Sigmundur Davíð upplýsir ekki um hvenær Wintris keypti skuldabréf á bankana

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var eig­andi Wintris þegar félagið keypti skulda­bréf á íslensku bank­ana skömmu fyrir hrun. Félagið lýsti 523 millj­óna kröfum í bú þeirra. Hann vill ekki upp­lýsa hvenær skulda­bréfin sem mynda kröf­una voru keypt.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tilkynnti um afsögn sína sem forsætisráðherra 5. apríl. Hann boðaði fulla endurkomu í stjórnmálin í byrjun viku.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son til­kynnti um afsögn sína sem for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl. Hann boð­aði fulla end­ur­komu í stjórn­málin í byrjun viku. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vill ekki upp­lýsa um hvenær félagið Wintris, sem skráð er til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, keypti skulda­bréf útgefin af föllnu bönk­unum þremur sem það átti. Sig­mundur Davíð var helm­ings­eig­andi félags­ins þegar það keypti umrædd bréf.

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um nákvæm­lega hvenær umrædd skulda­bréf höfðu verið keypt og hvað hefði verið greitt fyrir bréfin. Fyr­ir­spurn þess efnis var send 27. júní síð­ast­lið­inn. Svar barst frá Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs, fyrr í þess­ari viku, tæpum mán­uði eftir að fyr­ir­spurnin var send.

Þar segir að um sé að ræða kröfur sem stofn­uð­ust fyrir fall bank­anna, vegna skulda­bréf á bank­ana sem keypt voru fyrir fall þeirra og að engar kröfur hafi verið keyptar á eft­ir­mark­aði eftir banka­hrun. Hann seg­ist ekki vera með lista yfir dag­setn­ing­arnar og að langt sé um liðið síðan að hann sá þær. Jóhannes Þór seg­ist enn fremur ekki hafa „beinan aðgang“ að upp­lýs­ing­unum. „Nú, eins og þá, hefur ekki verið birt beint yfir­lit um eignir Önnu Stellu [eig­in­konu Sig­mundar Davíðs] í félag­inu, enda eru það mjög per­sónu­legar upp­lýs­ingar og ein­hvers staðar hlýtur fólk að draga lín­una. Þrátt fyrir það hafa þau hjónin birt ítar­legri upp­lýs­ingar um fjár­mál sín en nokkrir aðrir sem tengdir eru stjórn­málum,“ sagði í svari Jóhann­esar Þórs.

Lýstu kröfum upp á 523 milljónir

Sig­mundur Davíð var skráður annar eig­andi Wintris þegar félagið lýsti kröfum í slitabú föllnu bank­anna þriggja. Hann seldi síðar helm­ings­hlut sinn í félag­inu til eig­in­konu sinnar á einn banda­ríkja­dal á síð­asta degi árs­ins 2009.

Wintris lýsti sam­tals kröfum upp á 523 millj­ónir króna í bú ­bank­anna þriggja. Í svari sem Sig­mundur Davíð birti á heima­síðu sinni, við spurn­ingu sinni um af hverju Wintris ætti kröfur á föllnu bank­anna, sagði m.a.: „Þúsundir spari­fjár­eig­enda lögðu íslensku bönk­unum til fjár­magn á árunum fyrir efna­hags­hrunið, bæði með inn­lánum, pen­inga­mark­aðs­sjóðum og skulda­bréfum. Félag Önnu var eitt þeirra sem átti pen­inga inni hjá bönk­unum í formi skulda­bréfa, þ.e. hún lán­aði bönk­unum pen­inga. Líkt og hjá öðrum voru þessi kaup gerð í góðri trú um að staða bank­anna væri betri er raun varð en eins og flestir muna var láns­hæfi íslensku bank­anna metið í besta mögu­lega flokki (AAA) áður en þeir féllu. Þessar vænt­ingar stóð­ust ekki og efna­hags­hrun var stað­reynd. Frá upp­hafi hefur hefur Anna gert sér grein fyrir að tjón hennar næmi hund­ruðum millj­óna króna og að mögu­leikar á end­ur­heimtum væru ákaf­lega tak­mark­aðir. Í kjöl­far þess að gömlu bank­arnir féllu og sættu slita­með­ferð var kröfum lýst í slitabú þeirra eins og lög um gjald­þrota­skipti boða. Félagið hefur aldrei selt vog­un­ar­sjóðum kröfur og það hefur aldrei keypt kröfur á eft­ir­mark­aði (þ.e. eftir hrun bank­anna). Meðal krafna voru víkj­andi skulda­bréf, sem telj­ast sam­kvæmt gjald­þrota­rétti eft­ir­stæðar kröfur, og eru að fullu tap­aðar. Ekki liggur fyrir hverjar end­an­legar end­ur­heimtur verða af heild­inni en búast má við að þær nemi um 16 pró­sent af lýstum kröfum. Áætlað tjón vegna þess­ara skulda­bréfa nemur því hund­ruðum millj­óna króna.“

Miðað við þær ætl­uðu end­ur­heimtir sem Sig­mundur Davíð hefur gefið upp má gera ráð fyrir að Wintris fái um 84 millj­ónir króna greiddar alls úr slita­búum föllnu bank­anna.

Þykja óvenjulegar fjárfestingar

Íslensku bank­arnir voru komnir í mik­inn vanda strax í lok árs 2007. Erlendir stór­bankar hófu að gjald­fella lán til stórra íslenskra kúnna í byrjun árs 2008 og tak­marka mjög lána­mögu­leika íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Þeim leyst ein­fald­lega alls ekki á íslensku blik­una og af því voru sagðar mýmargar fréttir.

Wintris var stofnað síðla árs 2007, þegar óveð­ur­skýin voru þegar byrjuð að hrann­ast fyrir ofan íslensku bank­anna. Sér­fræð­ingar sem Kjarninn hefur rætt við hafa sett stórt spurn­ing­ar­merki við að slíkt félag, í eigu ein­stak­linga, hafi verið að taka jafn stórar stöður í skulda­bréfum íslensku bank­anna á síð­ustu mán­uð­unum fyrir hrun. Það hafi fyrst og síð­ast, við eðli­legar aðstæður, verið stórir fag­fjár­festar, fjár­mála­fyr­ir­tæki, fjár­fest­inga- eða vog­un­ar­sjóðir og líf­eyr­is­sjóðir, sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­boðum íslensku bank­anna.

Þegar við bæt­ist að Sig­mundur Davíð full­yrðir að hluti krafna Wintris sé til­komin vegna víkj­andi skulda­bréfa þá þykja fjár­fest­ingar félags­ins enn sér­kenni­legri. Víkjandi skulda­bréf er ein­fald­lega eins og lán án veða. Þ.e. alllir aðrir lán­veit­endur fá borgað á undan þeim sem á slíkt. Af hverju ætti Wintris að hafa keypt slík skulda­bréf af banka sem mjög aug­ljós­lega var í vanda?

Við því hafa ekki svör og Sig­mundur Davíð vill ekki upp­lýsa hvenær félagið keypti umrædd bréf utan þess að aðstoð­ar­maður hans full­yrðir að þau hafi verið keypt fyrir banka­hrun, en ekki á eft­ir­mark­aði þegar kröfur á bank­anna seld­ust á hrakvirði. Ekki er hægt að leita að stað­fest­ingu á þessum full­yrð­ingum í árs­reikn­ingum Wintris. Þeir eru ekki til.

Sigmundur Davíð snýr aftur

Sig­mundur Davíð til­kynnti um fulla end­ur­komu sína í stjórn­mál með bréfi til félags­manna Í Fram­sókn­ar­flokknum á mánu­dag og aðsendri grein í Morg­un­blaðið á þriðju­dag. Í bréf­inu sagði hann að end­ur­koman myndi vekja við­brögð, jafn­vel ofsa­fengin en slík væri „ nú sem fyrr til marks um að and­stæð­ingar telji sér að sér standi ógn af okkur. “ Sig­mundur Davíð boð­aði einnig að flokks­menn muni fá send upp­lýs­ingar um öll þau álita­mál tengd honum sem upp kunni að koma sam­hliða end­ur­komu hans inn í stjórn­málin.

Hann kom síðan skýrt á fram­færi þeirri skoðun sinni að kosn­ingar ættu ekki að fara fram fyrr en í vor og að flokkur hans hefði upp­fyllt flest fyr­ir­heit sín við kjós­endur. „

Skyldur okkar eru við þá sem höfðu trú á okkur og studdu og við sam­fé­lagið í heild en ekki við þá sem vilja losna við okkur.“

Alþingi kemur saman á ný 15. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár