Sigmundur um sigurinn á „kerfinu“ og tækifærin framundan

Sig­mundur Davíð tal­aði í rúman klukku­tíma á mið­stjórn­ar­fundi í Fram­sókn­ar­flokknum í dag. Hann fór um víðan völl, greindi stjórn­mála­á­standið í heim­inum, rakti stefnu­málin og líkti sér við Danny Ocean, svo fátt eitt sé nefnt.

Hann lítur nú út eins og hann sé að flytja ræðu á fundi hjá Viðreisn, sagði Sigmundur Davíð þegar hann birti mynd af Paul Singer, stjórnanda vogunarsjóðsins Elliot Management.
Hann lítur nú út eins og hann sé að flytja ræðu á fundi hjá Viðreisn, sagði Sig­mundur Davíð þegar hann birti mynd af Paul Singer, stjórn­anda vog­un­ar­sjóðs­ins Elliot Mana­gement. Mynd: Skjáskot / RÚV

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, fór um víðan völl í ávarpi sínu á haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hofi á Akureyri í dag. Fyr­ir­lest­ur­inn hans stóð í rúman klukku­tíma þar sem hann byrj­aði á því að fara vítt og breitt yfir lands­lagið í stjórn­málum heims­ins og hafði glæru­sýn­ingu til að styðja við mál sitt.

Hann ræddi um það hvernig stjórn­málin í heim­inum eru að verða óvægn­ari og hvernig jað­ar­hug­sjónir og rót­tæk­lingar eru að ná fót­festu í vest­rænum löndum. Nefndi hann for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum sem dæmi og stjórn­mála­á­standið í hinum ýmsu Evr­ópu­löndum.

Hann sagði að um alla ver­öld væru breytt valda­hlut­föll og að „eftir-kalda­stríðs­heim­i­ur­inn“ væri að hverfa. „Stjórn­mál á vest­ur­löndum eru að taka stakka­skiptum og stjórn­málin á breyt­ast,“ sagði hann. Ástæður þessa væri vegna margra þátta. Til dæmis væri breytt tækni væri að gera ímynd­ar­stjórn­málin sveiflu­kennd­ari og öfga­kennd­ari þar sem mark­aðs­menn aug­lýsa stjórn­mála­menn. En fyrst og fremst hefði valdið færst frá kjós­endum vegna þess að valdið hefði færst frá kjörnum full­trúum til „kerf­is­ins“. Sig­mundur á þar við hinar ýmsu nefndir, ráð og stofn­anir auk fjár­mála­kerf­is­ins alls.

Sigmundur sem Danny Ocean

„Hag­kerfið er hætt að virka eins og það á að virka,“ sagði Sig­mundur. Hann segir alþjóða­fjár­mál­kerfið vera að taka völdin um allan heim. Á Íslandi hafi stjórn­völd sigr­ast á alþjóða­fjár­mála­kerf­inu og Íslend­ingar væru eina þjóðin í heim­inum sem hefði gert það. Um leið birti hann mynd af merki Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Við Íslend­ingar erum for­dæmi fyrir því að hægt er að sigr­ast á þessu kerfi,“ sagði hann. Nú hefði Ísland færi á að grípa tæki­færin sem fram undan eru, ólíkt öðrum löndum sem enn berj­ast við gríð­ar­legar skuldir og/eða eru læst í fjötrum alþjóða­sam­starfs.

Sig­mundur Davíð rak þá í löngu máli hvernig stjórn­völd á Íslandi beittu sér til þess að leyfa alþjóða­fjár­mála­kerf­inu ekki að ná tökum hér á landi, eins og „kerfið„ hefi gert í öðrum löndum í svip­aðri stöðu og Ísland. Nefndi hann Argent­ínu sem dæmi og birti mynd af Paul Singer, stjórn­anda vog­un­ar­sjóðs­ins Elliot Mana­gement.

Þá líkti hann bar­áttu íslenskra stjórn­valda við vog­un­ar­sjóð­ina við banda­rísku kvik­mynd­ina Ocean’s Eleven sem kom út árið 2001. Íslensk stjórn­völd undir hans for­sæti voru í hlut­verki Danny Ocean og teymis hans sem rændu pen­ingum af stóru spila­vít­unum í Las Vegas. Vog­un­ar­sjóð­irnir eru í þessu dæmi spila­vítin.

Verkefni Framsóknar í kosningum

Sig­mundur Davíð lauk ræðu sinni á því að lýsa bar­áttu Fram­sókn­ar­flokks­ins um þessar mundir með myndum af mál­verkum frá orust­unni við Waterloo árið 1815. Þar fundu breskir her­flokkar upp nýtt her­bragð til að mæta sóknum herja Napól­e­ons. Það gerðu þeir með því að raða sér þétt upp á víg­vell­inum, mynda kassa og vísa byssu­stig­unum út. Það fældi fáka sókn­ar­liðs­ins og gaf Bretum færi á að skjóta á óvini sína. Þannig hafði Wellington Napóleon undir.

Sig­mundur Davíð ímyndar sér Fram­sókn­ar­flokk­inn í þess­ari stöðu; standi flokks­menn þétt saman og mæti sókn ann­arra flokka í kosn­ing­unum þá muni Framsókn standa uppi sem sig­ur­veg­ari. Klofni röðin munu hinir flokk­arnir valta yfir þá.

Á haust­fundi mið­stjórnar verður boðað til flokks­þings og félags­starf flokks­ins á kom­andi starfs­ári rætt. Sig­mundur Davíð reif­aði einnig þau mál sem hann vildi að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði að leið­ar­ljósi í kosn­ing­unum 29. októ­ber næst­kom­andi. Svo stiklað sé á stóru þá nefndi hann meðal ann­ars lof­orð um að standa við gefin lof­orð, rétta stöðu öryrkja og aldr­aðra, að fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verði flokkur fyrir landið allt – hvort sem það er í heil­brigð­is­þjón­ustu, fjar­skiptum eða öðrum innviðum og tryggja að Reykja­vík verði höf­uð­borg fyrir landið allt.

„Svo byggjum við nýjan lands­spít­ala. Við höfum efni á því,“ sagði hann einnig og lýsti þeirri skoðun sinni að starf­semin þurfi ekki öll að vera á sama stað. „Það er frá­leitt að við skulum ekki vera lengra komin með það verk­efni. Það þurfa að vera fleiri heil­brigð­is­stofn­anir vítt og breitt um landið,“ sagði hann. Þá vill Sig­mu­dnur Davíð að gert verði stór­á­tak í sam­göngu­málum þar sem lögð verði áhersla á öryggi, við­hald og end­ur­bætur á teng­ingum milli byggða hér á landi.

„Íslenskur land­bún­aður – Við stöndum með honum. Við erum stolt af því að segja það,“ sagði Sig­mundur. Hann seg­ist vera þeirrar skoð­unar að um leið og ný öfl verði til sem vilji kerf­is­breyt­ingar í land­bún­að­ar­málum þá verði það sjálf­krafa afstaða Fram­sókn­ar­flokks­ins að standa með kerf­inu eins og það er.

Barátta Sigmundar

Að lok­inni ræð­unni, sem stóð í rúma klukku­stund, stóðu við­staddir á fætur og klöpp­uðu fyrir honum. Sig­mundur Davíð mun á næst­unni þurfa að berj­ast fyrir stöðu sinni innan flokks­ins. Borist hafa þrjú mót­fram­boð í odd­vita­sæti flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Þar eru á ferð­inni Þórunn Egils­dóttir, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Hösk­uldur Þór­halls­son. Sá síð­ast­nefndi hefur ekki farið leynt með gagn­rýni sína á for­mann­inn og er talið að fram­boð hans í odd­vita­sætið sé eina eig­in­lega mót­fram­boðið; Framboð Þórunnar og Líneikur séu hugs­an­lega gegn Höskuldi.

Á haust­þing­inu er einnig búist við að ákveðið verði hvenær flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins fari fram. Á þeirri sam­kundu er for­ysta flokks­ins valin. Talið er að Sig­mundur Davíð muni einnig þurfa að berj­ast fyrir for­manns­sæt­inu. Hafa bæði Eygló Harð­ar­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son verið nefnd sem hugs­an­legir mót­fram­bjóð­endur gegn Sigmundi. Enginn hefur hins vegar lýst yfir fram­boði.

Í ræðu sinni nefndi Sig­mundur Davíð ekki upp­ljóstr­an­irnar úr Panama­skjöl­unum og Wintris-málið sem varð til þess að hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í byrjun apríl.

Hér að neðan má sjá ræð­una alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár