Fasteignamat Hörpu lækkað verulega en verður samt áfrýjað

Þjóðskrá Íslands hefur birt nýtt fast­eigna­mat fyrir Hörpu. Það er mun lægra en fyrra mat og gerir það að verkum að Harpa á inni háar fjár­hæðir í ofgreidd fast­eigna­gjöld. En stjórn húss­ins telur samt að matið fyrir 2017 sé of hátt. Og ætlar að áfrýja því.

Þjóðskrá Íslands hefur end­ur­metið fast­eigna­mat Hörpu aftur til árs­ins 2011. Samkvæmt end­ur­mat­inu mun Harpa eiga inni umtals­verða fjár­muni vegna greiðslu fast­eigna­skatta síð­ustu ár. Þetta er gert í kjöl­far þess að Hæsti­réttur Íslands ógilti í febr­úar síð­ast­liðnum mat yfir­fast­eign­ar­mats­nefndar um að mun hærra fast­eigna­mat, sem leiddi af sér mörg hund­ruð milljón króna fast­eigna­skatta á ári, ætti að standa.

Þótt að nýja matið, sem byggir á nýrri for­múlu Þjóð­skrár til að reikna út mat á tón­listar- og ráð­stefnu­húsum, lækki fast­eigna­skatta Hörpu aft­ur­virkt þá er það samt sem áður hátt. Matið fyrir árið 2017 er tæp­lega 17,8 millj­arðar króna, sem þýðir að Harpa þyrfti að greiða yfir 350 millj­ónir króna í fast­eigna­skatta. Miðað við rekstr­ar­tekjur Hörpu á árinu 2015 færi því þriðj­ungur þeirra í fast­eigna­gjöld, sem greið­ast í borg­ar­sjóð.

Halldór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu, segir að stjórn Hörpu telji að nýja matið fyrir árið 2017, sem notað er sem útgangs­punktur til að reikna sig til baka frá, sé ekki í neinu sam­ræmi við dóm Hæsta­réttar frá því í febr­úar og fast­eigna­mati húss­ins fyrir það ár verði áfrýjað til yfir­fast­eign­ar­mats­nefndar.

Fjóru og hálfu ári eftir að eig­endur Hörpu skaut gamla fast­eigna­mati húss­ins til þeirrar nefndar, eftir að málið hefur farið í gegnum bæði hér­aðs­dóm og Hæsta­rétt, og eftir að Þjóðskrá Íslands hefur lagt í að búa til nýjan mats­flokk til að meta eina tón­listar- og ráð­stefnu­hús lands­ins, þá virð­ist málið að hluta til vera komið í hring. Og við­búið að allt ferlið verði end­ur­tekið næstu árin.

Annar eigendanna rukkar fasteignagjöldin

Það sem gerir þetta mál sér­kenni­legra er að sá aðili sem leggur fast­eigna­gjöldin á, Reykja­vík­ur­borg, er annar eig­andi húss­ins með 46 pró­sent eign­ar­hlut. Íslenska ríkið á 54 pró­sent. Þannig hefur eign­ar­hald­inu verið háttað frá því snemma árs 2009 þegar þessir aðilar ákváðu að taka yfir og klára Hörpuna.

Þá höfðu fram­kvæmdir við bygg­ingu húss­ins, sem Eign­ar­halds­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­ur­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Rekstur Hörpu hefur verið erf­iður. Sam­an­lagt nemur tap Hörpu, fram­lög ríkis og borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lag ríkis og borgar sléttum átta millj­örðum króna frá byrjun árs 2011 og til síð­ustu ára­mót.

Rekst­ur­inn hefur þó batnað mikið síð­ustu ár ef horft er til aukn­ingar á rekstr­ar­tekj­um. Árið 2011 voru þær 482 millj­ónir króna en í fyrra voru rekstr­ar­tekj­urnar 1.066 millj­ónir króna. Þær meira en tvö­föld­uð­ust því á fimm árum og hækk­uðu ár frá ári.

Rekstr­ar­gjöld hafa að sama skapi vax­ið. Árið 2012 voru þau um 1.229 millj­ónir króna. Í fyrra voru þau 1.349 millj­ónir króna.

Fasteignaskattar óvissuþáttur

Einn helsti óvissu­þátt­ur­inn í rekstri Hörpu und­an­farin ár hefur snú­ist um greiðslu fast­eigna­gjalda. Í maí 2011 var Harpan tekin í not­k­un. Í sama mán­uði til­­kynnti Þjóð­­skrá Íslands rekstr­ar­fé­lagi Hörpu um að fast­­eigna­­mat tón­list­­ar- og ráð­­stefn­u­hús­s­ins væri reiknað 17 millj­­arðar króna fyrir árið 2012, og var þar miðað við ­bygg­ing­ar­kostn­að þess. Það mat gerði það að verkum að fast­­eigna­­gjöld sem Harpa þurfti að greiða Reykja­vík­­­ur­­borg voru 355 millj­­ónir króna vegna þess árs. Árið 2012 úrskurð­aði yfir­fast­eigna­mats­nefnd að rekstr­ar­fé­lag Hörpu ætti að greiða þá upp­hæð í slík gjöld vegna þess árs. Síðan hefur félag­inu verið gert að greiða sam­bæri­lega upp­hæð á ári í slík gjöld.

Harpa vildi ekki una nið­ur­stöð­unni, og skaut henni til dóm­stóla, enda ljóst að þorri rekstr­ar­tekna Hörpu fyrstu árin myndi renna ein­vörð­ungu til greiðslu fast­eigna­gjalda. Það sem gerði stöð­una enn sér­kenni­legri er að fast­eigna­gjöldin greið­ast til Reykja­vík­ur­borg­ar, ann­ars eig­anda Hörpu.

Í maí í fyrra hafn­aði hér­aðs­dómur Reykja­víkur kröfu Hörpu um að úrskurður yfir­fast­eigna­mats­nefndar yrði ógild­ur. Hall­dór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu, sagði við Kjarn­ann við það til­efni að álagn­ingin væri mjög órétt­lát. „Það er alveg jafn ljóst nú og var áður, þótt veltan hjá Hörpu hafi auk­ist mik­ið, að þessi rekstur stendur ekki undir þessum álög­­um.“

Í febr­úar 2016 ógilti Hæsti­réttur Íslands síðan mat­ið. Það leiddi til þess að fast­eigna­skattar Hörpu vegna árs­ins 2015 lækk­uðu umtals­vert á milli ára. Þeir voru 366 millj­ónir króna árið 2014 en 135 millj­ónir króna árið 2015. Dómur Hæsta­réttar var auk þess aft­ur­virkur og nær aftur til árs­ins 2011. Í árs­reikn­ingi Hörpu fyrir árið 2015 sagði að of snemmt væri að segja til hversu háar þær fjár­hæðir sem muni skila sér aftur til Hörpu verði en lík­legt sé að heild­ar­á­hrifin verði að minnsta kosti 950 millj­ónir króna án vaxta. „Ein­ungis er búið að færa áhrifin vegna árs­ins 2015 í efna­hags­reikn­ing, en þau nemur 242 millj­ónum króna. Í ljósi þess­arar stöðu er það mat stjórn­enda að sam­stæðan geti staðið við allar sínar skuld­bind­ingar sem falla til næstu 12 mán­uði. Ef mat stjórn­enda gengur ekki eftir ríkir veru­legur vafi um rekstr­ar­hæfi sam­stæð­unn­ar.“

Hið nýja fast­eign­ar­mat Hörpu gerir það að verkum að þegar greidd fast­eign­ar­gjöld síð­ustu ára lækka veru­lega og Harpa á inni umtals­verða fjár­hæð. Hins vegar er ljóst að matið vegna árs­ins í ár og þess næsta færir fast­eign­ar­gjöldin á ný í þær hæðir sem þau voru árið 2011, þegar deilan hófst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár