Aukning í þroskun eggfrumna óvænt aukaverkun krabbameinslyfs

Auka­verk­anir lyfja eru sjaldn­ast af hinu góða og á það ekki síst við um krabba­meinslyf sem hafa mörg nei­kvæð áhrif á frjó­semi sjúk­lings­ins. Vís­inda­mönnum var því nokkuð brugðið þegar konur sem fengu krabba­meinslyfið ABVD sýndu óvænt auk­inn fjölda þroskaðra egg­frumna. Sé hægt að stað­festa nið­ur­stöð­urnar gætu þær koll­varpað því sem við höfum talið okkur vita um frjó­semi kvenna.

Hópur vís­inda­manna ákvað að rann­saka áhrif krabba­meinslyfs­ins ABVD á frjó­semi eftir að í ljós kom að það virt­ist ekki hafa nei­kvæð áhrif á frjó­semi sjúk­linga, ólíkt flestum öðrum krabba­meinslyfjum. Til að kanna það hvað lægi baki voru tekin vefja­sýni úr eggja­stokkum 11 kvenna sem allar voru með Hodgkin eitilfrumu­krabba­mein. Af þeim höfðu átta konur fengið ABVD í lyfja­gjöf sinni og þrjár lyfið OEPA-COPDAC sem þekkt er fyrir að valda ófrjó­semi. Einnig voru tekin sýni úr 10 heil­brigðum konum til sam­an­burðar.

Nið­ur­stöð­urnar sýndu, öllum að óvörum, að kon­urnar sem fengið höfðu ABVD höfðu tvisvar til fjórum sinnum fleiri líf­væn­legar egg­frumum er konur í sam­an­burð­ar­hópnum. Konurnar sem fengu ABVD virt­ust ekki glíma við frjó­sem­is­vanda­mál en egg þeirra þrosk­uð­ust þó ekki jafn vel og egg heil­brigðu kvenn­anna. Þær konur sem fengu OEPA-COPDAC höfðu mark­tækt færri heil­brigðar egg­frumur en konur hinna hópanna tveggja.

Úrtak rann­sókn­ar­innar var afar lítið og er því erfitt að draga álykt­anir út frá nið­ur­stöð­unum. Evelyn Telfer, sem stýrði rann­sókn­inni, bendir þó á að mun­ur­inn á milli hópanna sé mik­ill og telur að fjöldi og útlit eggja kvenn­anna sem fengu ABVD bendi til þess að um nýjar frumur hafi verið að ræða. Telfer varar þó við því að lyfið sé nýtt í þeim til­gangi að auka frjó­semi áður en vís­inda­legur grund­völlur sé fyrir slíkum með­ferðum.

Fram að þessu hefur verið talið útséð með það að fjöldi egg­fruma kvenna sé tak­mark­aður. Ef hægt er að stað­festa nið­ur­stöð­urnar með frek­ari rann­sóknum gæti upp­götv­unin því breytt þeirri mynd sem við höfum nú um frjó­semi kvenna.

Ekki eru allir sann­færðir um ágæti rann­sókn­ar­innar. Meðal þeirra er Nick Macklon, pró­fessor í fæð­ingar- kven­sjúk­dóma­lækn­ingum, sem sagði í sam­tali við The Guardian að nið­ur­stöð­urnar veki í raun upp fleiri spurn­ingar en þær svara. Enn sem komið er sé ekk­ert sem bendi til þess að aðferðin komi raun­veru­lega til með að virka. Hann tók einnig undir áhyggjur Telfer og benti á hætt­una á því að með­ferð­ina væri nýtt áður en frek­ari rann­sóknir lægju fyrir.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru kynntar á European Society of Human Reproduction and Embryology í Helsinki júlí og bíða nið­ur­stöð­urnar enn birt­ingar í rit­rýndu tíma­riti.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár