Ákvæði gegn dýraníði bætt inn í búvörufrumvarp: „Þrýstingur hefur stundum áhrif!“

26 þing­menn felldu til­lögu um að fella niður rík­is­styrki til bænda sem gerð­ust sekir um ítrekuð og alvar­leg dýra­níð. Ákvæði verður bætt við.

At­vinnu­vega­nefnd Alþingis hefur bætt ákvæði um nið­ur­fell­ingu rík­is­styrkja vegna dýra­níðs inn í frum­varpið um búvöru­samn­ing­ana. Þessi breyt­ing var gerð í hádeg­inu í dag en margir lýstu óánægju þegar Stundin greindi frá því í gær að breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ hefði verið felld af 26 þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Mbl.is segir frá því að ákveðið hafi verið að bæta inn ákvæði gegn dýra­níði þegar frum­varpið var afgreitt úr atvinnu­vega­nefnd í hádeg­inu í dag. Gert er ráð fyrir að málið fari til þriðju umræðu og afgreiðslu þings­ins í næstu viku. „Við bæt­um við þeirri heim­ild Mat­væla­stofn­unn­ar að svipta menn fram­lög­um ef um er að ræða illa með­ferð á dýr­um og svipt­ingu leyfa á þeim grunni. Þannig að það er komið inn í lög,“ er haft eftir JóniG­unn­ars­syni, for­manni atvinnu­vega­nefndar.

Sam­fylk­ingin deilir frétt­inni á Twitter og skrifar: „Þrýst­ingur hefur stundum áhrif! Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar hlust­aði á okkur og tók inn dýra­vernd­un­ar­á­kvæðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár