130 milljarða búvörusamningar lögfestir með aðeins 19 atkvæðum

Umdeilt frum­varp sem gefur fyr­ir­heit um 13 millj­arða rík­is­styrki til bænda næstu 10 árin var sam­þykkt á Alþingi í dag. 21 þing­maður var fjar­ver­andi og 16 þing­menn sátu hjá.

Frumvarp vegna búvöru­samn­inga rík­is­stjórn­ar­innar við bændur var sam­þykkt á Alþingi með aðeins 19 atkvæðum í dag. 

Í frum­varp­inu eru bændum gefin fyr­ir­heit um rík­is­stuðn­ing upp á um það bil 13 millj­arða á ári næstu 10 árin. Alls eru þetta sam­tals meira en 130 millj­arðar króna en ofan á þetta bæt­ist óbeinn stuðn­ingur í formi toll­verndar upp á um það bil 9 millj­arða á ári.

Gert er ráð fyrir að end­ur­skoðun á samn­ing­unum fari fram ekki seinna en árið 2019 en í lög­unum felst skuld­bind­ing um veg­lega rík­is­styrki allt til árs­ins 2026.

Þegar greidd voru atkvæði um frum­varpið voru 14 þing­menn fjar­ver­andi og sjö þing­menn með skráða fjar­vist. 16 þing­menn sátu hjá, þar af 12 þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Sjö þing­menn greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu, allur þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar ásamt Sigríði Á. Andersen, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Eft­ir­far­andi þing­menn greiddu atkvæði með frum­varp­inu en allir til­heyra Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum: 

Ásmundur Einar Daðason, Ásmundur Frið­riks­son, Bjarni Bene­dikts­son, Einar K. Guð­finns­son, Frosti Sig­ur­jóns­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Haraldur Bene­dikts­son, Haraldur Ein­ars­son, Illugi Gunn­ars­son, Jóhanna María Sig­munds­dóttir, Karl Garð­ars­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Páll Jóhann Pálsson, Sigrún Magn­ús­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Vil­hjálmur Bjarna­son, Willum Þór Þórsson, Þor­steinn Sæmunds­son og Þórunn Egils­dóttir.

Eft­ir­far­andi þing­menn sátu hjá: Árni Páll Árnason, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Birgir Ármanns­son, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Katrín Jak­obs­dóttir, Katrín Júl­í­us­dóttir, Kristján L. Möller, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, Steinunn Þóra Árna­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir, Val­gerður Bjarna­dóttir og Össur Skarp­héð­ins­son.

Eft­ir­far­andi þing­menn voru fjar­ver­andi: Birgitta Jóns­dóttir, Brynjar Níelsson, Elín Hirst, Helgi Hjörvar, Hösk­uldur Þór­halls­son, Jón Gunn­ars­son, Oddný G. Harð­ar­dóttir, Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, Ragn­heiður E. Árna­dóttir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Val­gerður Gunn­ars­dóttir, Vigdís Hauks­dóttir og Ögmundur Jónasson. Þá voru Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Eygló Harð­ar­dóttir, Kristján Þór Júl­í­us­son, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son með skráða fjar­vist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár