Þingmenn útskýra hvers vegna þeir tóku ekki afstöðu til búvörusamninga

Stundin bað um skýr­ingar frá þeim þing­mönnum sem sátu hjá eða voru fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una um nýja búvöru­samn­inga. Samn­ing­arnir voru sam­þykktir með atkvæðum 19 þing­manna.

Sátu hjá
Sátu hjá Þessir þing­menn sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um nýja búvöru­samn­inga.

„Forseti úr stjórn­ar­meiri­hluta lætur atkvæða­greiðslu ekk­ert fara fram ef nógu mörg já eru ekki í húsi,“ segir Árni Páll Árnason, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um ástæður þess að hann kaus að sitja hjá þegar greidd voru atkvæði um nýja búvöru­samn­inga. Í gær sendi Stundin fyr­ir­spurn á alla þing­menn sem sátu hjá eða voru fjar­ver­andi við atkvæða­greiðslur um samn­ing­ana og spurði meðal ann­ars hver væri skýr­ingin á því að við­kom­andi þing­menn sátu hjá eða voru fjar­ver­andi við atkvæða­greiðsl­una. Einungis 16 af 37 þing­mönnum svör­uðu spurn­ingum Stund­ar­innar.

 

 

Athygli vakti þegar ein­ungis 30 pró­sent Alþingis, eða 19 þing­menn, lög­festu nýja búvöru­samn­inga við bændur síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Í frum­varp­inu eru bændum gefin fyr­ir­heit um rík­is­stuðn­ing upp á um það bil 13 millj­arða á ári næstu 10 árin. Alls eru þetta sam­tals meira en 130 millj­arðar króna en ofan á þetta bæt­ist óbeinn stuðn­ingur í formi toll­verndar upp á um það bil 9 millj­arða á ári. Einungis þing­menn Bjartrar fram­tíðar og einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Sigríður Á. Andersen, greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu. Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kusu að sitja hjá. Bent hefur verið á að rík­is­stjórnin hafi ekki haft þing­meiri­hluta fyrir mál­inu og því hefði stjórn­ar­and­staðan í reynd getað fellt samn­ing­ana. 

Samn­ing­arnir hafa helst verið gagn­rýndir fyrir langan gild­is­tíma þeirra, það er tíu ár, og þá hefur rík­is­stjórnin verið gagn­rýnd fyrir skort á sam­ráði við aðra hags­muna­að­ila í mál­inu - þar á meðal neyt­endur. Á milli ann­arar og þriðju umræðu um samn­ing­ana á þingi var sam­þykkt breyt­inga­til­laga sem kveður á um að skip­aður verður sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga með aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda. Þeirri end­ur­skoðun skuli ljúka árið 2019 og þá eiga bændur kost á að kjósa um nýjan búvöru­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­ing­ina. Með öðrum orðum þá er það í höndum bænda hvort samn­ing­arnir verði til þriggja eða tíu ára. 

„Það er afskap­lega hæpið að svona fúsk leiði annað af sér en drasl.“

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði frá því á Facebook- síðu sinni í gær að Björt fram­tíð hafi lagt til að vísa frá þessum tíu ára samn­ingi og fram­lengja núgild­andi samn­ingur um eitt ár á meðan samið yrði upp á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

FréttirBúvörusamningar

Lögðust gegn því að hægt yrði að fella niður rík­is­styrki til þeirra sem ástunda gróft og ítrekað dýra­níð

Breyt­ing­ar­til­laga um að heim­ilt yrði að fella niður stuðn­ings­greiðslur til þeirra sem brjóta „gróf­lega eða ítrekað gegn ákvæðum laga um vel­ferð dýra“ var kol­felld af þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Horfið frá áformum sem uppi voru á síð­asta kjör­tíma­bili.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár