Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður ríkisstyrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýraníð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður ríkisstyrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýraníð

Þingmenn úr Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum greiddu atkvæði gegn því að veitt yrði heim­ild til að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem brotið hafa gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra. 

Í frum­varpi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til laga um breyt­ingu á búvöru­lög­um, bún­að­ar­lögum og tolla­lögum er ekki gert ráð fyrir að opin­ber stuðn­ingur við fram­leiðslu land­bún­að­ar­af­urða komi til end­ur­skoð­unar ef bændur verða upp­vísir að ítrek­aðri illri með­ferð dýra.

Ekki var lögð til nein breyt­ing á þessu í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar sem birt­ist á vef Alþingis í síð­ustu viku. Í ljósi þess lagði Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, full­trúi Vinstri grænna í atvinnu­vega­nefnd Alþingis, fram til­lögu um að eft­ir­far­andi máls­grein yrði bætt inn í lögin: 

Heimilt er að fella niður greiðslur til þeirra sem brotið hafa gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra, nr. 55/2013, með síð­ari breyt­ingum. 

Annarri umræðu um frum­varpið vegna búvöru­samn­ing­anna lauk fyrir helgi og voru þá meðal ann­ars greidd atkvæði um breyt­ing­ar­til­lögu Lilju. 21 þing­maður studdi breyt­ing­ar­til­lög­una; allir þing­menn Bjartrar fram­tíðar, Pírata, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna sem við­staddir voru og einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Elín Hirst. 

Birgir Ármanns­son, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir og Sigríður Á. Andersen úr Sjálf­stæð­is­flokknum sátu hjá ásamt Jóhönnu Maríu Sig­munds­dóttur, þing­konu Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

26 þing­menn úr Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum greiddu hins vegar atkvæði gegn til­lög­unni. Þetta eru: Ásmundur Einar Daðason, Ásmundur Frið­riks­son, Brynjar Níelsson, Einar K. Guð­finns­son, Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Eygló Harð­ar­dóttir, Geir Jón Þórisson, Gunnar Bragi Sveins­son, Haraldur Bene­dikts­son, Haraldur Ein­ars­son, Jón Gunn­ars­son, Karl Garð­ars­son, Kristján Þór Júl­í­us­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Páll Jóhann Pálsson, Ragn­heiður E. Árna­dóttir, Sigrún Magn­ús­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Val­gerður Gunn­ars­dóttir, Vigdís Hauks­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Vil­hjálmur Bjarna­son, Willum Þór Þórsson, Þor­steinn Sæmunds­son og Þórunn Egils­dóttir. 

Enginn þess­ara þing­manna tók til máls og útskýrði hvers vegna ekki skyldi hrófla við rík­is­styrkjum til þeirra sem brjóta gróf­lega eða ítrekað gegn dýrum.

Í upp­haf­legu frum­varpi til laga um vel­ferð dýra, sem Stein­grímur J. Sig­fús­son þáver­andi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra lagði fram árið 2012, var gert ráð fyrir að við brot á lög­unum yrði Mat­væla­stofnun heim­ilt að fella niður opin­berar greiðslur til bænda að und­an­geng­inni áminn­ingu.

Þetta ákvæði var fellt brott eftir að Bænda­sam­tök Íslands höfðu tekið ein­dregna afstöðu gegn því, einkum á þeim grund­velli að slíkt fyr­ir­komu­lag væri á skjön við búvöru- og bún­að­ar­lög. Á sínum tíma benti atvinnu­vega­nefnd sér­stak­lega á að kanna mætti við síð­ara til­efni „t.d. við end­ur­skoðun bún­aðar- og búvöru­laga og end­ur­nýjun samn­inga á grund­velli þeirra“ hvort rétt væri að „skapa rými til upp­töku úrræð­is­ins“.  Lilja Rafney og Björt Ólafs­dóttir, full­trúi Bjartrar fram­tíðar í atvinnu­vega­nefnd, telja að nú sé til­efni til þess.

„Það athæfi sem mundi heim­ila beit­ingu slíks þving­unar­úr­ræðis felur í sér illa með­ferð á dýrum sem einnig kall­ast dýra­níð. 2. minni hluti er sam­mála þáver­andi atvinnu­vega­nefnd sem taldi úrræðið eðli­legt „og í góðu sam­hengi við þær kröfur sem telja má eðli­legt að gera til gagn­að­ila rík­is­ins að samn­ingum sem fela í sér ráð­stöfun opin­bers fjár“,“ segir í nefnd­ar­á­liti Lilju Raf­n­eyjar. „2. minni hluti bendir á að nú gefst tæki­færi til að inn­leiða þving­un­ar­á­kvæði í þessa veru og telur ein­boðið að nota það. Því leggur 2. minni hluti fram breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis.“ Björt tekur í sama streng í nefnd­ar­á­liti sínu og segir sjálf­sagt og eðli­legt að skil­yrða opin­beran fjár­stuðn­ing við ásætt­an­lega með­ferð dýra. 

Kristján Möller, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í atvinnu­vega­nefnd, lagði einnig fram sam­bæri­lega til­lögu um að veitt yrði heim­ild til nið­ur­fell­ingar rík­is­styrkja til þeirra sem fara illa með dýr. „Hér greiðum við atkvæði um til­lögu mína um að hafi umráða­maður ítrekað gerst brot­legur við ákvæði laga þess­ara skuli fella niður opin­berar greiðslur í land­bún­aði til hans,“ sagði hann í umræðum á þing­inu. „Þetta er til­laga sem kom fram á 141. lög­gjaf­ar­þingi í frum­varp­inu um vel­ferð dýra. Þetta ákvæði var þá fellt út í með­förum nefnd­ar­innar og því beint skil­merki­lega til atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins að taka til sér­stakrar skoð­unar hvort það ætti ekki að taka upp við end­ur­skoðun bún­aðar- og búvöru­laga og end­ur­nýjun samn­ings á grund­velli þeirra, sem er það sem við erum að gera í dag. Ráðu­neytið hefur ekk­ert gert í þessu máli og skil­aði engri til­lögu inn, þess vegna er þessi til­laga flutt hér. Hún hefur áður verið flutt og var frestað, eins og ég hef rakið, með nefnd­ar­á­liti atvinnu­vega­nefndar og því skora ég á stjórn­ar­þing­menn að sam­þykkja þessa til­lögu hér og nú.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, tók í sama streng: „Eins og hér kom fram áðan var ákvæði af þessu tagi inn í upp­haf­legu frum­varpi um dýra­vel­ferð en það var fellt út með þeim rökum að það þyrfti að vera til staðar laga­stoð í sér­lög­unum sem fjöll­uðu um búvöru­samn­ing til þess að þetta mætti fram­kvæm­ast. Er þá ekki sjálf­gefið að gera það? Eða hver ætlar að standa í þessum ræðu­stól og rök­styðja þörf­ina á því að ríkið styrki ár eftir ár með pen­ingum til fram­leiðslu ein­hvern sem fer með hús­dýr og fer illa með þau? Það getur ekki verið að nokkur vilji hafa þann mál­stað. Ég skora á hv. atvinnu­vega­nefnd að taka þetta til með­ferðar milli 2. og 3. umræðu. Við hljótum að geta sam­ein­ast um útfærslu á þessu sem setur betri svip á þessi mál.“ 

23 þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins greiddu hins vegar einnig atkvæði gegn breyt­ing­ar­til­lögu Krist­jáns Möllers. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár