Planet Earth II færir okkur mögnuðustu náttúrulífsmyndirnar til þessa

Árið 2006 sátu nátt­úr­unn­endur um allan heim límdir við sjón­varps­skjá­inn og horfðu stór­brotnar myndir og ógleym­an­lega frá­sögn David Attenborough um lífið á plánet­unni í þátta­röð­inni Planet Earth. Á sunnu­dag­inn síð­ast­lið­inn gerð­ist slíkt hið sama þegar yfir níu millj­ónir horfðu á frum­sýn­ingu Planet Earth II á sjón­varps­stöð­inni BBC One.

Nýja þátta­röðin kemur til með að sam­an­standa af sex þáttum og er það Attenborough sem kynnir okkur enn á ný fyrir undrum nátt­úr­unnar. Upptökur á þátta­röð­inni stóðu yfir í meira en þrjú ár í 40 löndum og verður hún vafa­laust enn magn­aðri en sú fyrri.

Meðal þess sem áhorf­endur fengu að sjá í fyrsta þætt­inum var æsispenn­andi flótti ungra igu­ana-eðla frá snákum, leti­dýr á sundi og mör­gæsir á Suð­ur­skauts­land­inu. Áhorf­endur verða lík­lega ekki fyrir von­brigðum með næstu þætti sem meðal ann­ars leyfa okkur að skyggn­ast inn í líf snæ­hlé­barða í fyrsta sinn og fylgj­ast með elt­inga­leik ljóna við vís­und.

Frá því fyrri þátta­röðin var fram­leidd fyrir 10 árum síðan hefur margt breyst og má að miklu leiti þakka tækni­fram­förum fyrir þær myndir sem Planet Earth II færir okkur. Meðal nýj­ung­anna eru drónar sem gerðu fram­leið­endum þátt­anna kleift að taka myndir úr lofti á auð­veldan hátt. Auk drón­anna hafa mynda­vélar orðið stöðugri svo auð­veld­ara er að fylgja dýrum eftir og svo­kall­aðar njósn­a­mynda­vélar eru í dag svo næmar að þær nema jafn­vel and­ar­drátt dýra sem koma upp að þeim.

Planet Earth II kemur á mik­il­vægum tíma­punkti því aldrei hefur lífi á jörð­inni verið ógnað eins mikið og nú. Síðan árið 1970 hefur villtum dýrum fækkað um 58% á heims­vísu og er talið að talan fari upp í 67% fyrir lok ára­tug­ar­ins. Útdauða­hrin­una sem nú stendur yfir má að mestu leiti rekja til áhrifa manna á umhverfi sitt og ef ekk­ert verður að gert er óvíst hvort næsta Planet Earth þátta­röð verði eins stór­brotin og fyrstu tvær.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár