Fréttir af eignum Íslendinga í skattaskjólum birtar í stórmiðlum á næstu vikum

Íslenskt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki vinnur að umfangs­mik­illi umfjöllun um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum í sam­starfi við nokkra erlenda fjöl­miðla. Spurn­ingar voru settar fram vegna félags eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra.

Eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra hefur upplýst um að hún eigi félag sem skráð er á Bresku Jómfrúareyjunum.
Eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra hefur upp­lýst um að hún eigi félag sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Mynd: Birgir Þór

Reykja­vík Media ehf., fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, ICIJ, sem eru alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, þýska dag­blaðið Süddeutsche Zeitung og fleiri erlendir fjöl­miðlar hafa unnið saman að fréttaum­fjöllun um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum und­an­farna mán­uði. Þær fréttir munu birt­ast þeim miðlum á allra næstu vikum. Þetta stað­festir Jóhannes Kr. í sam­tali við Kjarnann.

Í fyrra­dag opin­ber­aði Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, í stöðu­upp­færslu á Facebook að hún ætti erlent félag sem héldi utan um miklar eignir hennar. Þær eignir eru arfur sem hún fékk í kjöl­far þess að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki hennar seldi Toyota á Íslandi árið til til Smáeyjar ehf. fyr­ir­tækis Magnúsar Krist­ins­sonar, í des­em­ber 2005 fyrir 5,6 millj­arða króna. Eignir for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna eru um 1,2 millj­arðar króna sam­kvæmt skatt­fram­tölum og eru þær að langstærstu leyti inni í umræddu félagi. Anna Sig­ur­laug til­tók sér­stak­lega að hún hefði staðið skil á öllum sköttum hér­lendis sem hún hefði átt að greiða og aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra sendi stað­fest­ingu á réttum skatt­skilum hennar á fjöl­miðla í gær.

Opin­berun hennar kom í kjöl­far þess að Jóhannes Kr. setti sig í sam­band við for­sæt­is­ráð­herra vegna þeirrar umfjöll­unar sem birt verður á næstu vikum, en þar er meðal ann­ars fjallað um félag eig­in­konu hans.

Kjarninn upp­lýsti um það í gær­morgun að umrætt félag, sem heitir Wintris Inc., er skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og að það hafi verið Lands­bank­inn, þáver­andi við­skipta­banki Önnu Sig­ur­laugar, sem hafi ráð­lagt henni að stofn­setja það með þessum hætti. Eign­irnar sem eru í félag­inu eru lausafé, skulda­bréf og ein­hver verð­bréf, þó ekki í íslenskum félögum. Eina fyr­ir­tækja­eign Önnu Sig­ur­laugar á Íslandi er tíu pró­sent hlutur í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Divine Love sem stofnað var árið 2013.

Wintris áttu kröfur í slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans sem sam­an­lagt eru upp á rúm­lega 500 millj­ónir króna að nafn­virði.

Wintris er í dag í fjár­stýr­ingu hjá Credit Suisse í Bret­landi. Félagið er í 100 pró­sent eigu Önnu Sig­ur­laugar þrátt fyrir að það hafi um tíma verið skráð í helm­ing­seigu Sig­mundar Davíðs hjá bank­anum. Í stöðu­upp­færsl­unni sem hún birti á Facebook í fyrra­dag sagði: „Þegar við Sig­mundur ákváðum að gifta okkur fylgdi því að fara yfir ýmis mál, þar á meðal fjár­hags­leg. Bankinn minn úti hafði gengið út frá því að við værum hjón og ættum félagið til helm­inga. Það leið­réttum við á ein­faldan hátt árið 2009 um leið og við gengum frá því að allt væri í lagi varð­andi skipt­ingu fjár­mála okkar fyrir brúð­kaupið. Félagið var því frá upp­hafi rétt skráð á Íslandi og hélt utan um sér­eign mína. Skrán­ingin úti og leið­rétt­ing hennar hafði því engin eig­in­leg áhrif[...]Þar sem ég er ekki sér­fræð­ingur í við­skiptum þá hef ég áfram haft fjöl­skyldu­arf­inn í fjár­stýr­ingu hjá við­skipta­banka mínum í Bret­landi og þar eru gerðar sér­stakar kröfur til mín og þeirra sem mér tengj­ast vegna þess­ara reglna. Frá því að Sig­mundur byrj­aði í stjórn­málum hef ég beðið um að ekki sé fjár­fest í íslenskum fyr­ir­tækjum til að forð­ast árekstra vegna þess.“

ICIJ birti gögn í samstarfi við stórmiðla í fyrra

Fyrir rúmu ári síðan birtu ICIJ sam­tökin, sem Reykja­vík Media eru nú hluti af, upp­lýs­ingar um umfangs­mikil skatt­svik sem sviss­neski bank­inn HSBC aðstoð­aði þús­undir manns út um alla heim, þó einkum í gegnum útibú sitt í Bret­landi, við að fremja. Þetta var gert með því að fela pen­inga­legar eignir fyrir skatta­yf­ir­völdum. Á meðal þeirra gagna sem birt voru voru upp­lýs­ingar um sex aðila tengda Íslandi sem ICIJ sagði að hefðu komið um 1,2 millj­arði króna (9,5 millj­ónum dala) undan skatti. Um hafi verið að ræða þrettán ein­stak­linga­reikn­inga sem opn­aðir voru hjá bank­anum milli áranna 1995 og 2005 og tengd­ust þeir átján banka­reikn­ingum. Sex aðilar tengdir Íslandi áttu reikn­ing­ana, og hæsta upp­hæð tengd einum þeirra nemur 8 millj­ónum dala. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk gögnin afhent til rann­sóknar en komst að þeirri nið­ur­stöðu í maí að þau gæfu ekki til­efni til frek­ari aðgerða..

Á meðal fjöl­miðla sembirtu ítar­legar umfjall­anir úr gögn­unum frá HSBC voru The Guardian, Bild, Le Monde og rann­sókn­ar­blaða­mennsku­þátt­ur­inn BBC Panorama. Meðal þess sem fram kom í gögn­unum var að sterk­efnað þekkt fólk, ekki síst sem teng­ist afþrey­ingar- og tísku­iðn­aði, Formúlu 1 kappakstri og stjórn­málum, hafi kerf­is­bundið svikið undan skatti með leyni­legum reikn­ingum sem HSBC aðstoð­aði við að koma upp og reka. Meðal þeirra sem þetta gerðu voru spænski Formúlu 1 öku­þór­inn Fernando Alonso, fyr­ir­sætan Elle McPherson, tón­list­ar­mað­ur­inn Phil Collins, leik­ar­inn Christan Slater og Hosnai Mubarak, fyrr­ver­andi ein­ræð­is­herra Egypta­lands, að því er fram kom í Bild. Tug­þús­undir ann­arra við­skipta­vina HSBC í London gerðu slíkt hið sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár