Samsærið gegn samkeppninni

Á und­an­förnum 12 árum hafa Mjólk­ur­sam­salan og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga öðl­ast yfir­burða­stöðu á íslenskum mjólk­ur­mark­aði á grund­velli umdeildra laga­breyt­inga sem und­an­skilja fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum og bitna bæði á sam­keppn­is­að­ilum og neyt­endum. Ný búvöru­lög, sem liggja fyrir Alþingi, bæði festa í sessi ein­ok­un­ar­stöðu MS og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og hækka veru­lega tolla á inn­flutta osta og mjólk­ur­duft.

Í frum­varpi sem nú er til umfjöll­unar á Alþingi vegna nýrra búvöru­samn­inga er gert ráð fyrir að afurða­stöðvar í mjólkur­iðn­aði njóti áfram víð­tækra und­an­þága frá meg­in­reglum sam­keppn­islaga og að áfram verði til staðar heim­ildir til sam­ein­ingar, sam­ráðs og sam­vinnu mark­aðs­ráð­andi aðila – sömu heim­ildir og hafa, að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, gert Mjólk­ur­sam­söl­unni kleift að brjóta gegn þeim lág­marks­kröfum sam­keppn­islaga sem þó gilda um fyr­ir­tækið. 

MS tekur við um 90 pró­sentum af þeirri hrá­mjólk sem íslenskir bændur fram­leiða. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) er næst­stærsta fyr­ir­tækið á íslenskum mjólk­ur­mark­aði og á 10 pró­senta hlut í Mjólk­ur­sam­söl­unni á móti 90 pró­senta hlut Auðhumlu, sam­vinnu­fé­lags í eigu um 700 mjólk­ur­fram­leið­enda víða um land.

Við­skipta­sam­band MS og Kaup­fé­lags­ins er náið, sem lýsir sér meðal ann­ars í því að sala og dreif­ing á mjólk­ur­vörum Kaup­fé­lags­ins fer fram í gegnum MS og Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri er vara­for­maður stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Saman eru þessir aðilar nær ein­ráðir í mjólk­ur­við­skiptum á Íslandi. Ástæða þess er fyrst og fremst sú skjald­borg sem lög­gjaf­inn hefur slegið um fyr­ir­tækin, meðal ann­ars að frum­kvæði stjórn­mála­manna sem tengj­ast hags­muna­að­ilum í mjólkur­iðn­aði sterkum böndum.

Lagabreyting að frumkvæði Guðna

Um fimmt­ungi af neyslu­út­gjöldum íslenskra fjöl­skyldna vegna mat­væla er varið til kaupa á mjólk- og mjólk­ur­vörum. Þar eru neyt­endur háðir mark­aði sem ein­kenn­ist í miklum mæli af opin­berum inn­gripum en er um leið und­an­skil­inn ákvæðum sam­keppn­islaga sem myndu að öðrum kosti vinna gegn skað­legri fákeppni og sam­keppn­is­hömlum í grein­inni. Þessa sér­stöðu mjólk­ur­mark­að­ar­ins má að miklu leyti rekja til breyt­inga sem gerðar voru á lögum um fram­leiðslu, verð­lagn­ingu og sölu á búvörum í maí árið 2004. 

Guðni Ágústs­son, sem áður hafði starfað sem mjólk­ur­eft­ir­lits­maður hjá Mjólk­ur­búi Flóa­manna í rúm 10 ár, var land­bún­að­ar­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins á þessum tíma. Hann lagði fram frum­varp sem fól í sér að afurða­stöðvum í mjólkur­iðn­aði yrðu veittar víð­tækar und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum. Í fyrsta lagi var þeim heim­ilað að gera samn­inga sín á milli um verð­til­færslu milli til­tek­inna afurða og í öðru lagi máttu þær nú „sam­ein­ast, gera með sér sam­komu­lag um verka­skipt­ingu milli mjólk­ur­sam­laga að því er varðar fram­leiðslu ein­stakra mjólk­ur­vara og hafa með sér ann­ars konar sam­starf til þess að halda niðri kostn­aði við fram­leiðslu, geymslu og dreif­ingu mjólk­ur­af­urða“. 

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins hans Guðna var sér­stak­lega tekið fram að mjólk­ur­fram­leið­endur teldu að „almenn hag­fræði­leg rök um að sam­keppni í við­skiptum efli hag­vöxt þurfi að víkja fyrir mark­miðum búvöru­laga og sér­stöðu land­bún­að­ar­ins“. Þá var full­yrt að frum­varpið væri samið að

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður ríkisstyrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýraníð
FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár