Félag Sigurðar Bollasonar í Lúxemborg í hluthafahópi 365 miðla

Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að þrír aðilar með rík tengsl við Lúx­em­borg hafi sett 550 millj­ónir króna inn í 365 miðla. Fjöl­miðla­nefnd óskaði eftir upp­lýs­ingum um hverjir end­an­legir eig­endur nýrra hlut­hafa eru. Einn þeirra er Sigurður Bollason.

Fjöl­miðla­nefnd hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um hverjir séu end­an­legir eig­endur tveggja félaga sem bæst hafa í eig­enda­hóp 365 miðla. Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að félögin, ML 120 ehf. og Grandier S.A., hefðu sam­þykkt að kaupa nýtt hlutafé í 365 miðlum á gaml­árs­dag í fyrra fyrir sam­tals 230 millj­ónir króna. Innkoma félag­anna, sem bæði eru með rík tengsl við Lúx­em­borg, í hlut­hafa­hóp 365 miðla var ekki til­kynnt til Fjöl­miðla­nefndar líkt og lög gera ráð fyrir.

Samkvæmt Elfu Ýr Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Fjöl­miðla­nefndar, bár­ust hins vegar upp­lýs­ingar um eig­enda­breyt­ingar nefnd­inni í gær, 1. maí, og var heima­síðu hennar upp­færð í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar í morgun. Þar hafi þó vantað upp­lýs­ingar um end­an­lega eig­endur ML 120 ehf. og Grandier S.A. og í kjöl­farið hafi því verið óskað eftir þeim. Nú síð­degis var heima­síða Fjöl­miðla­nefndar upp­færð á ný með upp­lýs­ingum að Grandier S.A. sé í eigu Sigurðar Bolla­sonar. Enn vantar þó upp­lýs­ingar um end­an­legt eign­ar­hald á ML 120 ehf. Einar Þór Sverr­is­son, stjórn­ar­maður í 365 miðlum, segir í tölvu­pósti til Kjarnans að um mis­ritun sé að ræða í þeim gögnum sem send voru fyr­ir­tækja­skrá. ML 120 ehf. sé ekki eig­andi í 365 miðlum.

Vildu ekki upplýsa hverjir nýir eigendur eru

Kjarninn greindi frá því á laug­ar­dag að í lok síð­asta árs, nánar til­tekið á gaml­árs­dag, hafi verið sam­þykkt hluta­fjár­aukn­ing í 365 miðl­u­m. Þá skráðu þrír aðilar sig fyrir nýju hlutafé og borg­uðu sam­tals 550 millj­ón­ir króna fyr­ir. Allir aðil­arnir þrír eru með rík tengsl við Lúx­em­borg. Og við hjónin Ingi­björgu Stef­aníu Pálma­dóttur og Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Þetta kom fram í skjölum sem send hafa verið til fyr­ir­tækja­skrá­ar. Þegar Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum hjá Sævari Frey Þrá­ins­syni, for­stjóra 365 miðla, um hverjir hinir nýju eig­endur væru feng­ust ekki svör við því.

[adspot]

Þótt hluta­fjár­aukn­ingin hafi verið ákveðin á fundi á gaml­árs­dag þá barst fyr­ir­tækja­skrá ekki til­kynn­ing um breyt­ingu á hlutafé 365 miðla fyrr en 26. febr­úar 2016. Í þeirri til­kynn­ingu kom fram að hluta­féð hefði verið hækkað um 550 millj­ónir króna og að þrír aðilar hefðu skuld­bundið sig til að greiða þá upp­hæð fyrir hið nýja hlutafé. Tveir þeirra kaup­end­anna keyptu á geng­inu 1,16 krónur á hlut, sem þýðir að þeir tengj­ast fyrri meiri­hluta­eig­endum. Einn keypti hins vegar á geng­inu 1,0 krónur á hlut, sem gefur til kynna að þar eigi að vera aðili sem sé óháður þeim meiri­hluta­eig­endum.

Tvö félög í eigu Ingibjargar

Það félag sem keypti mest var Moon Capi­tal S.a.r.l., skráð í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem skráði sig fyrir nýju hlutafé upp á 230 millj­ónir króna. Hinn aðil­inn sem greiddi 1,16 krónur á hlut í aukn­ing­unn­i, og borg­aði alls 120 millj­ónir króna í reiðufé inn í fyr­ir­tæk­ið, var sagður vera ML 120 ehf. Félagið er skráð til heim­ilis á Suð­ur­lands­braut 4, hjá lög­mann­stof­unn­i ­Mörk­inni.

Einar Þór Sverr­is­son, einn eig­anda Mark­ar­innar og stjórn­ar­maður í 365 miðlum, segir að ML 120 ehf. sé ekki í eig­enda­hópi 365 miðla. Um mis­ritun hafi verið að ræða í fund­ar­gerð stjórnar 365 miðla sem send var til fyr­ir­tækja­skráar. Sá aðili sem skráði sig fyrir hinu nýja hlutafé er ML 102 ehf., félag sem er skráð í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur.

Stjórnarmenn með rík tengsl við aðaleigendur 365 miðla

Hinn eig­and­inn sem bætt­ist við hluta­hafa­hóp 365 miðla, og keypti nýtt hlutafé fyrir 200 millj­ónir króna, er félagið Grandier S.A. í Lúx­em­borg. Ekki er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hver sé end­an­legur eig­and­i þess félags en sam­kvæmt til­kynn­ingum sem borist hafa til fyr­ir­tækja­skrá­ar­inn­ar í Lúx­em­borg voru þrír menn skip­aðir í stjórn félags­ins í fyrra­sum­ar, nán­ar til­tekið í júlí 2015. Þeir eru Don McChart­hy, stjórn­ar­for­maður House of Frasi­er og náinn við­skipta­fé­lagi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar til margra ára, Sig­urð­ur­ ­Bolla­son, umsvifa­mik­ill íslenskur fjár­festir sem hefur einnig unnið mikið og náið ­með Jóni Ásgeiri í gegnum tíð­ina, og Þor­steinn Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri lúx­em­búrgíska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Arena Wealth Mana­gement. Lekar frá­ panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca, sýna að Þor­steinn er umsjón­ar­að­il­i ­fé­laga í eigu Ingi­bjarg­ar, og sem lotið hafa stjórn Jóns Ásgeirs, sem eiga ­skráð heim­il­is­festi í þekktum skatta­skjól­um. Á meðal þeirra félaga er áður­nefn­t G­uru Invest.

Don McCharthy stofn­aði fjár­fest­inga­fé­lagið JMS Partners með­ Jóni Ásgeiri og Gunn­ari Sig­urðs­syni, fyrrum for­stjóra Baugs, árið 2010. Sig­urð­ur­ ­Bolla­son fjár­festi mikið fyrir hrun í verk­efnum sem tengd­ust Baugi. Hann sat ­meðal ann­ars í stjórn FL Group um tíma og var ífámennum hópi manna sem tók þátt í steggja Jón Ásgeir á ensku sveita­setri árið 2007.

Samkvæmt upp­færðum upp­lýs­ingum á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar í dag er end­an­legur eig­andi Grandier S.A. Sigurður Bollason.

*Fréttin var upp­færð klukkan 16:55 eftir að tölvu­póstur barst frá Einari Þór Sverris­syni um að félagið 120 ehf. væri ekki í eig­enda­hópi 365 miðla. Um mis­ritun hafi verið ræða í skjölum sem send voru inn til fyr­ir­tækja­skráar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár