Tveir formenn í hópi sem endurskoðar búvörusamninga

Þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna og Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna, gegna bæði hlut­verki for­manns hóps­ins.

Brynhildur Pétursdóttir og Haraldur Benediktsson formenn samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga.
Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Haraldur Bene­dikts­son for­menn sam­ráðs­hóps um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga.

Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga hefur verið skip­aður af sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en for­menn­irnir eru tveir og koma úr gagn­stæðri átt. Þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna og Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna, gegna bæði hlut­verki for­manns hóps­ins.

Auk þess eru í hópnum Þór­lindur Kjart­ans­son, skip­aður af land­bún­að­ar­ráð­herra, Hafdís Hanna Ægis­dóttir, skipuð af umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Jóhanna Hreins­dóttir skipuð af Samtökum afurða í mjólkur­iðn­aði, Halldór Árnason skip­aður af Samtökum atvinnu­lífs­ins, Sindri Sig­ur­geirs­son for­maður Bænda­sam­tak­anna og Elín Heiða Vals­dóttir einnig skipuð af Bænda­sam­tök­unum.

Í til­kynn­ingu frá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu kemur fram að við afgreiðslu­bú­vöru­samn­ing­anna árið 2016 hafi verið lagt upp með að skip­aður yrði sjö manna sam­ráðs­hópur en í tíð tveggja síð­ustu rík­is­stjórna hafi full­trúum verið fjölgað í ann­ars vegar tólf og hins vegar þrettán. Ráðherra hafi hins vegar ákveðið að end­ur­skipa í hóp­inn „enda rétt að vinna hóps­ins taki m.a. mið af þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur.“

Starfs­hópnum verður sent erind­is­bréf sem tekur mið af þeim umræðum sem fram fóru á Alþingi þegar gild­andi búvöru­lög voru sam­þykkt og þeim áherslum sem fram koma í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrrar rík­is­stjórnar. Lögð verður áhersla á að hóp­ur­inn ljúki störfum sem fyrst og eigi síðar en í lok árs 2018.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra að hann hafi laft á það ríka áherslu við skipan hóps­ins að veita sjón­ar­miðum neyt­enda aukna vigt við end­ur­skoðun búvöru­samn­ing­anna, m.a. með því að skipa full­trúa Neyt­enda­sam­tak­anna sem annan for­manna hóps­ins. „Þessi fjöl­breytti hópur hefur fulla burði til að ná víð­tæku sam­komu­lagi um til­lögur sem geta orðið grund­völlur að öfl­ugum atvinnu­rekstri í land­bún­aði og ekki síður skapað meiri sátt um upp­bygg­ingu íslensks land­bún­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

PistillBúvörusamningar

Bændasamtök Íslands

Árétting vegna end­ur­skoð­un­ar­á­kvæðis í búvöru­samn­ingum

Búvöru­samn­ingar voru sam­þykktir á Alþingi Íslend­inga með virku end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði árin 2019 og 2023. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra mun skipa form­legan sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Því hefur rang­lega verið haldið fram að bændur geti með ein­hverjum hætti komið í veg fyrir end­ur­skoðun og þannig sé ekki um virka end­ur­skoðun að ræða. Eins og eðli­legt er verða end­ur­skoð­aðir samn­ingar bornir undir bændur til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár