Styrkur koltvísýrings í sögulegu hámarki

Árið 2015 mark­aði mik­il­væg tíma­mót þegar koltví­sýr­ingur í and­rúms­loft­inu náði í fyrsta sinn, síðan mæl­ingar hófust, yfir 400 millj­ón­ustu hlutum (ppm) á heims­vísu. Allt útlit er fyrir það að staðan verði enn verri í ár og er búist við því að árið 2016 verið fyrsta árið sem fram úr því marki á heild­ina litið. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóða­veð­ur­fræði­stofn­un­ar­innar.

Þrátt fyrir að losun koltví­sýr­ings af manna­völdum hafi nokkurn veg­inn staðið í stað á milli áranna 2014 og 2015 varð El Niño veð­ur­fyr­ir­bærið til þess að magn þess í and­rúms­loft­inu hækk­aði mikið. Þetta má rekja til þess að El Niño olli miklum þurrkum á hita­belt­is­svæðum sem gerði það að verkum að gróður átti erf­ið­ara með að draga í sig koltví­sýr­ing. Í ofaná­lag olli þurrk­ur­inn skóg­ar­eldum sem gerðu stöð­una enn verri.

Það að koltví­sýr­ingur sé yfir 400ppm segir okkur að 400 sam­eindir koltví­sýr­ings séu fyrir hverja milljón sam­eindir í and­rúms­loft­inu. Sér­fræð­ingar telja að um fimm milljón ár séu síðan styrkur koltví­sýr­ings var svo hár að stað­aldri og að fyrir árið 1800 hafi hann verið um 280ppm.

Koltví­sýr­ingur er ekki eina gróð­ur­húsa­loft­teg­undin sem hefur auk­ist í and­rúms­loft­inu. Árið 2015 var styrkur met­ans til dæmis 2,5 sinnum hærri en fyrir iðn­bylt­ingu og nit­uroxíðs 1,2 sinnum hærri.

Í byrjun nóv­em­ber munu um 200 þjóðir funda í Marokkó til að ræða næstu skref í kjöl­far Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Alþjóða­veð­ur­fræði­stofn­unin leggur áherslu á að fram­kvæmd sátt­mál­ans verði flýtt eins mikið og auðið er til að sporna gegn hlýnun jarðar og að áhersla verði lögð á tak­mörkun á koltví­sýr­ingi í and­rúms­loft­inu.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár