Er lækning við HIV í augsýn?

HIV eða human immunodeficiency virus er veira sem leggst á ónæm­is­kerfi þeirra sem af henni sýkj­ast og veldur sjúk­dómnum alnæmi. HIV er gædd þeim eig­in­leika að hún getur verið til staðar í frumum manns­lík­am­ans án þess að vera virk. Hvatinn birti fyrr á árinu mynd­band sem sýnir hvernig veiran vinnur.

Lyf sem í dag eru notuð til að halda veirunni í skefjum koma í veg fyrir að veiran geti fjölgað sér í frumum þar sem hún er virk. Lyfin geta hins vegar ekki ráð­ist á veirur sem eru á óvirku formi í frumum og þess vegna þarf HIV sjúk­lingur alltaf að vera á lyfjum sem halda veirunni niðri, án þess að eyða henni.

Lengi hefur verið leitað að lækn­ingu við HIV, að lyfi sem getur eytt veirunni með öllu úr lík­ama sjúk­lings­ins, en án árang­urs. Til að mæta þessum vanda sem fjöldi vís­inda­hópa um allan heim hefur reynt að leysa hafa því nokkrir stærstu háskólar Bret­lands tekið höndum saman. Vís­inda­hóp­arnir hafa ólíkan bak­grunn og koma því með ólíkar nálg­anir og þekk­ingu að borð­inu.

Hóparnir hafa nú hrint af stað klínískum rann­sóknum á lyfi sem þau hafa þróað í sam­ein­ingu. Lyfinu er ætlað að virkja veiruna í þeim frumum lík­am­ans þar sem hún er óvirk og um leið er hefð­bund­inni lyfja­gjöf beitt, sem drepur frumur þar sem veiran er að fjölga sér. Enn sem komið er lofar til­raunin góðu, þar sem litlar auka­verk­anir virð­ast fylgja lyfja­gjöf­inni, en lyfja­blandan var prófuð á 50 manna hópi. Fyrsti sjúk­ling­ur­inn hefur nú þegar lokið með­ferð, en nokkur tími þarf að líða áður en hægt verður að mæla hvort tek­ist hefur að losna við veiruna með öllu.

Vís­inda­hóp­arnir sendu frá sér frétta­til­kynn­ingu um rann­sókn­ina þar sem tekið er fram að þó fyrstu nið­ur­stöður lofi góðu verði ekki hægt að segja til um árangur lyfs­ins fyrr en hægt verður að mæla til­vist veirunnar í blóði sjúk­linga ein­hverjum tíma eftir með­ferð. Við verðum því að bíða til 2018 áður en við fáum svarið við því hvort lækn­ingin við HIV sé fundin. Þá munum við von­andi líka geta lesið um rann­sókn­ina og virkni lyfs­ins en enn sem komið er hefur hóp­ur­inn ekki birt neinar nið­ur­stöður í rit­rýndum tíma­ritum.

Fréttin birt­ist fyrst á vefnum Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár