Prótínrík fæða gæti takmarkað ávinning þyngdartaps

Mataræði skiptir gríð­ar­lega miklu máli þegar kemur að heils­unni. Allt kerfið okkar, lík­am­inn, byggir á því að við fáum nægi­lega mikla orku og að orkan sem við borðum gefi okkur öll þau lífs­nauð­syn­legu vítamín og stein­efni sem lík­am­inn þarf að nota. Í vest­rænum sam­fé­lögum er ekki skortur á orku­ríkum mat og vand­inn felst yfir­leitt í því að fá nægi­lega góða nær­ingu án þess að inn­byrða of mikla orku. Þetta lúx­us­vanda­mál leiðir til þess að við þyngj­umst ótæpi­lega og það sem verra er þá leiðir þetta af sér alls kyns sjúk­dóma á borð við syk­ur­sýki tvö.

Margir hafa því farið í gegnum alls kyns breyti­leg matar­æði til að draga úr orku­inn­tök­unni. Eitt slíkt matar­æði sem er nokkuð vin­sælt og hefur reynst mörgum vel snýst um að auka vægi prótína í fæðu og þá oft­ast á kostnað kol­vetna. Rannsókn sem birt­ist á dög­unum í Cell Reports bendir til þess að aukin inn­taka prótína geti truflað áhrif þyngd­ar­taps­ins á lík­amann.

Rann­sóknin var unnin við Washington Uni­versity, en við­fangs­efni hennar voru 34 konur sem áttu það sam­eig­in­legt að vera komnar yfir tíða­hvörf og með BMI stuðul yfir 30, s.s. í offitu. Konunum var skipt í þrjá til­vilj­ana­kennda hópa, einn hóp­ur­inn breytti engu í matar­æði sínu, hinir tveir fengu strangt matar­æði sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn stjórn­aði og átti að draga úr þyngd kvenn­anna. Fékk annar með­höndl­un­ar­hóp­ur­inn prótín­rík­ari fæðu en hinn, en mark­miðið var að skoða hvaða áhrif prótín­rík fæða hefði á efna­skipti kvenn­anna.

Báðir með­höndl­un­ar­hóp­arnir létt­ust á breyttu matar­æði. Þegar efna­skipti hópanna voru skoðuð kom í ljós að munur var á insúlín-næmi þeirra eftir með­höndlun. Þær konur sem borð­uðu prótín­rík­ari fæðu voru ekki eins næmar fyrir insúl­íni m.v. hóp­inn sem ekki neytti auka prótína. Minna insúlín-næmi er eitt af upp­hafs­stigum syk­ur­sýki tvö, en sú týpa af syk­ur­sýki er til­komin vegna þess að lík­ams­frum­urnar verða ónæmar fyrir insúl­íni.

Þessar nið­ur­stöður segja okkur að konur í ofþyngd eftir tíða­hvörf græða að öllum lík­indum ekki á því að létt­ast með því að auka inn­töku prótín­ríkrar fæðu, ef horft er til áhættu á syk­ur­sýki tvö. Hins vegar væri áhuga­vert að skoða hver áhrifin væru í ann­ars konar sam­setn­ingu af fólki, svo sem meðal karla, meðal yngri þátt­tak­enda og meðal þeirra sem hafa þegar þróað með sér syk­ur­sýki tvö.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár