Sigmundur segist hafa eytt mörgum vikum í að skila upplýsingum um Wintris

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins seg­ist hafa eytt mörgum vikum í að skýra Wintris-málið og afla allra upp­lýs­inga. Þó er það svo að ýmis­legt hefur hann aldrei upp­lýst þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir fjöl­miðla.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist hafa eytt hverjum degi í nokkrar vikur í það að reyna að afla allra gagna og skila öllum upp­lýs­ingum um félagið Wintris og „skýra málið sem að var í raun­inni í eðli sínu mjög ein­falt. Svo sér maður að það skipti engu máli, það var búið að skrifa eitt­hvað hand­rit, und­ir­búa það í sjö mán­uði í mörgum löndum, eins og kom síðar fram og margt sér­kenni­legt í þeirri sögu allri,“ sagði Sig­mundur Davíð í við­tali við Bítið á Bylgj­unni í morgun.

Hann sagði að málið hafi haft áhrif á hann og fjöl­skyldu hans. „Ég tala nú ekki um þegar maður upp­lifir það að þetta snérist ósköp lítið um stað­reyndir mála.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sig­mundur Davíð ýjar að því að Panama­skjölin og umfjöllun um þau hafi verið ein­hvers konar sam­særi gegn honum. Í síð­ustu viku sak­aði hann banda­ríska auð­mann­inn George Soros um að standa að baki því, hann hafi keypt Panama­skjölin og notað þau að vild.

Ítrekað spurt um hugsanlegar eignir erlendis

Wintris-málið komst fyrst í hámæli þegar Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs, skrif­aði um félagið á Facebook-síðu sinni í mars. Það gerði hún að eigin sögn vegna þess að umræða væri farin af stað um eignir hennar. Þetta var fjórum dögum eftir að Sig­mundur Davíð hafði mætt í við­tal til sænska rík­is­út­varps­ins þar sem hann var spurður um félagið Wintris. Í við­tal­inu svar­aði hann ekki spurn­ingum um félagið rétt og gekk síðan út úr við­tal­inu. Ekki kom hins vegar fram í máli Önnu að þetta væri til­efnið.

Áður en málið komst í fjöl­miðla hafði Kjarninn ítrekað beint fyr­ir­spurnum til Sigurðar Más Jóns­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um hvort ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands, eða fjöl­skyldur þeirra, eigi eignir erlend­is. Hinn 15. mars 2015, rúmu ári fyrir Wintris-málið, voru fyr­ir­spurnir sendar til upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar þar sem fyrr­nefnd fyr­ir­spurn var borin upp.

Sá sem svar­aði fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, var Ágúst Geir Ágústs­son, skrif­stofu­stjóri. Hann neit­aði að svara fyr­ir­spurn­inni, og sagði það ekki í verka­hring for­sæt­is­ráðu­neytis­ins að gera það, og lög krefð­ust þess ekki.

Fyr­ir­spurnin var ítrekuð í nokkur skipti, eftir að eft­ir­grennslan rit­stjórnar benti til þess að ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands ættu hugs­an­lega eignir erlend­is, sem hvergi hefði verið greint frá. Fyr­ir­spurnir Kjarn­ans báru ekki árang­ur.

Upplýsti ekki um skattamál eða kröfur á banka

Í til­kynn­ing­unni var ekki upp­lýst um það að Wintris væri skráð á Bresku jóm­frú­areyj­unum, nánar til­tekið Tortóla, heldur greindu fjöl­miðlar frá því eftir eft­ir­grennslan. Þá voru það einnig fjöl­miðlar sem greindu frá því, en ekki Sig­mundur eða Anna, að þau hefðu stigið fram vegna þess að fjöl­miðlar, sem höfðu Panama­skjölin undir höndum, höfðu spurt þau spurn­inga um málið. Fjöl­miðlar greindu einnig frá því eftir að upp­haf­lega til­kynn­ingin kom fram.

Ekki var heldur greint frá því að félagið Wintris hafi átt kröfur í slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans upp á rúm­lega 500 millj­ónir króna.

Kjarninn reyndi ítrekað að fá upp­lýs­ingar um það hvort hjónin hafi skilað sér­stöku CFC fram­tali vegna félags­ins, eins og lög gera ráð fyrir og kveða á um að gert sé þegar fólk á félög á lág­skatta­svæðum. Í maí kom svo í ljós að svo hafði ekki verið, þegar Sig­mundur skrif­aði blogg­færslu um málið þar sem hann við­ur­kenndi að skatt­skilin hafi ekki verið í sam­ræmi við CFC regl­urnar.

Þá óskaði Kjarn­inn einnig eftir upp­lýs­ingum um það hvenær skulda­bréf hefðu verið keypt og hvað hefði verið greitt fyrir bréf­in. Fyr­ir­spurn þess efnis var send 27. júní síð­ast­lið­inn. Svar barst frá Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Dav­íðs tæpum mán­uði eftir að fyr­ir­spurnin var send. Svarið var að Sig­mundur Davíð myndi ekki upp­lýsa um það hvenær félagið keypti skulda­bréf útgefin af föllnu bönk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár