Kaup Vodafone á völdum eignum 365 fjarri því frágengin

Enn á eftir að sann­reyna hvort rekstr­ar­á­ætl­anir 365 eigi sér stoð í raun­veru­leik­anum áður en að gengið verður frá kaupum á ljós­vaka- og fjar­skipta­eignum þess. Þá eiga eft­ir­lits­stofn­anir eftir að sam­þykkja kaupin. Framtíð frétta­stofu 365 er óljós.

Stór­tíð­indi bár­ust á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði í morgun þegar til­kynnt var um einka­við­ræður milli móð­ur­fé­lags Vodafone og 365 miðla um kaup á ljós­vaka- og fjar­skipta­eignum síð­ar­nefnda fyr­ir­tæk­is­ins. Verði af kaup­unum mun Vodafone auka veltu sína um hátt í tíu millj­arða króna og vera mun betur í stakk búið til að keppa við sinn aðal­keppi­naut, Símann sem þegar rekur víð­feðma sjón­varps­þjón­ustu, á sjón­varps­mark­aði.

Til­kynn­ing um við­ræð­urnar eru stað­fest­ing á því að lín­urnar á milli fjar­skipta og fjöl­miðl­unar, sér­stak­lega ljós­vaka­fjöl­miðl­unar, eru svo gott sem horfnar. Eigendur pípanna sem bera gagna­magn inn í líf okkar á hverjum degi ætla sér líka að keppa sem efn­isveitur til að gera sig meira aðlað­andi í augum sífellt kröfu­harð­ari neyt­enda.

Það er þó margt óljóst varð­andi hin mögu­lega kaup og alls ekki víst að þau verði að veru­leika. Vodafone á enn eftir að fara í gegnum hvort þær upp­lýs­ingar sem stjórn­endur og ráð­gjafar 365 miðla hafa lagt fram um gæði eign­anna stand­ist og eft­ir­lits­stofn­anir eiga eftir að sam­þykkja ráða­hag­inn. Svo á enn eftir að ákveða hvað verður um frétta­stofu 365 og hvernig hún, sem vinnur þvert á alla miðla fyr­ir­tæk­is­ins, á að passa inn í þessu áform.

Skrifað undir í morgun

Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri Vodafone, segir að nú sé fram undan nokk­urra mán­aða vinna við að átta sig á öllum atriðum hinna mögu­legu kaupa. Gangi kaupin eftir sam­kvæmt þeim for­sendum sem fyrir liggja ætti að vera hægt að ganga frá kaup­samn­ingi fyrir jól. Þá ættu eft­ir­lits­að­ilar hins vegar eftir að taka kaupin til umfjöll­unar. Gangi við­skiptin eftir má því gera ráð fyrir að ekki verið gengið end­an­lega frá þeim fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2017.

Stefán segir að þar sem Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, sé skráð félag á mark­aði hafi þurft að til­kynna um einka­við­ræð­urnar og for­sendur þeirra strax og þær lágu fyrir til að gæta að jafn­ræði hlut­hafa. „Stjórn félags­ins gaf okkur umboð til að hefja einka­við­ræður um kaupin í gær og það var skrifað undir sam­komu­lag þess efnis í morgun. Það hafa því ekki verið í gangi neinar við­ræður utan óform­legra þreif­inga milli ráð­gjafa sem leiddu til þess að þær for­sendur um einka­við­ræður sem til­kynnt var um í morgun voru settar saman.“

Framtíð fréttastofu óljós

Það sem Vodafone vill kaupa er sjón­varps- og útvarps­rekstur 365 miðla ásamt fjar­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins. Það þýðir að sjón­varps­stöðvar á borð við Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­ina eru undir ásamt útvarps­stöðvum á borð við Bylgjuna, FM957 og X-ið. Í til­kynn­ingu vegna við­ræðn­anna segir að þær eignir sem séu und­an­skildar séu Frétta­blaðið og vef­ur­inn Vísir.is. Þar segir enn fremur að „365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri frétta­stofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.“

Í dag eru frétta­stofa 365 miðla, sem fram­leiðir efni í alla miðla fyr­ir­tækis, ein ein­ing. Þ.e. hún vinnur efni inn í dag­blaðið Frétta­blaðið, á vef­inn Vísi.is, í sjón­varps­fréttir Stöðvar 2 og á útvarps­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. Hún til­heyrir því bæði ljós­vaka­hlut­anum, sem Vodafone vill kaupa, og prent- og vef­hlut­anum, sem skilin verður eftir í 365 miðlum. Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365 miðla, sagði á starfs­manna­fundi í morgun að frétta­stofa fyr­ir­tæk­is­ins yrði ekki seld en að það kæmi til greina að gera þjón­ustu­samn­ing um að sýna kvöld­fréttir Stöðvar 2 á sjón­varps­stöðvum Vodafone. Þá yrði gerður þjón­ustu­samn­ingur um það.

Aðspurður um hvort að frétta­stofa 365 muni fylgja með í kaup­unum verði af þeim, eða hvort hún verði skilin eftir í 365 miðlum, segir Stefán að það liggi ekki fyrir. Viðræður séu ein­fald­lega ekki komnar svo langt og því væri óábyrgt á þessum tíma­punkti að tjá sig um hvort gerður yrði þjón­ustu­samn­ingur við frétta­stof­una um kaup á efni ef hún yrði ekki keypt og hvernig hann yrði útfærður.

Veltan á að verða 23 milljarðar

Vodafone ætlar sér að greiða 3,4 millj­arða króna fyrir þær eignir 365 miðla sem félagið hefur áhuga á að kaupa. For­sendur þess kaup­verðs eru grund­vall­aðar á því að þær upp­lýs­ingar ráð­gjafa 365 um rekstur og virði þeirra eigna stand­ist. Þar ber helst að nefna að rekstr­ar­hagn­aður (EBITDA) þeirra gæti numið allt að tveimur millj­örðum króna á árs­grund­velli. Það er tvö­faldur rekstr­ar­hagn­aður 365 miðla í fyrra, þegar hann nam 955 millj­ónum króna. Hluti þess­arar upp­hæðar mun nást fram með sam­lægð­ar­á­hrifum í fjar­skipta­þjón­ustu 365, þar sem henni verður ein­fald­lega rent inn í Vodafone.

Helm­ingur kaup­verðs­ins á að greið­ast með reiðufé en hinn helm­ing­ur­inn með nýjum hlutum í Fjar­skiptum, móð­ur­fé­lagi Vodafone, á verði sem er 16,7 pró­sent hærra en dagsloka­gengi félags­ins í gær. um yrði að ræða 12,2 pró­sent hlut í Fjar­skiptum miðað við útistand­andi hluti í félag­inu í dag. Auk þess ætlar Vodafone að taka yfir vaxta­ber­andi skuldir upp á 4,6 millj­arða króna. Það þýðir að heild­ar­kaup­verðið yrði átta millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu frá Vodafone í gær sagði að hið kaupin á eignum 365 miðla myndu auka veltu félags­ins í 23 millj­arða króna. Það er umtals­verð aukn­ing, þar sem velta þess var 13,7 millj­arðar króna í fyrra. 365 miðlar veltu á hinn bog­inn 11,1 millj­arði króna á árinu 2015. Ef þær eignir sem 365 ætlar að selja yfir til Vodafone velta þeim rúm­lega níu millj­örðum króna sem vantar upp á að ná upp þau veltu­við­mið Vodafone eftir kaupin sem til­kynnt var um í morgun þá þýðir það að þær eignir sem eftir verða í 365 miðlum séu ábyrgar fyrir um 1,8 millj­arða króna veltu, eða um 16 pró­sent hennar.

Til­kynn­ingin um einka­við­ræð­urnar varð til þess að virði hluta­bréfa í Vodafone hækk­aði umtals­vert í Kaup­höll­inni í gær.

Skulda tíu milljarða

Rekstur 365 miðla hefur gengið mis­jafn­lega und­an­farin ár. Fyr­ir­tækið tap­aði til að mynda 1,4 millj­örðum króna árið 2014 en hagn­að­ist um 22 millj­ónir króna í fyrra. Sú tala segir reyndar ekki alla sög­una því ef skatta­skuld sem fyr­ir­tækið greiddi á árinu 2015 hefði verið færð í rekstr­ar­reikn­ing hefði 365 tapað 350 millj­ónum króna. Þess í stað var hin greidda skatta­skuld færð sem krafa, þar sem stjórn­endur 365 við­ur­kenna ekki nið­ur­stöðu skatt­yf­ir­valda og ætla með málið fyrir dóm­stóla.

Í til­kynn­ingu frá Vodafone vegna ætl­aðra kaupa á hluta eigna 365 kemur fram að eftir í 365 miðlum muni sitja mögu­leg áhætta í tengslum við skatta­leg mál­efni og leigu­skuld­bind­ingar félags­ins. Þar á meðal er umrædd krafa, sem alls óvíst er hvort fáist greidd, og leiga á höf­uð­stöðvum 365 miðla í Skafta­hlíð. Ef af kaup­unum verður virð­ist því ljóst að ljós­vaka- og fjar­skipta­starf­semi 365 miðla flytj­ist annað.

Í fyrra voru 320 millj­ónir króna greiddar inn sem nýtt hluta­fé í 365. Árið áður var greitt inn 445 millj­ónir króna í nýtt hlutafé og því hafa hlut­hafar sam­tals sett inn 765 millj­ónir króna á tveimur árum.

Skuldir 365 miðla hafa vaxið nokkuð hratt á und­an­förnum árum og eru nú alls um tíu millj­arðar króna. Þær hækk­uðu um rúman millj­arð króna í fyrra. Þar munar mest um end­ur­fjár­mögnun á lang­tíma­lánum fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra­haust, þegar það færði sig úr við­skiptum hjá Lands­bank­anum og yfir til­ ­Arion banka. Við þá breyt­ingu juk­ust lang­tíma­skuldir 365 miðla úr 3,6 millj­örðum króna í 4,8 millj­arða króna. Í árs­reikn­ingnum segir að þessi breyt­ing hafi leitt til lækk­unar á end­ur­greiðslu­byrði fyr­ir­tæk­is­ins á næst­u árum, sem þýðir að lengt hafi verið umtals­vert í lánum þess. Allar eignir 365 miðla eru veð­settar sem trygg­ing fyrir end­ur­greiðslu lána fyr­ir­tæk­is­ins hjá ­Arion banka. Vaxta­gjöld lækk­uðu við þetta úr 568 millj­ónum króna í 541 millj­ón króna.

Vodafone ætlar sér að taka yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum 365 ef af kaupum félags­ins á völdum eignum verður.

Má Vodafone kaupa Tal?

Fjar­skipta­hluti 365 miðla er að mestu til­komin vegna sam­ein­ingar félags­ins við Tal í lok árs 2014. Í þeim við­skiptum fengu hlut­hafar Tals, sem meðal ann­ars eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, um 20 pró­sent hlut í 365.

Tal hafði þá lengi glímt við rekstr­ar­erf­ið­leika og mikið tap og reynt að leita að aðilum til að sam­ein­ast til að ná fram nauð­syn­legri stærð­ar­hag­kvæmni. Og oftar en ekki hafði Vodafone verið sá aðili.

Á árinu 2008 rak IP Fjar­skipti fjar­skipta­þjón­ustu sína undir nafn­inu Hive. Á sama tíma var Vodafone í eigu Teymis, sem átti dótt­ur­fé­lagið Ódýra síma­fé­lagið sem rak fjar­skipta­þjón­ustu undir nafn­inu SKO. Þessi tvö félög voru sam­einuð og nýja félagið fékk nafnið Tal. Móð­ur­fé­lag Vodafone eign­að­ist 51 pró­sent í IP Fjar­skiptum, móð­ur­fé­lagi Tals, við þennan sam­runa. Sam­keppn­is­eft­ir­litið veitti sam­þykki fyrir sam­run­anum en með þeim skil­yrðum að hann yrði til að auka sam­keppni.

Í jan­úar 2009 gerði eft­ir­litið hús­leitir í höf­uð­stöðvum allra hlut­að­eig­andi að sam­run­anum og um mitt það ár birti það ákvörðun sína um að fyr­ir­tækin hefðu brotið gegn sam­keppni á mark­aði með sam­stilltum aðgerðum. Teymi var gert að greiða stjórn­valds­sekt upp á 70 millj­ónir króna og gert að selja frá sér eign­ar­hlut­inn í Tali.

Samkeppniseftirlitið sagði nei

Árið 2011 var reynt aftur. Þá stóð til að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, myndi kaupa Tal og var til­kynnt um þá fyr­ir­ætlan. Sam­keppn­is­eft­ir­litið ógilti hins vegar þann sam­runa vegna rösk­unar á fjar­skipta­mark­aði. Þar sagði að Tal væri „mik­il­vægur keppi­nautur bæði Símans og Vodafone þar sem félagið býður upp á heild­ar­lausnir á sviði fjar­skipta á smá­sölu­mark­aði og er með meiri breidd í þjón­ustu­fram­boði en aðrir keppi­nautar Símans og Vodafone. Þessi þrjú fyr­ir­tæki eru hin einu hér á landi sem veita heild­ar­fjar­skipta­þjón­ustu á smá­sölu­mark­aði sem m.a. heim­ili nýta sér. Minni keppi­nautar á fjar­skipta­mark­aði eru háðir Símanum og Vodafone um aðgang að fjar­skipta­netum þeirra á heild­sölu­stigi til þess að geta veitt fjar­skipta­þjón­ustu í sam­keppni við Símann og Vodafone á smá­sölu­mark­aði.“

Margt hefur vissu­lega breyst á fjar­skipta­mark­aði frá því að þessi ákvörðun var tekin, og Nova t.d. fært út starf­semi sína þannig að fyr­ir­tækið er farið að selja ljós­leið­ara­teng­ingar. Þá hefur vöru­fram­boð og hlut­deild Hringdu vaxið ár frá ári, þótt fyr­ir­tækið sé enn lítið í sam­an­burði við risanna á mark­aðnum.

Áhuga­vert verður að sjá hvort Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi breytt afstöðu sinni frá árinu 2011 því í kaupum Vodafone á 365 miðlum felst sann­ar­lega sam­ein­ing í það sem einu sinni hét Tal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár