Gunnar Bragi ósáttur við áform um endurskipun í nefnd um búvörusamninga

Gunnar Bragi Sveins­son fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra gagn­rýnir nýja rík­is­sjórn fyrir að boða end­ur­skipun á nefnd um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Hann segir tals­menn heild­sala ekki eiga erindi í slíka nefnd.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveins­son fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra gagn­rýnir áform nýrrar rík­is­stjórnar að end­ur­skipa í nefnd um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Mynd: Pressphotos

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, gagn­rýnir nýja rík­is­stjórn fyrir að boða end­ur­skipun í nefnd um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. „Ég spái því að undir for­ystu rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks verði tals­mönnum milli­liða bætt í nefnd­ina svo þeir geti gætt sinna hags­muna,“ skrifar Gunnar Bragi á Facebook-síðu sína í morgun og á lík­lega við Félag atvinnu­rek­enda. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, er nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en hún starf­aði áður fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins. Þess má geta að ráðu­neyti hennar hefur ekki til­kynnt opin­ber­lega að end­ur­skipað verði í nefnd­ina. 

„Talsmenn heild­sala eiga amk ekk­ert erindi í slíka nefnd þar sem þeir eru milli­liðir sem auka kostnað neyt­enda.“

„Búvöru­samn­ingar hafa fyrst og fremst tví­þætt hlut­verk þ.e. að tryggja afkomu bænda og fela þeim þær skyldur að fram­leiða heil­næm og góð mat­væli fyrir lands­menn (neyt­endur),“ segir Gunnar Bragi. „Búvöru­samn­ingar fjalla ekk­ert um afkomu heild­sala né versl­un­ar­innar. Reynar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár