Félag eiginkonu forsætisráðherra er skráð á Bresku Jómfrúareyjunum

Félag í eigu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, er skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Félagið heldur utan um miklar eignir hennar sem hún eign­að­ist eftir söl­una á Toyota á Íslandi fyrir hrun.

Félag Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem heldur utan um miklar eignir hennar er skráð til heim­ils á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Þetta stað­festir Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, sem Anna Sig­ur­laug hefur veitt leyfi til að veita upp­lýs­ingar um félagið.

Félagið, sem heitir Wintris Inc., var stofnað utan um fjöl­skyldu­arf hennar í kjöl­far þess að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki hennar, P. Sam­ú­els­son hf., seldi Toyota á Íslandi til til Smáeyjar ehf. fyr­ir­tækis Magnúsar Krist­ins­sonar, í des­em­ber 2005. Eignir for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna eru um 1,2 millj­arðar króna sam­kvæmt skatt­fram­tölum. Að lang­mestu leyti er um að ræða eignir sem eru inni í Wintris Inc.

Að sögn Jóhann­esar var félagið stofnað eftir leið­sögn frá Lands­banka Íslands fyrir hrun, eða á árinu 2008. Það var nokk­urs konar lag­er­fé­lag og allir skattar sem greið­ast eigi á Íslandi hafi ætið verið greiddir. Eign­irnar sem eru í félag­inu eru lausafé, skulda­bréf og ein­hver verð­bréf, þó ekki í íslenskum félögum. Eina fyr­ir­tækja­eign Önnu Sig­ur­laugar á Íslandi er tíu pró­sent hlutur í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Divine Love sem stofnað var árið 2013.

Wintris er í dag í fjár­stýr­ingu hjá Credit Suisse í Bret­landi. Félagið er í 100 pró­sent eigu Önnu Sig­ur­laugar þrátt fyrir að það hafi um tíma verið skráð í helm­ing­seigu Sig­mundar Davíðs hjá bank­anum. Í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook í gær sagði: „Þegar við Sig­mundur ákváðum að gifta okkur fylgdi því að fara yfir ýmis mál, þar á meðal fjár­hags­leg. Bankinn minn úti hafði gengið út frá því að við værum hjón og ættum félagið til helm­inga. Það leið­réttum við á ein­faldan hátt árið 2009 um leið og við gengum frá því að allt væri í lagi varð­andi skipt­ingu fjár­mála okkar fyrir brúð­kaupið. Félagið var því frá upp­hafi rétt skráð á Íslandi og hélt utan um sér­eign mína. Skrán­ingin úti og leið­rétt­ing hennar hafði því engin eig­in­leg áhrif[...]Þar sem ég er ekki sér­fræð­ingur í við­skiptum þá hef ég áfram haft fjöl­skyldu­arf­inn í fjár­stýr­ingu hjá við­skipta­banka mínum í Bret­landi og þar eru gerðar sér­stakar kröfur til mín og þeirra sem mér tengj­ast vegna þess­ara reglna. Frá því að Sig­mundur byrj­aði í stjórn­málum hef ég beðið um að ekki sé fjár­fest í íslenskum fyr­ir­tækjum til að forð­ast árekstra vegna þess.“

Wintris er ekki að finna í íslenskri fyr­ir­tækja­skrá. Ástæður þess, að sögn Jóhann­esar, eru þær að árið 2010 hafi reglum verið breytt með þeim hætti að félagið sjálft er ekki skráð á skatt­fram­tal for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna heldur eignir þess.

Kjarninn hefur fengið í hendur stað­fest­ingu frá KPMG á Íslandi þess efnis að eign­ar­hlutur Önnu Sig­ur­laugar hafi verið færður til eignar á skatt­fram­tölum hennar frá því að hún eign­að­ist Wintris Inc. árið 2008. „Verðbréf, skráð íeigu Wintris Inc.á hverjum tíma, hafa verið færð til eignar á skatt­fram­tölum þínum frá og með tekju­ár­inu 2009. Á skatt­fram­tali vegna tekju­árs­ins 2008 var færð til eignar krafa á Wintris Inc. sem nam fram­lögðu fé þínu til félags­ins. Allan eign­ar­halds­tíma þinn á Wintris Inc. hafa skatt­skyldar tekjur af verð­bréfum, skráðum íeigu félags­ins, verið færðar þér til tekna á við­kom­andi skatt­fram­tali eftir því sem tekj­urnar hafa­fallið til," segir í skjal­inu.

Wintris var á meðal kröfu­hafa í bú Lands­banka Íslands og lýsti í það kröfu upp á 174 millj­ónir króna. Sú krafa var vegna við­skipta sem félagið var í við bank­ann fyrir hrun og er flokkuð sem almenn krafa. Wintris mun því fá greitt úr slita­búi Lands­bank­ans í sam­ræmi við aðra almenna kröfu­hafa.

Kjarninn spurðist ítrekað fyrir um erlendar eignir ráðherra

Kjarninn hefur ítrekað beint fyr­ir­spurnum til Sigurðar Más Jóns­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, þar sem óskað hefur verið eftir upp­lýs­ingum um hvort ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands, eða fjöl­skyldur þeirra, eigi eignir erlendis. Hinn 15. mars 2015, fyrir rúm­lega ári, voru fyr­ir­spurnir sendar til upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar þar sem fyrr­nefnd fyr­ir­spurn var borin upp.

Sá sem svar­aði fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, var Ágúst Geir Ágústs­son, skrif­stofu­stjóri. Hann neit­aði að svara fyr­ir­spurn­inni, og sagði það ekki í verka­hring for­sæt­is­ráðu­neyts­ins að gera það, og lög krefð­ust þess ekki. 
Fyr­ir­spurnin var ítrekuð í nokkur skipti, eftir að eft­ir­grennslan rit­stjórnar benti til þess að ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands ættu hugs­an­lega eignir erlendis, sem hvergi hefði verið greint frá. Fyr­ir­spurnir Kjarnans báru ekki árangur. 

Anna Sig­ur­laug birti hins vegar upp­lýs­ingar um félag sitt sem skráð er erlendis í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær. Það gerði hún að eigin sögn vegna þess að umræða væri farin af stað um erlendar eignir hennar. Hægt er að lesa færslu hennar í heild sinni hér að neðan.

Íslendingar eiga yfir 30 milljarða á Tortóla

Á útrás­ar­ár­unum var lenska að geyma eign­ar­hald fyr­ir­tækja, og pen­inga, á fram­andi slóðum. Útibú eða dótt­ur­fé­lög íslensku bank­anna settu upp allskyns félög fyrir við­skipta­vini sína í Lúx­em­borg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyj­unum Jersey og Guernsey þar sem banka­leynd var, og er, rík.

Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jóm­rú­areyj­unum fyrir við­skipta­vini þeirra, nánar til­tekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hund­ruðum og lang­flest þeirra voru stofnuð í dótt­ur­bönkum íslensku bank­anna í Lúx­em­borg.

Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skatta­lög á Íslandi þannig að greiddur var tíu pró­sent skattur af slíkum sölu­hagn­aði upp að 3,2 millj­ónum króna. Allur annar hagn­aður umfram þá upp­hæð var skatt­lagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 pró­sent skattur.

Lögum um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna var hins vegar breytt um ald­ar­mótin og eftir þá breyt­ingu var allur sölu­hagn­aður af hluta­bréfum skatt­lagður um tíu pró­sent. Við það varð íslenskt skattaum­hverfi afar sam­keppn­is­hæft og skatta­hag­ræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf.

Í lok árs 2014, rúmum sex árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu íslenskir aðilar 31,6 millj­arða króna á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, nánar til­tekið á Tortóla-eyju klas­ans. Bein fjár­muna­eign Íslend­inga þar hefur auk­ist mikið frá því fyrir hrun, en í árs­lok 2007 áttu Íslend­ingar 8,6 millj­arða króna á eyj­unum. Geng­is­fall krón­unnar skýrir aukn­ing­una að ein­hverju leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár