Sam­komu­lag er liður í end­ur­skoðun samn­ings um starfs­skil­yrði sauð­fjár­ræktar frá 19. febr­úar 2016.

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra telur að sam­komu­lagið muni styrkja grund­völl íslenskrar sauð­fjár­ræktar. Hann segir sér­stak­lega ánægju­legt að stuðlað verði að meira jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar á mark­aði með sauð­fjár­af­urðir en það hafi verið einn helsti vandi grein­ar­innar und­an­farin ár. „Jafn­framt má nefna þá ánægju­legu breyt­ingu að við veitum bændum meira frelsi með sér­stökum aðlög­un­ar­samn­ingum til að nýta tæki­færi fram­tíð­ar­innar – bændum og neyt­endum til heilla,“ segir hann.

Oddný Steina Vals­dóttir, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, segir við til­efnið að í sam­komu­lag­inu komi inn ferlar til að takast á við sveiflur í rekstr­ar­um­hverfi sauð­fjár­rækt­ar­innar og að það sé mik­il­vægt. Þá sé dregið úr fram­leiðslu­hvata stuðn­ings­greiðslna. Eftir sem áður sé stefnt að því að jafna stöðu bænda sem starfa innan samn­ings­ins og draga úr kostn­aði grein­ar­innar af kerf­inu. Þá séu samn­ings­að­ilar sam­mála um mik­il­vægi þess að ná fram hag­ræð­ing­ar­að­gerðum innan afurða­geirans, að því marki verður áfram að vinna. „Ég tel þær breyt­ingar sem sam­komu­lagið felur í sér sé jákvætt skref sem muni styðja við aukna verð­mæta­sköpun afurða. Þá er einnig ánægju­legt að sam­hliða þessu sam­komu­lagi hefur rík­is­stjórnin ákveðið að hefja kolefn­is­verk­efni í sam­starfi við sauð­fjár­bændur. Gæði, fag­mennska og heil­næmi er aðals­merki okkar sauð­fjár­bænda og á þeim styrk­leikum ætlum við að byggja til fram­tíðar,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

PistillBúvörusamningar

Bændasamtök Íslands

Árétting vegna end­ur­skoð­un­ar­á­kvæðis í búvöru­samn­ingum

Búvöru­samn­ingar voru sam­þykktir á Alþingi Íslend­inga með virku end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði árin 2019 og 2023. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra mun skipa form­legan sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Því hefur rang­lega verið haldið fram að bændur geti með ein­hverjum hætti komið í veg fyrir end­ur­skoðun og þannig sé ekki um virka end­ur­skoðun að ræða. Eins og eðli­legt er verða end­ur­skoð­aðir samn­ingar bornir undir bændur til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár