Hvers vegna fáum við bólur?

Þeir finn­ast örugg­lega ekki margir sem hafa gaman af því að fá bólur, sér­stak­lega í and­litið. Stundum verður ástandið svo slæmt að fólk þarf að leita sér aðstoðar hjá lækni sem oft hefur ekki sér­lega mörg ráð uppí erminni og ráðin reyn­ast líka mis­vel.

Ástæða þess að við fáum bólur er sú að á húð­inni búa millj­ónir bakt­ería sem í flestum til­fellum eru vinir okkar og verja húð­ina okkar. Hins vegar kemur það fyrir að bakt­er­í­urnar fest­ast ofan í hár­sekkjum, þar sem aðstæður er slæmar og þá valda bakt­er­í­urnar sýk­ingum. Nýlega var birt rann­sókn í Science Immunology þar sem þessu ferli er lýst.

Í rann­sókn­inni var unnið með bakt­eríu sem þekkt er að valdi bólum Propionibacterium acnes (P. acnes). Þessi bakt­ería tekur einnig þátt í að vernda húð­ina, en undir vissum kring­um­stæðum, þegar bakt­er­ían kemst í loft­firrtar aðstæður þar sem mikil húð­fita er til staðar getur orðið þar sýk­ing. Til að skoða hvernig bakt­er­ían hag­aði sér á húð vann vís­inda­hóp­ur­inn með mýs og skoð­aði hvernig húð þeirra brást við aðstæðum.

Þegar P. acnes lendir í loft­firrðum aðstæðum byrjar bakt­er­ían að seyta frá sér fitu­sýrum. Fitu­sýr­urnar hindra virkni ens­íma sem frumur í ysta lagi húð­ar­innar tjá og reiða sig á. Þegar ens­ímin eru ekki lengur virk fer í gang bólgu­svar, vegna þess að húð­frum­urnar eru jú að reyna að verja sig og lík­amann. Þetta bólgu­svar er svo bólurnar sem geta brot­ist misilla út á húð ein­stak­linga.

Rannsókn sem þessi gefur okkur grunn­inn að því hvers vegna bólur mynd­ast. Með því að skilja fer­il­inn eru meiri líkur á því að geta þróað betri aðferðir til að koma í veg fyrir bólur. Frekari rann­sóknir eru á döf­inni hjá rann­sókn­ar­hópnum sem vill meðal ann­ars skil­greina hvers vegna þetta ferli er svo mis­mun­andi milli ein­stak­linga. Fjallað er um rann­sókn­ina hjá Medical Xpress og New Scientist.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár