Eina konan sem stýrir skráðu félagi hérlendis hættir

For­stjóra­skipti í VÍS voru ákveðin í gær. Sigrún Ragna Ólafs­dóttir verður ekki með frek­ari við­veru á skrif­stofum félags­ins en mun vera því til halds og trausts á meðan að nýr for­stjóri kemur sér inn í starfið. Engin kona stýrir nú skráðu félagi á Íslandi.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir hringir bjöllunni frægu þegar VÍS var skráð á hlutabréfamarkað.
Sigrún Ragna Ólafs­dóttir hringir bjöll­unni frægu þegar VÍS var skráð á hluta­bréfa­markað. Mynd: Kjarninn.

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS) hefur samið við Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur, for­stjóra félags­ins, um að láta af störfum. Þess í stað hefur Jakob Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Promens, verið ráð­inn í starfið. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem send var út í nótt. Sigrún Ragna var eina konan sem stýrði skráðu félagi á Íslandi. Nú er því eng­inn kona í slíku starfi, en alls eru 16 félög skráð á aðal­markað Kaup­hallar Íslands.

Herdís Fjelsted, stjórn­ar­for­maður VÍS, segir ákvörð­un­ina um for­stjóra­skiptin hafi verið tekna í gær. Þá hafi verið samið við Sigrúnu Rögnu um að hætta og Jakob ráð­inn í kjöl­farið. Herdís segir að engin ein ástæða sé fyrir for­stjóra­skipt­unum. „Við töldum rétt að nýr aðili myndi koma að þessu. Það er ekk­ert eitt. Sigrún var búin að vera hjá VÍS í mörg ár á miklum umbrota­tímum og hafði gert fullt af góðum hlutum.”

Sigrún Ragna mun ekki vera með frek­ari við­veru á skrif­stofu VÍS en mun vera félag­inu til halds og trausts á meðan að nýr for­stjóri kemur sér inn í starfið. Aðspurð um hvort vænta megi stefnu­breyt­ingar með til­komu nýs for­stjóra segir Herdís að nýjar áherslur fylgi alltaf nýjum for­stjórum.

VÍS birti í síð­ustu viku upp­gjör sitt fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins. Þar kom fram að hagn­aður af rekstri félags­ins hafi verið 238 millj­ónir króna á fyrri hluta árs sam­an­borið við 1.419 millj­ónir króna árið áður. Helsta ástæða þess að hagn­að­ur­inn dróst svona mikið saman er að tekjur af fjár­fest­inga­starf­semi fóru úr 2.065 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 í 636 millj­ónir króna á sama tíma­bili í ár.

Mikill ólgusjór út af ætluðum arðgreiðslum

VÍS gekk í gegnum mik­inn ólgu­sjó snemma á þessu ári ásamt öðrum skráðum trygg­inga­fé­lögum í kjöl­far þess að til­kynnt var um háar arð­greiðslur til eig­enda þeirra. Til­lögur stjórna þriggja stærstu trygg­inga­fé­laga lands­ins, VÍS, Trygg­ing­ar­mið­stöð (TM) og Sjó­vá, hljóð­uðu upp á að greiða eig­endum sínum sam­an­lagt 9,6 millj­arða króna í arð og kaupa af þeim hluta­bréf upp á 3,5 millj­arða króna. Þessar til­lögur mæld­ust mjög illa fyrir, bæði hjá almenn­ingi og stjórn­mála­mönnum. Sér­stak­lega þar sem hagn­aður tveggja þeirra, VÍS og Sjó­vár, á árinu 2015 var mun lægri en fyr­ir­huguð arð­greiðsla. VÍS hagn­að­ist um 2,1 millj­arð króna í fyrra en ætl­aði að greiða hlut­höfum sínum út fimm millj­arða króna í arð. Sjóvá hagn­að­ist um 657 millj­ónir króna en ætlað að greiða út 3,1 millj­arð króna í arð. TM hagn­að­ist hins vegar um 2,5 millj­arða króna og ætl­aði að greiða hlut­höfum sínum út 1,5 millj­arð króna.

Bæði Sjóvá og VÍS ákváðu síðar að lækka arð­greiðsl­una. Sjóvá lækk­aði sína úr 3,1 millj­arði króna niður í 657 millj­ónir króna. Stjórn VÍS ákvað að lækka sína arð­greiðslu úr fimm millj­örðum króna í 2.067 millj­ónir króna. Þetta er gert þrátt fyrir að stjórnin teldi að arð­greiðslu­til­kynn­ingar hennar hafi verið vel innan þess ramman sem mark­mið um fjár­magns­skipan félags­ins gerir ráð fyr­ir.

Í til­kynn­ing­u sem send var út í kjöl­farið sagði að við­skipta­vinir og starfs­menn VÍS skipti félagið miklu. „Stjórnin getur ekki horft fram hjá þeirri stað­reynd að fylgi hún núver­andi arð­greiðslu­stefnu, þá geti það skaðað orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins. Í því ljósi hefur stjórn ákveðið að leggja til að greiðsla sé miðuð við hagnað síð­asta árs. Stjórn VÍS telur mik­il­vægt að fram fari umræða innan félags­ins, meðal hlut­hafa og út í sam­fé­lag­inu um lang­tíma­stefnu varð­andi ráð­stöfun fjár­muna sem ekki nýt­ast rekstri skráðra félaga á mark­að­i.“

Of margar konur í framboði til stjórnar

Á aðal­fundi VÍS sem fram fór í mars kom upp sér­kenni­leg staða sem varð til þess að fresta þurfti fund­inum. Af þeim fimm sem buðu sig fram til stjórn­ar­setu í félag­inu voru fjórar konur og einn karl, sem gerði það ómögu­legt að mynda stjórn sem upp­fyllti kröfur laga um kynja­kvóta, sem gerir ráð fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent stjórnar séu af hvoru kyni. Því þurfti að halda fram­halds­að­al­fund þar sem kosin var ný stjórn. Í henni sitja tvær konur og þrír karlar.

Fréttin var upp­færð klukkan 10:02.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár